Verkstjórn Flokks fólksins
Sigurjón Þórðarson, slær um sig með yfirlýsingum um að þing sitji fram í ágúst. Hver er verkstjórinn í raun? Er verkstjórnin hjá Flokki fólksins?
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti stefnuræðu ríkisstjórnar sinnar 10. febrúar 2025 og sagði að nú yrðu verkin látin tala. Samstiga ríkisstjórn myndi taka upp nýtt verklag. Það birtist með ýmsum hætti:
Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar væri stutt og skýr, reist á trausti í stað tilrauna til að binda niður allt og alla með málalengingum og orðskrúði. Stjórnin vissi að verkin töluðu. Í því skyni hefðu fyrstu vikur stjórnarinnar, hún var mynduð 21. desember 2024, verið notaðar til að virkja stjórnkerfið og byrja á sjálfum ráðherrunum. Þeir hefðu strax gefið tóninn og hrist upp í hlutunum.
Þá birtist nýtt verklag í því hvernig stjórnarflokkarnir ynnu saman, með reglulegum sameiginlegum þingflokksfundum hjá stjórnarflokkunum. Hún hefði átt fundi einslega með hverjum einasta ráðherra til að stilla upp sterkri þingmálaskrá fyrir vorþingið, sem væri trúverðug og sóaði ekki dýrmætum tíma í mál sem myndu aldrei komast til framkvæmda.
Það væri full eining í þessari ríkisstjórn um öll þau mál sem birtust í þingmálaskrá sem fylgdi stefnuræðunni. Það væri ánægjulegt eftir það sem á undan hefði gengið og lofaði góðu fyrir uppbyggilegt starf á alþingi í vor.
Inga Sæland.mbl.is/María
Í lok ræðunnar sagði forsætisráðherra:
„Ég er stolt af nýrri ríkisstjórn sem er ólík nokkurri annarri ríkisstjórn í sögu þjóðarinnar [...] vegna þess að við erum kraftmikil og samstiga ríkisstjórn með sterkt umboð til breytinga, þar sem tveir af þremur stjórnarflokkum voru stofnaðir árið 2016, fyrir níu árum. Og annar þessara flokka var stofnaður á stofugólfinu hjá stoltum öryrkja, baráttukonu á miðjum aldri, sem er lögblind og fékk ekki agnarögn af forréttindum í meðgjöf en skellti sér á skólabekk um fimmtugt til að læra lögfræði og hefur þegar náð ótrúlegum árangri í sinni baráttu fyrir tekjulægstu hópa samfélagsins, öryrkja og eldra fólk. Og nú er hún hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra. Hvar annars staðar en á Íslandi? Hvar annars staðar en á Íslandi gæti þetta gerst? Sýnir þetta ekki hvers konar samfélag við eigum hérna saman og hvað við höfum að verja? Sama hvað hver segir og burt séð frá pólitískum skoðunum þá megum við öll vera hreykin af þessu samfélagi sem við höfum byggt og vera stolt af Ingu Sæland. Þetta er stórt og við höfum verk að vinna.“
Inga Sæland var greinilega rósin í hnappagati ríkisstjórnarinnar 10. febrúar 2025. Hún hefur fölnað síðan og flokki Ingu er ekki hampað á sama hátt og áður nú þegar dregur að því að unnt verður að meta árangur vorþingsins undir verkstjórn Kristrúnar.
Stjórnin nýtur góðs stuðnings almennings. Hún hefur byr í seglin en hættuleg sker leynast víða. Þau eru flest búin til af stjórnarherrunum sjálfum vegna þess hvernig að verki er staðið. Nýju vinnubrögðin sem forsætisráðherra boðaði einkennast af hroðvirkni og skorti á þolinmæðinni sem þarf til að skapa víðtæka sátt um málefni.
Ábendingar um leiðir til sátta um auðlindaskatt eða strandveiðar verða til þess að formaður þingnefndarinnar, Sigurjón Þórðarson, slær um sig með yfirlýsingum um að þing sitji fram í ágúst. Hver er verkstjórinn í raun? Er verkstjórnin hjá Flokki fólksins?