18.3.2026 9:32

Verðbólgufirring Kristrúnar

Þetta er enn ein falleinkunnin sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur fær í efnahagsmálum. Ríkisstjórnin starfar eins og kunnugt er eftir „plani“ forsætisráðherra í efnahagsmálum.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í morgun (18. mars) að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 7,50%. Þrír nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en tveir vildu hækka meginvexti um 0,5 prósentur.

Þetta er enn ein falleinkunnin sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur fær í efnahagsmálum. Ríkisstjórnin starfar eins og kunnugt er eftir „plani“ forsætisráðherra í efnahagsmálum.

Í tilkynningu peningastefnunefndar segir að flestir hagvísar beri nú vitni um hægari efnahagsumsvif en þrátt fyrir það hafi verðbólga aukist á ný og mælist nú 5,2% annan mánuðinn í röð. Lýsing nefndarinnar er til marks um hættulegt efnahagaástand, vítahring, sem hefur fest í sessi og með „planinu“ hefur ekki tekist að rjúfa þrátt fyrir sleggju forsætisráðherrans.

„Undirliggjandi verðbólga hefur aukist og ekki verið meiri í ríflega ár. Verðbólguvæntingar eru jafnframt teknar að hækka,“ segir peningastefnunefnd.

Screenshot-2026-03-18-at-09.29.13Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, fornaður peningastefnunefndar (mynd: mbl/Eggert Jóhannesson).

Stýrivaxtahækkunin fellur að spádómum flestra sem látið hafa ljós sitt skína. Þeir sérfræðingar minna á að hækkanir á eldsneyti vegna stríðsátaka á Persaflóa hafi ekki enn birst hér. Í hagsjá Landsbanka Íslands segir að ágústmánuður líti ekki vel út í verðbólgumælingum. Er vísað til þess að þá verði almyrkvi á sólu og margir vilji koma hingað til að sjá hann með eigin augum. Gera megi ráð fyrir áhrifum þess á verðlag í ágúst, m.a. á flugfargjöld og verð á gistiþjónustu.

Lögregla og almannavarnir hafa búið sig undir aukið álag vegna sólmyrkvans og komu mannfjölda hingað í tilefni af honum. Hvort myrkvinn hafi verið settur inn í „plan“ forsætisráðherra um stjórn efnahagsmála er óljóst. Hitt er greinilegt að ein af skýringunum á því að ríkisstjórnin ákvað að hafa ESB-atkvæðagreiðsluna 29. ágúst er að fram yfir dag sólmyrkans 12. ágúst beinist athygli mjög að honum og eftirleik hans.

Í Morgunblaðinu í dag birtist viðtal við Kristrúnu forsætisráðherra sem tekið var eftir ríkisstjórnarfund í gær. „Við erum með nær ekkert atvinnuleysi meðal Íslendinga en með 10% atvinnuleysi meðal fólks sem kemur að utan til að vinna,“ segir hún.

Líklega er þetta í fyrsta sinn sem forsætisráðherra talar á þennan hátt um þá stöðu sem skapast hefur á vinnumarkaði. Orðin kalla á að gangskör sé gerð að því að rannsaka skráningar í þjóðskrá og atvinnuleysisskrá til að ganga úr skugga um að ekki sé gert út á félagslega kerfið hér í skjóli rangra skráninga.

Til að réttlæta að ekki sé hróflað við „planinu“ afsakar Kristrún öfugþróun efnahagsmálanna með þeim orðum að nú þurfi samstillt átak til að ráðast gegn því „að í tíð síðustu ríkisstjórnar var 0% hagvöxtur á mann. 0% hagvöxtur á mann! Það er fréttin sem þú ættir að skrifa. Þess vegna finnum við fyrir undirliggjandi þenslu og á því erum við að taka.“

Leiðbeiningin til blaðamannsins um fréttina sem hann ætti að skrifa er til marks um veruleikafirringu. Peningastefnunefnd víkur ekki að þessu í tilkynningu sinni en segir að mótun peningastefnunnar muni sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.