Vinstrið vill engu breyta
Að borgarfulltrúi sem hefur staðið að meirihluta í borgarstjórn frá því í febrúar 2025 undir forystu Heiðu Bjargar Hilmisdóttur (Samfylkingu) skuli velja þetta sem fyrirsögn á grein sína gerir hana marklausa.
Lokavikan fyrir kjördaginn 16. maí er hafin og Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarstjóraefni og oddviti Vors til vinstri, skrifar grein í Morgunblaðið (11. maí) undir fyrirsögninni: Ábyrg fjármálastjórn.
Að borgarfulltrúi sem hefur staðið að meirihluta í borgarstjórn frá því í febrúar 2025 undir forystu Heiðu Bjargar Hilmisdóttur (Samfylkingu) skuli velja þetta sem fyrirsögn á grein sína gerir hana marklausa.
Hvað sem segja má um notkun Heiðu Bjargar á opinbera innkaupakortinu síðan Sanna Magdalena gerði hana að borgarstjóra má fullyrða að viðbrögð borgarstjórans við gagnrýninni hafi ekki verið traustvekjandi. Nú er komið í ljós að orðrómur og ábendingar frá samfylkingarfólki í forvalsbaráttu flokksins í ársbyrjun leiddu til þess að notkun þessa korts var upplýst. Var það áður eða eftir að armur Heiðu Bjargar sakaði Pétur Marteinsson um lóðabrask og borgarstjóri óskaði eftir að öll gögn um það hjá borginni yrðu rannsökuð?
Þau eru nú saman í tveimur efstu sætum Samfylkingarinnar á listanum í Reykjavík. Trúir einhver að þau starfi saman að kosningum loknum?
Sanna Magdalena Mörtudóttir lofar ábyrgri fjármálastjórn undir sinni stjórn með stuðningi Heiðu Bjargar og annarra vinstrisinna í borgarstjórn. Hún gerir út á augljósan trúnaðarbrest milli efstu manna á lista Samfylkingarinnar og veðjar jafnframt á Flokk fólksins og Viðreisn.

Þeir sem nú eru í framboði fyrir Viðreisn birta myndir af sér á hvolfi og lofa þannig umskiptum frá því sem verið hefur þegar Viðreisn hefur skipað sér með vinstri flokkunum. Veikari verða skilaboðin ekki um nýja stefnu en að birta ljósmynd á hvolfi. Að sjálfsögðu mun Viðreisn ekki slíta tengslin við samstarfsflokkana í ríkisstjórn í borgarstjórn Reykjavíkur.
„Kjörnir fulltrúar bera ríka ábyrgð á því að ráðstafa fjármunum úr sameiginlegum sjóðum með skynsömum hætti þannig að þeir nýtist heildinni sem best,“ segir Sanna Magdalena, stuðningskona Heiðu Bjargar, í Morgunblaðsgreininni og einnig: „Vinstrið veit að það þarf að fara vel með almannafé.“
Þessa fullyrðingu rökstyður hún með því að borgin eigi ekki að selja bílastæðahús af því að einkaaðilar muni reka þau með hagnað í huga. Þrenging vinstrisins gegn bílastæðum hefur ýtt undir tilvist fjölmargra einkafyrirtækja sem hagnast á notkun bíleigenda á smáritum (öppum) við innheimtu bílastæðagjalda við sífellt fleiri götur og á opnum svæðum. Vinstrið hefur breytt sífellt fleiri götum í gróðalind fyrir innheimtuaðila. Þeir þurftu ekki að kaupa nein hús til að græða á bílastæðum.
Markviss skortur á bílastæðum og opinber bílastæðahús sem megi breyta í félagsmiðstöðvar þegar fjölskyldubílnum hefur verið útrýmt var hluti af opinberu stefnuskjali vinstrisins á kjörtímabilinu.
Í grein sinni boðar Sanna Magdalena hvergi bættan opinberan rekstur. Könnun sýnir að hæstur árlegur kostnaður við sorpþjónustu sé í Reykjavík, 85 þúsund kr., en ánægja með sorphirðuþjónustu sé minnst meðal Reykvíkinga.
Það er þetta óbreytta ástand á öllum sviðum sem Sanna Magdalena boðar undir sinni stjórn á næsta kjörtímabili með stuðningi Viðreisnar á hvolfi.