21.5.2026 10:14

Vókismi Viðreisnar

Viðreisn setur stjórnmálalífið nú á annan endann með sérhagsmunakröfu sinni um ESB-þjóðaratkvæðagreiðsluna. Með flumbruganginum þar dregur hún ekki úr öfgunum í íslensku samfélagi.

Miðflokkurinn getur unað vel við niðurstöðuna í byggðakosningunum. Hann bauð fram í 19 sveitarfélögum og fékk 23 fulltrúa í sveitarstjórnum.

Í Reykjanesbæ fékk Miðflokkurinn einn mann kjörinn, Gunnlaug Kárason, og 11,2% atkvæða. Í dag (21. maí) verður formlega staðfest og kynnt samkomulag sem hann hefur gert við Vilhjálm Árnason, oddvita sjálfstæðismanna, um myndun meirihluta í bænum sem tekur við af þriggja flokka meirihluta Framsóknarflokks, Samfylkingar og Beinnar leiðar sem stjórnað hefur síðan 2022.

Sjálfstæðismenn unnu góðan sigur í Reykjanesbæ, fengu fimm bæjarfulltrúa af 11 og 39,2% atkvæða. Meirihlutinn sem nú hefur verið myndaður hefur rúm 50% kjósenda í Reykjanesbæ að baki sér. Viðreisn bauð þarna fram án þess að hafa erindi sem erfiði og fékk aðeins 5,2% atkvæða.

Vilhjálmur Árnason er alþingismaður og ritari Sjálfstæðisflokksins. Ákvörðun hans og annarra sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ um að taka upp samstarf við Miðflokkinn sýnir að allt tal um að ekki takist samstarf milli þessara flokka vegna einhverra fordóma eða slaufunar í anda vókisma, vælumenningar vinstrisinna, er algjörlega úr lausu lofti gripið.

Screenshot-2026-05-21-at-10.12.49Skjáskot af mbl.is. 20. maí 2026.

Viðreisn ýtir undir þennan vókisma núna þar sem hún telur sig hafa stöðu til að setja úrslitakosti. Þetta sést best í Reykjavík þar sem Hildur Björnsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna, vinnur nú að myndun meirihluta. Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, segist ekki getað unnið með Miðflokknum og stillir sér þar með upp með hinum ríkisstjórnarflokknum í borgarstjórn, Samfylkingunni. Þriðji stjórnarflokkurinn, Flokkur fólksins, þurrkaðist út í borgarstjórn í kosningunum.

Hér verður ekki reynt að greina þau vók-sjónarmið sem ráða afstöðu Bjargar en þvert á það frjálslyndi sem forysta Sjálfstæðisflokksins sýnir við val á samstarfsmönnum í sveitarstjórnum hefur formaður Viðreisnar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, bannfært Miðflokkinn. Hún sagði strax sunnudaginn 17. maí við mbl.is:

„Það er alveg skýrt að Viðreisn er ekki að mynda meirihluta með Miðflokknum af því að það er einfaldlega mikilvægt fyrir íslenskt samfélag að það myndist hér sterk, öflug, frjálslynd miðja sem einmitt dregur úr öfgunum í íslensku samfélagi og þar er Viðreisn.“

Viðreisn setur stjórnmálalífið nú á annan endann með sérhagsmunakröfu sinni um ESB-þjóðaratkvæðagreiðsluna. Með flumbruganginum þar dregur hún ekki úr öfgunum í íslensku samfélagi.

Þvert á móti skipar Viðreisn sér á jaðar stjórnmálanna og skilgreinir Miðflokkinn sem höfuðandstæðing á hinum jaðrinum. Viðreisn myndar ekki frekar en Miðflokkurinn neina frjálslynda miðju í íslenskum stjórnmálum. Þetta eru tveir jaðarflokkar við hlið Sjálfstæðisflokksins og innan hans takast á sjónarmið um með hvorum eigi að starfa þegar kemur að myndun meirihluta í sveitarstjórnum. Það hallar á Viðreisn.

Eitt af sérkennum Miðflokksins er að þeir sem koma fram fyrir hans hönd láta gjarnan eins og þeir séu fórnarlömb – ekkert vekur meiri gleði hjá vókistum.