Rússar hæðast að ÞKG vegna ummæla um ÓRG
Að óreyndu hefði mátt ætla að það væri utanríkisráðherra Íslands kappsmál að kasta ummælum Heimis Más út í hafsauga. Dómgreindarskortur stjórnarherranna takmarkast því miður ekki þar.
Sergej Lavrov utanríkisráðherra Rússa birti 31. ágúst grein á vefsíðunni arctic.ru undir fyrirsögninni: Alþjóðlegt samstarf á norðurslóðum: áskoranir og tækifæri. Ráðherrann sagði hana skrifaða í tilefni af þeim tímamótaviðburði að 19. ágúst 2026 hefði í fyrsta sinn komið „gámaskip frá Kína til hafnar í Múrmansk um Norðausturleiðina“ sem væri mikilvægur hluti af flutningaleiðinni þvert yfir norðurskautið. Þetta markaði upphaf nýs áfanga í þróun norðurskautssvæðis Rússlands.
Lavrov setur samstarf við Kína og Indland efst á blaðið. Rússar hefðu stofnað sérhæfða undirnefnd um Norðausturleiðina auk samstarfs milli ráðuneyta og vísindamanna. Árangurinn talaði sínu máli.
Eftir innrás Rússa í Úkraínu 2022 hættu NATO-ríkin samstarfi við þá í Norðurskautsráðinu. Í grein Lavrovs andar köldu í garð NATO sem hann telur þrýsta á hervæðingu norðurslóða og skapa þar jarðveg fyrir alþjóðlega spennu. Nefnir hann sérstaklega Norðurslóðavörslu NATO, Arctic Sentry, sem hófst í febrúar 2026. Umfangsmikill hernaðarlegur undirbúningur standi yfir í næsta nágrenni við norðurlandamæri Rússlands.
Ólafur Ragnar Grímsson (ÓRG) hefur áratugum saman talað fyrir alþjóðlegu samstarfi á norðurslóðum og honum þótti ástæða til að vekja athygli á því á X 31. ágúst 2026 að Sergeij Lavrov hefði rofið langa þögn Rússa um stefnu sína og verkefni á norðurslóðum.
Þetta varð til þess að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (ÞKG) utanríkisráðherra lýsti á Sprengisandi á Bylgjunni sunnudaginn 18. október áhyggjum af „Rússagælum“ í íslensku samfélagi og gagnrýndi Ólaf Ragnar sérstaklega fyrir að taka undir málflutning Sergeijs Lavrov um hernaðarumsvif NATO á norðurslóðum. Ólafur Ragnar mótmælti ummælum ráðherrans harðlega og sagði utanríkisstefnuna þurfa að byggjast á vandaðri gagnaöflun, þekkingu og hógværð. Sjálfur hefði hann aldrei litið á utanríkismál eins og handbolta þar sem hraðaupphlaup væru aðalatriðið.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Heimir Már Pétursson (mbl.is/samsett mynd).
Hér var í gær fjallað um furðuyfirlýsingar Heimis Más Péturssonar á X . Um þau var rætt á alþingi þann sama dag og sagði utanríkisráðherra þessar yfirlýsingar hans um kjarnorkuvopn ekki vera „í samræmi við neitt sem snertir íslenska utanríkisstefnu“. Ráðherrann lét þó ekki staðar numið því hún hélt áfram að hnýta í Ólaf Ragnar Grímsson og sagði:
„En ég hugsa núna þegar það kemur þessi athugasemd um eitt tíst frá Heimi Má Péturssyni, sem er búinn að draga það til baka, alveg skýrlega, að það sagði enginn í stjórnarandstöðunni neitt þegar tíst kom frá Sergeij Lavrov þar sem hann agnúast út í sameiginlega eftirlitssveit NATO, Arctic Sentry, sem eykur öryggi hér á norðurslóðum. Þá var því endurtíst hér af fyrrverandi forráðamanni íslenskra stjórnvalda. Það finnst mér miklu alvarlegra heldur en þetta.“
Þessi ummæli utanríkisráðherra urðu til þess að rússneska sendiráðið í Reykjavík, sem starfar án sendiherra, birti yfirlýsingu á Facebook að kvöldi 2. nóvember þar sem sagði:
„Því miður á maður gera sér ljósa staðreynd, að samkvæmt rökhyggju Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur virðist færsla greinar rússneska starfsbróður hennar og kynning á efni greinarinnar að vera meira ógnandi en yfirlýsingar háttsetta embættismannsins innan stjórnarflokksins, sem ótvírætt kallar eftir kjarnorkuvopnastigmögnun í Evrópu.
Hinsvegar er einnig nokkur ástæða til varlegrar bjartsýni: utanríkisráðherrann hefur þó staðfest, að íslenska ríkisstjórnin ótvírætt styðji kjarnorkuvopnaafvopnun.“
Að óreyndu hefði mátt ætla að það væri utanríkisráðherra Íslands kappsmál að kasta ummælum Heimis Más út í hafsauga. Dómgreindarskortur stjórnarherranna takmarkast því miður ekki við framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins. Stjórnin öll er heillum horfin eftir að Ísland sagði nei 29. ágúst.