Ríkisstjórnin fellur á áfangaprófi
Veiti þróun verðbólgu mælanlega vísbendingu um gæði stjórnarhátta hefur ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur fallið á áfangaprófinu þegar fyrstu áhrif fjárlaga hennar eru mæld.
Í dag, 29. janúar, birti hagstofan tilkynningu um verðbólguþróun. Er hún verri en svartsýnustu spámenn ætluðu. Verðbólga mælist nú 5,2%, miðað við 4,5% í desember. Verðbólga hefur ekki verið meiri frá því í september árið 2024.
Kristrún Frostadóttir lá ekki á gagnrýni sinni á ríkisstjórnina í september 2024 þegar Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra lagði fram síðasta fjárlagafrumvarp þriggja flokka stjórnarinnar. Sigurður Ingi hvatti til þess að menn sýndu biðlund: Þetta er allt að koma, sagði hann. Þetta reyndust orð að sönnu fram eftir ári 2025 þegar áhrifa fjárlaganna gætti í framkvæmd.
Kristrún hæddist að Sigurði Inga í fjárlagaumræðunum 12. september 2024.
Hún sagði ríkisstjórnina halda að það að gera ekki neitt nýtt myndi skyndilega breyta aðstæðum. Stjórnin ætlaði ekki í neinar skattahækkanir, engan niðurskurð, engar kollsteypur. Hún ætlaði „bara að anda sig í gegnum þetta, sitja þetta af sér, láta þetta malla áfram á sjálfstýringu.“ Þetta væri ástæðan fyrir því að verðbólgan hefði mallað í kerfinu og væri nú farin að grassera. Þetta væri ástæðan fyrir því að vanskil á öðrum lánum en húsnæði hefðu nú rokið upp, ástæðan fyrir því að vaxtabyrði ungs fólks, barnafólks, eignalítils fólks, væri orðin verulega íþyngjandi. „Fólkið þarna úti er að kalla eftir aðgerðum, að hæstv. ríkisstjórn geri eitthvað. En hér á bara að malla í gegnum þetta,“ sagði formaður Samfylkingarinnar þá og undir lok ræðunnar féll þessi setning: „Við vitum öll að þegar ríkið gerir minna þarf seðlabankinn að gera meira.“
Kristrún mundar sleggjuna á myndbandi Samfylkingarinnar fyrir kosningarnar 30. nóvember 2024.
Þarna lýsti Kristrún sýninni sem var útfærð í „plani“ hennar. Um miðjan september sat þriggja flokka stjórnin en 13. október 2024 sleit Bjarni Benediktsson forsætisráðherra stjórnarsamstarfinu, þing var rofið og gengið til kosninga 30. nóvember 2024. Í kosningabaráttunni herti Kristrún á heitstrengingum um sigur á verðbólgunni og mundaði sleggju til að sýna hvað fyrir henni vekti í því efni fengi hún umboð kjósenda.
Hún fékk það í kosningunum og myndaði núverandi stjórn með Flokki fólksins og Viðreisn 21. desember 2024. Stjórn Kristrúnar lagði fjárlagafrumvarp sitt fyrir árið 2026 fram í september 2025 og nú er ljóst að verðbólga grasserar í upphafi árs vegna ákvarðana í fjárlagafrumvarpinu en fyrir ári leiddu fjárlögin til lækkunar verðbólgu á fyrri hluta ársins.
Veiti þróun verðbólgu mælanlega vísbendingu um gæði stjórnarhátta hefur ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur fallið á áfangaprófinu þegar fyrstu áhrif fjárlaga hennar eru mæld.
Ólga vex innan Samfylkingarinnar vegna stjórnarhátta Kristrúnar. Kuldaleg framkoma hennar í garð fráfarandi borgarstjóra Samfylkingarinnar, Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, mælist illa fyrir. Þegar rætt var um verðbólguhorfur í Silfrinu mánudaginn 26. janúar létu stjórnarliðar í ljós vonir um að þetta reddaðist og Dagur B. Eggertsson, pólitískur guðfaðir Heiðu Bjargar, sagði glottandi eitthvað á þá leið að ríkisstjórnin starfaði áfram eftir „planinu“.
Verðbólga eykst, uppsögnum fjölgar og atvinnuleysi vex. Þá er gripið til þess að sundra þjóðinni með ESB-aðildardeilum. Fjármálaráðherra Viðreisnar ber mikla ábyrgð. Flokki hans er ESB lífspursmál, ræður það efnahagsstefnunni?