Viðreisn með Vori til vinstri
Vinstri armur Samfylkingarinnar undir forystu Heiðu Bjargar, Vor til vinstri og sósíalistar, taka höndum saman eftir kosningarnar 16. maí og þá líklega helst með Viðreisn og Flokki fólksins.
„Sjálfstæðisflokkurinn er eina von þeirra sem vilja breytingar í Reykjavík. Það sýnir reynslan. Atkvæði greitt öðrum flokkum hefur reynst atkvæði greitt Samfylkingu kosningar eftir kosningar,“ segir í upphafi greinar sem Hildur Björnsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur, skrifar í Morgunblaðið í dag (7. maí).
Reynslan sýnir að þetta er rétt greining.
Eftir kosningarnar 14. maí 2022 var nýr meirihluti Samfylkingar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar kynntur í Elliðaárstöðinni 6. júní 2022. Dagur B. Eggertsson Samfylkingu varð borgarstjóri þar til í janúar 2024 þegar Einar Þorsteinsson Framsóknarflokki en hann sleit samstarfinu í febrúar 2025.
Heiða Björg Hilmisdóttir Samfylkingu varð svo borgarstjóri skömmu síðar með stuðningi Samfylkingar, Flokks fólksins, Pírata, Sósíalista og Vinstri grænna. Sósíalistinn Sanna Magdalena Mörtudóttir varð forseti borgarstjórnar og Líf Magneudóttir formaður borgarráðs.

Við prófkjör í Samfylkingunni fyrr á þessu ári laut Heiða Björg í lægra haldi fyrir Pétri Marteinssyni sem nú er borgarstjóraefni flokksins. Baráttan var hörð og persónuleg. Stuðningsmenn Heiðu Bjargar sóttu að Pétri með ásökunum um fasteignabrask. Þá grær seint um heilt og Heiða Björg ákvað að taka 2. sætið á lista Samfylkingarinnar til að ná sér niðri á Pétri.
Sanna Magdalena og Líf Magneudóttir skipa tvö efstu sæti á framboðslistanum Vor til vinstri í Reykjavík. Sanna Magdalena varð pólitískt landlaus eftir upplausn innan flokks sósíalista en hún og Líf í öðrum vinstri flokki í vanda, VG, töldu óforsvaranlegt að Reykvíkingar fengju ekki tækifæri til að kjósa sig og stofnuðu því nýtt framboð í mars 2026 undir heitinu Vor til vinstri. Til vinstri við það er síðan Sósíalistaflokkurinn.
Vinstri armur Samfylkingarinnar undir forystu Heiðu Bjargar, Vor til vinstri og sósíalistar, taka höndum saman eftir kosningarnar 16. maí sjái þeir von til þess að mynda meirihluta og þá líklega helst með Viðreisn og Flokki fólksins.
Auglýsingar frá Flokki fólksins fyrir kosningarnar núna eru allar í vinstri anda og koma greinilega úr smiðju gamla samfylkingarmannsins Heimis Más Péturssonar sem hefur öll kynningar- og kosningamál flokksins á hendi sér. Nái flokkurinn að krækja sér í borgarfulltrúa verður hann sjálfkrafa innvígður í vinstri hópinn í borgarstjórninni.
Viðreisn er lýst á þann veg að hún verði í lykilstöðu við meirihlutamyndun í borgarstjórn að kosningum loknum. Það verður ekki á valdi oddvita flokksins í borgarstjórn, Bjargar Magnúsdóttur, að velja samstarfsflokk. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir flokksformaður mun minna hana á að Viðreisn hafi verið stofnuð til að koma Íslandi í ESB og það náist ekki nema með samvinnu við Samfylkingu og Flokk fólksins. Þeir flokkar séu því efstir á samstarfslistanum.
Heiða Björg hefur í hendi sér að setja Pétri Marteinssyni afarkosti að kosningum loknum. Hann verður ekki borgarstjóri með hennar atkvæði frekar velur hún Sönnu Magdalenu sem borgarstjóra ríkisstjórnarflokkanna og Vors til vinstri.