Dagbók: janúar 2026

Tvöfeldni í ESB-umræðunum - 31.1.2026 12:11

Af erlendum fréttum má ráða að íslenskir stjórnmálamenn og embættismenn segi þar annað en við þjóð sína. Þeir segi eitt um boðaða ESB-atkvæðagreiðslu erlendis en annað hér heima.

Lesa meira

Einhuga utanríkismálanefnd - 30.1.2026 9:53

Það er fagnaðarefni að það tókst að sætta sjónarmið flokkanna í þessu máli því að samstaða hefur verið milli þeirra um þjóðaröryggisstefnuna síðan alþingi samþykkti hana 13. apríl 2016.

Lesa meira

Ríkisstjórnin fellur á áfangaprófi - 29.1.2026 11:19

Veiti þróun verðbólgu mælanlega vísbendingu um gæði stjórnarhátta hefur ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur fallið á áfangaprófinu þegar fyrstu áhrif fjárlaga hennar eru mæld.

Lesa meira

Aðförin að sjókvíaeldi - 28.1.2026 12:14

Sé litið á nokkrar umsagnir af þeim 910 sem bárust í samráðsgáttina er auðvelt að átta sig á því að um staðlaða og skipulagða andstöðu við ákvæði frumvarpsins um sjókvíaeldi er að ræða.

Lesa meira

Svik á svik ofan vegna ESB - 27.1.2026 9:51

Þau umturnuðust í Silfrinu Dagur B. og María Rut þegar Jens Garðar sagði að spyrja ætti kjósendur í atkvæðagreiðslunni: Viltu að Ísland gangi í ESB?

Lesa meira

Peð í valdatafli í Samfylkingunni - 26.1.2026 11:06

Pétur Marteinsson verður að taka mun einarðlegri afstöðu til manna og málefna en til þessa. Hann endar annars aðeins sem peð í valdatafli í Samfylkingunni.

Lesa meira

Heiðrum minningu sr. Friðriks - 25.1.2026 10:33

Allt er þetta satt og rétt og vonandi ganga sem flestir til liðs við félagið Æruvernd. Við sem komumst ekki á fundinn í dag getum gerst stofnfélagar með tölvubréfi til aeruvernd@aeruvernd.is

Lesa meira

Carney og blekking Kristrúnar - 24.1.2026 10:43

Nú liggur fyrir að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er klofin í ESB-aðildarmálin en ætlunin er að stjórnin standi samt að þingsályktunartillögu sem hefur það meginhlutverk að breiða yfir þennan ágreining.

Lesa meira

Þráhyggja Viðreisnar - 23.1.2026 11:22

Inga Sæland segist 100% á móti ESB-aðild en fær dúsu svo að hún styðji Viðreisn. Tillaga Viðreisnar miðast aðeins við sérhagsmuni flokksins en ekki þjóðarhag.

Lesa meira

Lausn í augsýn vegna Grænlands - 22.1.2026 10:31

Þessari ályktun Trumps getur enginn hafnað. Íslenskir ráðamenn verða að leggja þessa staðreynd til grundvallar í öllum vangaveltum um framtíðarstöðu þjóðarinnar og samskipti okkar við önnur ríki.

Lesa meira

Donald kemur til Davos - 21.1.2026 11:07

Forsætisráðherra hafa ákveðið á óvissutímanum sem nú er að setja ESB-aðildarmálið á dagskrá íslenskra stjórnmála. Það er vanhugsað og á skjön við þjóðarhagsmuni að stíga slíkt skref.

Lesa meira

Léleg réttlæting Kristrúnar - 20.1.2026 15:12

Þessi röksemdafærsla sjálfs forsætisráðherra er alvarlegt áhyggjuefni. Í réttarríki gildir einföld regla: árangur opinberrar valdbeitingar ræðst af lögmæti hennar, ekki afleiðingum.

Lesa meira

Duttlungar Ingu ofar lögum - 19.1.2026 11:49

Enn einu sinni birtist sama mynstrið í stjórnarsamstarfinu: Inga Sæland nær að setja forsætisráðherra í þá stöðu að teygja lög og stjórnskipulega túlkun til að þóknast eigin pólitískum duttlungum.

Lesa meira

Trump virðir engin mörk - 18.1.2026 10:44

Trump verða aðeins settar skorður á heimavelli. Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur ekki enn komist að niðurstöðu um hvort forsetanum sé heimilt að beita tollavopninu að eigin geðþótta.

Lesa meira

Traust og friður um stjórnina - 17.1.2026 12:01

Margt vegna brotthvarfs Guðbrands minnir á afsögn Ásthildar Lóu Þórsdóttur sem menntamálaráðherra og brotthvarf hennar af þingi til að ríkti „algjört traust og friður“ um störf ríkisstjórnarinnar. 

