15.7.2021 10:05

Yfirboð spekúlants sósíalista

Þessi gasprari býður sig nú fram til þings þótt fyrir fáeinum árum segði hann slíkt ekki koma til álita enda hefði hann helst hæfileika til að leggja línur, semja boðskap og kynna hann.

Enn eitt fátæktarríki kommúnisma og sósíalisma er við það að gefa upp öndina, Kúba. Það gerist þó ekki friðsamlega eins og þegar höfuðvígið, Sovétríkin, hvarf úr sögunni. Almenningur efnir til mótmæla gegn harðstjórninni á Kúbu vegna skorts á nauðþurftum og lyfjum. Undanfarin ár hafa sósíalísk stjórnvöld í nágrannaríkinu Venezúela stutt við bakið á skoðanabræðrunum á Kúbu. Sá stuðningur er að engu orðinn vegna fátæktar og upplausnar í Venezúela. Þar eru mestu olíulindir heims sem nýtast þó ekki vegna niðurníðslu, framtaks- og stjórnleysis. Íranir smygla nú olíu til Venezúela!

Þegar þessar fréttir berast frá þjáðum þjóðum undir stjórn sósíalista kemur fram á völlinn umskiptingur til sósíalisma hér á landi, Gunnar Smári Egilsson, sem fram að hruni gekk erinda auðmanna, og boðar nú sósíalisma með þessum orðum:

„Fátækt er nokkuð sem stjórnvöld þröngva upp á tugir þúsunda fjölskyldna. Það er minnsta mál að hætta því. Lausnirnar hafa verið ljósar lengi, verið reyndar og sannað sig. Það eina sem vantar er meirihluti á Alþingi fyrir þeim. Kjósið rétt í haust. Ekki kjósa flokka sem vilja viðhalda fátækt.“

Þessi gasprari býður sig nú fram til þings þótt fyrir fáeinum árum segði hann slíkt ekki koma til álita enda hefði hann helst hæfileika til að leggja línur, semja boðskap og kynna hann.

Socialist-flagAf mörgu sem Gunnar Smári hefur tekið sér fyrir hendur er fátt vonlausara en að ná því í nafni sósíalisma sem Castro-bræðrum mistókst á Kúbu, að útrýma fátækt. Þetta mistókst á Kúbu þrátt fyrir dyggan stuðning frá Sovétríkjunum og Venezúela. Héðan voru meira að segja skipulagðar sósíalískar samstöðuferðir til að létta undir með kúbverskum bændum. Allt kom fyrir ekki. Í rúm 60 ár hafa Kúbverjar búið við skert frelsi og lífskjör til að hugsjónir sósíalista njóti sín í framkvæmd.

Það sem Gunnar Smári segir að „viðhaldi fátækt“ hér á landi yrði talið himnasending á Kúbu og í Venezúela. Ofríkisstjórnum er viðhaldið með lögregluvaldi og fangelsunum til að hindra að flokkar á borð við þá sem Gunnar Smári hefur í heitingum við hér á landi fái þrifist.

Til að fela raunverulegan tilgang stefnunnar sem Gunnar Smári boðar skreytir hann sig og hana með alls kyns gylliboðum eins og að 30.000 félagslegar íbúðir verði byggðar á næstu tíu árum.

Þarna gerir sósíalíski hugmyndafræðingurinn og frambjóðandinn ráð fyrir að hann geti látið reisa 3.000 félagslegar íbúðir ár hvert næstu 10 ár. Í skýrslu sem íbúðalánasjóður sendi frá sér í janúar 2019 sagði að í „grunnsviðsmynd íbúðaþarfagreiningarinnar [væri] þörf á fjölgun íbúða metin um 1.830 íbúðir á hverju ári á tímabilinu 2019-2040 til að vinna upp óuppfyllta íbúðaþörf og mæta undirliggjandi fjölgun heimila á tímabilinu“.

Allt annað sem frá Gunnari Smára kemur er þessu dæmalausa yfirboðamarki brennt. Vafasamari pappír hefur varla verið borin fyrir íslenska kjósendur en stefna sósíalíska hugmyndafræðingsins. Tímabært er að endurtaka gamla slagorðið: Varizt vinstri slysin!