Afl Norður-Atlantshafseyja
Hann segir að semji Ísland, Færeyjar og Grænland sín á milli um fríverslunarsamning og sameini krafta sína þá séum „við í afar sterkri samningsstöðu gagnvart Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu“.
Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri Amaroq Minerals á Grænlandi, er í hópi þeirra Íslendinga sem hafa mesta reynslu af samstarfi við Grænland og af atvinnustarfsemi í landinu.
Eldur ritaði grein í Morgunblaðið á skírdag, 2. apríl, þar sem hann minnir á að Ísland, Grænland og Færeyjar séu ekki í Evrópusambandinu. Þau hafi hingað til ekki talið það þjóna hagsmunum sínum að vera innan vébanda sambandsins. Þau þurfi ekki að undirgangast regluverk Evrópusambandsins, sem mat þessara þjóða hefur hingað til verið að taki ekki tillit til sérhagsmuna þeirra og landfræðilegrar legu.
Eldur segir að ætli íslensk stjórnvöld að ræða við ESB verði þau að móta „sem sterkasta samningsstöðu“. Það megi til dæmis gera með því að tengjast fleiri ríkjum sem „hafa sömu hagsmuni og við Íslendingar“.
Danir hafi ríka hagsmuni á Norður-Atlantshafi og þeir geti ekki gætt hagsmuna sinna á Grænlandi án Íslands. Þá hafi Grænlendingar og Færeyingar að mestu sömu hagsmuni og við þegar það komi að varnarmálum, viðskiptum og lagaumgjörð.
Síðan nefnir Eldur vaxandi áhuga stórveldanna Bandaríkjanna og Kína auk Evrópusambandsins á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum. Hann rifjar upp strategískt gildi GIUK-hliðsins. Vegna innrásar Rússa í Úkraínu hafi orku- og öryggishagsmunir breyst hratt. Grænland hafi þegar skipað sér í lykilstöðu í umræðu um mikilvæg málm- og steinefni. Þá hafi viðhorf til mikilvægis siglingaleiða breyst.

Hann segir að semji Ísland, Færeyjar og Grænland sín á milli um fríverslunarsamning og sameini krafta sína þá séum „við í afar sterkri samningsstöðu gagnvart Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu“.
Grein sinni lýkur Eldur á þessum orðum:
„Kæra ríkisstjórn, byrjum á þeim sem skipta okkur mestu máli til að ná betri samningsstöðu bæði til vesturs og austurs – Grænlendingar, Færeyingar og Danir eru tilbúnir til viðræðna en bíða eftir okkur.“
Ég tek heilshugar undir þessa meginskoðun Elds enda hef ég oft í áranna rás undrað mig á því í ræðu og riti hve íslensk stjórnvöld hafa verið skeytingarlaus í þessu efni vegna gífurlegra sameiginlegra hagsmuna sem við íbúar Norður-Atlantshafseyjanna höfum að gæta. Þá er ljóst að áform Dana um stórauknar varnir Færeyja og Grænlands rætast ekki án náins samstarfs við íslensk stjórnvöld.
Af þessu tilefni vitna ég í grein mína í Morgunblaðinu í dag (4. apríl) þar sem vitnað er í ræðu sem Leó páfi XIV. flutti í Mónakó fyrir viku og áréttaði gildi smáríkja og sagði:
„Gjöf smæðarinnar og lifandi andlegur arfur bjóða yður að nýta velmegun yðar í þjónustu laga og réttlætis, sérstaklega á sögulegum tímapunkti þegar valdbeiting og kúgunarrökfræði skaða heiminn og stofna friðinum í hættu. Eins og þér vitið, þá eru það hinir smáu sem skapa söguna í Biblíunni!“