Lesa meira

RÚV breytt í peningamyllu - 16.1.2026 9:56

Hér birtist athyglisverð sýn frá manni sem þekkir af eigin raun viðhorf sem ríkja í æðstu stjórn RÚV og hver eru áhrif sölu auglýsinga á gerð dagskrár miðilsins.

Lesa meira

Rökþrota fjármálaráðherra - 15.1.2026 10:55

Það er ekki ábyrg fjármálastjórn þegar ríkisvaldið sjálft eykur verðbólguþrýsting á sama tíma og heimilin eru hvött til að herða sultarólina.


Lesa meira

Inga berst fyrir börnin - 14.1.2026 10:31

Það verður spennandi að fylgjast með því hvernig ráðherranum tekst að vinna stefnu sinni brautargengi innan laga- og regluverksins sem smíðað hefur verið við kerfisvæðingu á málefnasviði ráðuneytisins undanfarin ár.

Lesa meira

Parki hagnast á Háskóla Íslands - 13.1.2026 12:15

Það er undarlegt að forráðamenn Háskóla Íslands skuli heimila Parka að komast upp með þá aðferð sem lýst var í færslu hér á dögunum. 

Lesa meira

Ólík sýn á ráðherrafund - 12.1.2026 13:20

Í tilkynningu ráðuneytis hennar um fundinn er ekki minnst einu orði á Trump eða Grænland. Þar er á hinn bóginn lögð áhersla á varnarbaráttu Úkraínumanna gegn Rússum.

Lesa meira

Kannski nægir honum ekki Grænland - 11.1.2026 11:33

NYT segir að þarna birtist heimssýn Trumps í sinni tærustu mynd: Það er einungis styrkur þjóðar sem á að ráða úrslitum í hagsmunaárekstri við aðra þjóð.

Lesa meira

Ekki náðist í Pétur - 10.1.2026 11:25

Þá kom í ljós að kosningastjórn Péturs hafði gleymt Heimildinni. Kannski vegna þess að þar hefur ekkert verið gert með skattamál Kristrúnar.

Lesa meira

Vitvélar og bílastæðagræðgi - 9.1.2026 10:39

Önnur starfræn aðferð til að ná fé af bíleigendum er að starfsmenn bílastæðasjóðs Reykjavíkur aka um borgina í bifreið með myndavélum og sekta eftir myndunum.

Lesa meira

Ekkert skjól í Pútin - 8.1.2026 10:43

Fréttir voru um að Pútin hefði sent kafbát á vettvang til að tryggja öryggi Marinera. Sé svo reyndist hann gagnslaus. Sama er að segja um diplómatísk mótmæli Rússa í Washington.

Lesa meira

WSJ: Er Grænlandsmálið MAGA-skemmtun? - 7.1.2026 12:17

Athygli vekur hve mikla vitleysu Trump segir þegar hann rökstyður rétta skoðun sína á strategísku gildi Grænlands fyrir Bandaríkin. Gerir hann það til að höfða til MAGA-stuðningsmanna sinna? 

Lesa meira

Utanríkisráðherra á röngu róli - 6.1.2026 12:11

Stundum mætti halda að það hefði einnig farið fram hjá utanríkisráðherra Íslands að nágrannaríki okkar eru að auka varnir N-Atlantshafs og þar eru Danir, Norðmenn og Bretar nú í fremstu röð.

Lesa meira

ESB „lykilbreyta“ utanríkisráðherra - 5.1.2026 12:11

Eitt einkenni umræðna um íslensk utanríkismál í tæp 20 ár er að gerist eitthvað óvænt hér heima eða á alþjóðavettvangi hefjast umræður um nauðsyn þess að við göngum í Evrópusambandið (ESB).

Lesa meira

Trump handtekur Maduro - 4.1.2026 10:45

Ekki er ólíklegt að þegar frá líði verði vel heppnuð og fagmannleg handtaka einræðisherrans talin auðveldi hluti þess sem Trump ætlar sér gagnvart Venesúela. 

Lesa meira

Nýmæli á Bessastöðum - 3.1.2026 10:45

Engin af þessum breytingum er nauðsynleg. Allt er þetta líklega gert til að auka þægindi og ánægju á æðstu stöðum í anda þeirra sem þar ráða.

Lesa meira

Söguleg Samfylkingarátök - 2.1.2026 9:44

Pétur gat ekki valið betri dag en nýársdag, daginn eftir áramótaskaup sjónvarps okkar allra, til að hefja herferð meðal kjósenda í prófkjöri Samfylkingarinnar: þeir ættu frekar að velja sig en borgarstjórann sem enginn þekkti í skaupinu.

Lesa meira

Gleðilegt ár! - 1.1.2026 10:38

Nýju ári fagnað með nokkrum ljósmyndum.

Lesa meira