27.5.2025 11:59

Dómgreind dómsmálaráðherra

Nú eru nefndardagar á alþingi og verður spennandi að sjá hvar mál dómsmálaráðherra verða á dagskrá þingfundar mánudaginn 2. júní. Eitt er víst, stjórnarandstaðan ræður engu um það.

Við blasti að Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra kallaði yfir sig vandræði um helgina þegar hún sakaði stjórnarandstöðuna, einkum Miðflokkinn, um að tefja fyrir afgreiðslu frumvarps sem hún fékk í arf í ráðuneyti sínu og snýr meðal annars að því að loka farþegalistagati frá fáeinum flugfélögum sem hingað koma, 93% standa skil á slíkum listum, sjá hér í gær.

Hluti fundartíma alþingis mánudaginn 26. maí snerist um gagnrýni á dómsmálaráðherra fyrir ummæli hennar enda er það ekki stjórnarandstaðan sem semur dagskrá alþingis heldur forseti alþingis í samvinnu við forsætisráðherra. Þegar dregur að þinglokum eins og núna verður kapphlaup við ríkisstjórnarborðið því að hver ráðherra vill hafa sitt frumvarp sem efst á dagskrá alþingis til að tryggja afgreiðslu þess fyrir sumarhlé þingsins.

Sama gildir um starfsáætlun þingsins og þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Í báðum tilvikum er um viðmiðunarskjal að ræða. Þótt dragist fram yfir lokadag samkvæmt starfsáætlun, eins og nú mun gerast, að þing ljúki störfum verður þingmálaskráin ekki tæmd.

1442482Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráherra (mynd:mbl.is/Eggert Jóhannesson).

Það er ekki við stjórnarandstöðuna að sakast að frv. dómsmálaráðherra um landamæri og farþegaupplýsingar var sett nr. 24 á dagskrá alþingis mánudaginn 26. maí. Ákvörðun forseta þingsins sýnir að málið er einfaldlega ekki hærra skrifað innan stjórnarflokkanna. Mál heilbrigðisráðherra er til dæmis ofar á dagskránni. Dómsmálaráðherra verður einfaldlega að hafa meiri stuðning í herbúðum ríkisstjórnarinnar.

Nú eru nefndardagar á alþingi og verður spennandi að sjá númer hvað mál dómsmálaráðherra verða á dagskrá þingfundar mánudaginn 2. júní. Eitt er víst, stjórnarandstaðan ræður engu um það.

Í svari við óundirbúinni fyrirspurn frá Sigríði Á. Andersen (Miðflokki) í gær sagði dómsmálaráðherra fullum fetum að landamæramálið væri nr. 24 á dagskrá þingsins „vegna tafaleikja hv. þingmanns og hennar þingflokks“. Þetta væri „afleiðing“ af „ykkar framgöngu hér í þingsal“ sagði ráðherrann og var svo mikið niðri fyrir að hún braut reglur um hvernig ávarpa skal aðra þingmenn í ræðustól alþingis (forseti gerði þó ekki athugasemd).

Sagði Þorbjörg Sigríður að runnið hefðu á sig tvær grímur vegna þess að enginn frá Miðflokknum hefði skrifað undir nefndarálit um frumvarpið og enginn miðflokksmaður hefði verið við fyrstu umræðu frumvarpsins. Þetta ræður engu um að málið sé nr. 24 á dagskrá þingsins. Furðulegust var þó lokasetning ráðherrans:

„Síðan er það kannski þessi afstaða [Miðflokksins], m.a. til alþjóðlegrar samvinnu löggæsluyfirvalda í gegnum Schengen og Europol. Ég veit ekki betur en að samvinna íslenskrar lögreglu við Europol hafi leitt til handtöku ISIS-liða á Akureyri. Var Miðflokkurinn mótfallinn þeim aðgerðum?“

Telur dómsmálaráðherra virkilega að mál nr. 24 sé á dagskrá alþingis vegna þess að Miðflokkurinn er kannski andvígur samvinnu við Europol við brottflutning ISIS-liða frá Íslandi?

Gefi dómsmálaráðherra sér slíkar forsendur, bregst dómgreindin.