Vegið að sérsveitinni
Með því að veikja sérsveitina er með öðrum orðum vegið að þeim hlekk löggæslunnar sem þarf að vera sterkastur til að tryggja öryggi liðsheildarinnar sem myndar allan styrk lögreglunnar.
Um miðjan október birti Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé grein á Vísi um greiningu hugveitunnar Vörðu um álagið á sérsveit ríkislögreglustjóra.
Sólrún vann að nýrri greiningu Vörðu, hugveitu um þjóðaröryggi, um sérsveitina þar sem bent er á að útköll hennar hafi farið úr 56 árið 2014 í 424 árið 2025. Vorið 2025 hafi starfandi sérsveitarmenn verið 46, jafnmargir og árið 2018. Tillögur Vörðu til umbóta eru einfaldar: Að tryggja fjármögnun til að manna þau tíu stöðugildi sem þegar hafa verið heimiluð og vinna samhliða heildarmat og langtímaáætlun um mönnun og uppbyggingu sveitarinnar.
Sérsveitarmenn að störfum (mynd: mbl/Eggert Jóhannesson).
Síðan hafa ýmsar fréttir verið fluttar um stöðu sérsveitarinnar sem bera því miður allar með sér að hún njóti einskis forgangs hjá ríkisstjórn eða dómsmálaráðherra.
Tveir fyrrverandi yfirlögregluþjónar sem nú sitja á Alþingi, Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknar, og viðreisnarmaðurinn Grímur Grímsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segja skoðun sína á andvara- og aðgerðaleysinu gagnvart sérsveitinni í Morgunblaðinu í dag (6. nóvember).
Blaðið hefur undanfarið sagt fréttir af því að sérsveitin sé ekki aðeins undirmönnuð heldur sé svo nærri búnaði hennar gengið að sérsveitarmenn hafi ekki önnur farartæki en sín eigin til að sinna útköllum.
Stefán Vagn tilheyrði sérsveitinni í sjö ár og segir við blaðamann: „Þegar ég var í þessum verkefnum var fjárhagurinn oft knappur en að setja sérsveitarmenn í útköll á einkabílum er náttúrlega grafalvarlegt mál.“
Hann segir engan vilja vera án sérsveitarinnar en nú sé komið að því „að taka ákvörðun um hvort menn vilji hafa þessa sveit til taks eða ekki“. Liðsmenn sveitarinnar séu sendir „í erfiðustu, hættulegustu og flóknustu verkefnin sem lögreglan tekur að sér“.
Með því að veikja sérsveitina er með öðrum orðum vegið að þeim hlekk löggæslunnar sem þarf að vera sterkastur til að tryggja öryggi liðsheildarinnar sem myndar allan styrk lögreglunnar.
Grímur Grímsson segir: „Þetta er sá partur löggæslunnar sem við ætlumst til að takist á við erfiðustu útköllin og því er gríðarlega mikilvægt að vel sé að þeim búið.“
Í fyrrnefndri grein leggur Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé áherslu á að fjölga stöðugildum í sérsveitinni um tíu en jafnframt þurfi að vinna langtímaáætlun um uppbyggingu sérsveitarinnar. Áætlunin verði að ná yfir fleiri en eitt fjárlagaár og tengjast heildstæðri varnar- og öryggisstefnu Íslands. Þar verði einnig að meta hvaða fjárfestingar falla undir 1,5 prósenta ramma NATO.
Þrír ráðherrar Viðreisnar koma beint að ákvörðunum um ráðstöfun á 1,5% af vergri landsframleiðslu til varnartengdra verkefna samkvæmt loforði í NATO.
Allt gagnsæi skortir um ráðstöfun þess fjár. Þar ætti sérsveitin að njóta forgangs. Er það svo? Þingmenn fá ekki upplýsingar og því síður almenningur. Það yrði mikilvægt skref til opinnar umræðu um öryggismál þjóðarinnar að hætta pukrinu við meðferð þessara fjármuna.