26.10.2026 9:28

Viðreisnarvandi í Landsvirkjun

Ekki er um það deilt að Hörður hætti vegna breyttra stjórnarhátta. Nú er upplýst að án hans ræddi stjórnin fundarsköp og stjórnarhætti.

Þegar forstjóri Landsvirkjunar ákveður að láta af störfum eftir sautján ár vegna ágreinings um stjórnarhætti dugir ekki að ræða hvað samkomur stjórnarmanna heita. Spurningin er hvað þar fór fram og hvers vegna traustið brast.

Hörður Arnarson, fráfarandi forstjóri, lýsti því í samtali á Sprengisandi sunnudaginn 25. október að stjórnarfundir Landsvirkjunar hefðu verið haldnir án þess að honum væri boðið. Hann hefði einnig verið beðinn um að víkja þegar ræða ætti rekstur fyrirtækisins. Þá hefðu bæði stjórnin og fjármálaráðuneytið hafnað ósk hans um fund með ráðuneytinu um mikilvæg mál.

Brynja Baldursdóttir stjórnarformaður Landsvirkjunar segir að ekki hafi verið haldnir stjórnarfundir án Harðar. Stjórnarmenn hafi snætt saman hádegisverð og rætt fundarsköp og samstarf sín á milli. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra tók að morgni mánudagsins 26. október undir þessa skýringu og lýsti fullu trausti á stjórninni í samtali í morgunþætti Bylgjunnar.

E6A56DC6E1503E84E34873BA2F45A3993AE3ED0C790330BB5A2BE74F8CB9F47C_713x0

Þarna stendur orð gegn orði. Ráðherrann skipar stjórn Landsvirkjunar og fer með hlutabréf ríkisins í fyrirtækinu. Hann leysir vandann sem uppi er með því að segja að ríkið banni ekki fólki að hittast. Enginn hefur haldið því fram. Á hinn bóginn er bent á að í lögum um Landsvirkjun er mælt fyrir um samskipti stjórnar og forstjóra. Álitaefnið er hvort umræður um málefni fyrirtækisins hafi færst á vettvang þar sem forstjórinn fékk ekki að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

Jón Björn Hákonarson, fyrrverandi stjórnarformaður Landsvirkjunar, segir í samtali við mbl.is að engin hefð sé fyrir hádegishittingi stjórnar. Á rúmlega áratugar stjórnarsetu hans hafi forstjórinn verið boðaður á fundi stjórnar. Árlegur fundur stjórnarinnar um mat á eigin störfum hafi verið á fundaáætlun og farið fram með vitund forstjórans. Honum þykir sérstakt að nú þurfi ítrekaðar samkomur án stjórnenda til að ræða stjórnarhætti og samstarf.

Þessi lýsing gefur tilefni til að krefjast skýrari svara. Hvað kallaði á breytt verklag? Ekki er um það deilt að Hörður hætti vegna breyttra stjórnarhátta. Nú er upplýst að án hans ræddi stjórnin fundarsköp og stjórnarhætti. Hvernig var tryggt að umræður þar kæmu ekki í stað skoðanaskipta á stjórnarfundum?

Daði Már segir umboð stjórnarinnar skýrara en áður og telur breytinguna til bóta. Jafnframt neitar hann að stjórnin hafi tekið sér of mikil völd. Ágreiningurinn snúist þó, að hans sögn, um hvernig ákvarðanir séu teknar og hver áhrif stjórnarinnar séu.

Þetta eru efnisleg atriði um stjórnun fyrirtækis. Með því að kalla ágreininginn formlegan hverfur hvorki vægi hans né ábyrgð þeirra sem að honum koma.

Hörður segir að áður hafi tekist að leysa ágreining við stjórnir og ráðherra og halda áfram á grundvelli trausts. Nú tókst það ekki. Fjármálaráðherrann telur samt nýja fyrirkomulagið breytingu í rétta átt.

Daði Már Kristófersson varaformaður Viðreisnar hefur nú blandað sér beint í þessa undarlegu deilu í æðstu stjórn Landsvirkjunar sem snýst greinilega um miklu meira en óformlegan hádegishitting enda gekk fráfarandi forstjóri á fund forsætisráðherra til að dramatísera afsögn sína eins og hann hefur haldið áfram að gera.

Um helgina hélt Jón Gnarr þingmaður Viðreisnar áfram að lýsa trúnaðarbresti gagnvart forystu Viðreisnar. Hann telur flokkinn í krísu vegna klíkumyndunar, ákvarðanafælni og uppsafnaðs samskiptavanda.

Sami vandi virðist blasa við í Landsvirkjun undir forræði Viðreisnar.