Heimir Már og Macron – ÞKG og Xi
Munurinn á því sem sagt er heima og erlendis birtist í tengslum við nýlega Asíuferð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur (ÞKG) utanríkisráðherra.
Frá því var sagt á mbl.is föstudaginn 30. október að Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins og upplýsingastjóri flokksins, hefði eytt X-reikningi sínum.
Í fréttinni sagði að kvöldið áður, 29. október, hefði Heimir sett inn athugasemd við færslu Emmanuels Macron Frakklandsforseta og hvatt Macron til að senda hermenn á vígvöllinn í Úkraínu og gera kjarnorkuvopnin tilbúin til að skjóta þegar í stað.
Heimir Már baðst síðan afsökunar á ummælunum og sagði orðalagið óafsakanlegt. Hann lagði áherslu á að um hans persónulegu skoðanir væri að ræða og þær tengdust ekki störfum hans fyrir þingflokkinn.
Þá segir á mbl.is: „Nú virðist Heimir hafa eytt aðgangi sínum en ef reynt er að skoða síðuna hans segir að aðgangurinn sé ekki til.“
X hét áður Twitter en fékk nýja nafnið eftir að auðmaðurinn Elon Musk keypti samskiptamiðilinn til að geta beitt honum í eigin þágu eins og öðrum eignum sínum.
Heimir Már hefur oft tekið ofsafengnar rispur á íslenskum vefsíðum til varnar Flokki fólksins og ráðist með fúkyrðum á menn og málefni. Hann hefur aldrei séð ástæðu til að biðjast afsökunar á þeim ummælum og upphlaupum né boðað að hann hætti miðlun sinni þar.
Þrátt fyrir frumhlaupið og hvatninguna til Macrons um kjarnorkuvopnin nýtur miðlunarstjóri Flokks fólksins áfram óskoraðs trausts Ingu Sæland, stofnanda flokksins og yfirstjórnanda. Það er annað að draga sig í hlé á alþjóðavettvangi eftir að hafa orðið sér til skammar en að sýna mörlandanum óvirðingu með því að halda áfram sem upplýsingastjóri Flokks fólksins.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Wang Yi í Peking 29. október 2026 (mynd: stjórnarráðið,is).
Munurinn á því sem sagt er heima og erlendis birtist í tengslum við nýlega Asíuferð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur (ÞKG) utanríkisráðherra. Því var flaggað að hún færi með föruneyti til Víetnams til að rita undir fríverslunarsamning EFTA við Víetnam en það var þagað um að hún væri jafnframt á leið til Kína á sjávarútvegssýningu í Qingdao og til fundar við Wang Yi utanríkisráðherra Kína fimmtudaginn 29. október.
Þann dag birtu utanríkisráðuneyti beggja landa tilkynningu um fundinn. Í íslensku tilkynningunni var lögð áhersla á viðskipti, jarðhita og grænar orkulausnir og að Þorgerður Katrín hefði sérstaklega rætt árásarstríð Rússa í Úkraínu og hvatt Kínverja til að beita áhrifum sínum á rússneska ráðamenn.
Kínverska utanríkisráðuneytið nefnir hins vegar norðurslóðasamstarf, sameiginlegar rannsóknir, menntun og uppfærslu fríverslunarsamningsins. Í kínversku tilkynningunni um fundinn með Þorgerði Katrínu 29. október stendur 以人民为中心的执政理念, sem má þýða „stjórnarhugmyndin um að setja fólkið í öndvegi“. Þar er henni eignað að hugmyndir í ritum Xi Kínaforseta séu henni innblástur, sérstaklega þessi stjórnarhugmynd.
Spurning er hvort Þorgerður Katrín telji kenningu Xi samrýmast kenningu sinni um „lýðræðisveisluna“ sem hún bauð hér til 29. ágúst og hvort hún hafi viljað koma þeim boðum til Xi að best væri að stíga varlega til jarðar við slík veisluhöld.