Vistaskipti Ingvars og uppnám stjórnarsinna
Ég hallast að skoðun Eiríks og reisi mat mitt á fyrrgreindu uppnámi stjórnarsinna á Facebook. Viðbrögðin benda til þess að eftir brotthvarf Ingvars séu stjórnarsinnar alveg í öngum sínum vegna gífurlegs áfalls.
Þau tíðindi gerðust í gær (16. nóvember) að Ingvar Þóroddsson, sem hefur verið þingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi, sagði skilið við flokkinn og gekk til liðs við þingflokk sjálfstæðismanna.
Ingvar segir fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar og reynslu sína í síðustu kjördæmaviku hafa sannfært sig um að leiðir hans og Viðreisnar hafi skilið. Hann gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir að leggja áherslu á skattahækkanir í stað aðhalds, hagræðingar og verðmætasköpunar og telur þá stefnu ganga gegn kosningaloforðum Viðreisnar. Nefnir hann sérstaklega fyrirhugaða hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24%, aukin vörugjöld á bifreiðar og innleiðingu kílómetragjalds. Hann segir öflugt atvinnulíf forsendu velferðar og að ekki sé unnt að skattleggja þjóðina til velsældar. Ríkisstjórnin verði að sýna árangur í hagræðingu áður en hún auki álögur á fólk og fyrirtæki. Ingvar segist skilja vel vonbrigði þeirra í atvinnulífinu sem kusu Viðreisn en telji sig nú svikna, enda hafi hann sjálfur trúað á þær áherslur sem flokkurinn boðaði fyrir kosningar.
Allt eru þetta skýr málefnaleg rök þingmanns sem er nýkominn úr ferð um kjördæmi sitt og lítur síðan í eigin barm og metur hvernig hann geti best unnið að því að bæta hag umbjóðenda sinna. Ingvar telur sig einfaldlega sjá að stefna ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur stangist á við hag kjósenda og ákveður að snúa við henni baki.
Ingvar Þóroddsson (mynd: mbl,is/Karitas).
Það vekur undrun við lestur á Facebook hve heiftarlega margir stjórnarsinnar veitast að Ingvari og persónu hans en forðast að ræða þær málefnalegu ástæður sem hann gefur fyrir vistaskiptum sínum. Dæmi um orðbragðið má finna í athugasemd þar sem Ingvar er kallaður „fylliraftur“ og „skíta karakter“ og sakaður um að svíkja málstað sem hann hafi tekið að sér að verja. Slíkar svívirðingar segja ekkert um skattahækkanir, hagræðingu í ríkisrekstri eða önnur málefnaleg rök Ingvars fyrir ákvörðun sinni.
Þessar árásir bera þess merki að til þeirra sé gripið í fælingarskyni, það er til að segja öðrum stjórnarliðum sem hafa fengið sig fullsadda af þriggja flokka samstarfinu að þeir skuli hugsa sig tvisvar um þrái þeir að yfirgefa stjórnaraskútuna. Þeir muni einnig fá yfir sig dembu svívirðilegra athugasemda.
Kristrún Frostadóttir, sem hefur minna svigrúm en áður við landstjórnina, sagði að sér þætti „leiðinlegt“ að Ingvar hefði yfirgefið Viðreisn og stjórnarmeirihlutann en hún hefði ekki áhyggjur af afgreiðslu fjárlaga næsta árs. „Ég verð að segja alveg einlæglega að ég er pínu vonsvikin,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor sagði í fréttum ríkisútvarpsins og síðan í Kastljósi 16. nóvember að brotthvarf Ingvars væri „reiðarslag“ fyrir ríkisstjórnina en Eva H. Önnudóttir stjórnmálafræðiprófessor sagði í Spegli ríkisútvarpsins sama dag að brotthvarfið væri „bagalegt“ fyrir ríkisstjórnina.
Ég hallast að skoðun Eiríks og reisi mat mitt á fyrrgreindu uppnámi stjórnarsinna á Facebook. Viðbrögðin benda til þess að eftir brotthvarf Ingvars séu stjórnarsinnar alveg í öngum sínum vegna gífurlegs áfalls.
Frá því að ríkisstjórnin tapaði þjóðaratkvæðagreiðslunni sem efnt var til að kröfu Viðreisnar til að árétta tilveru flokksins hef ég lýst þeirri skoðun að tími flokksins sé liðinn. Ríkisstjórnin hafi ætlað að lifa út kjörtímabilið á sigri í þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Nú er spurning hvað dauðastríð Viðreisnar og stjórnarinnar verður langt.