Var nei við ESB já við Pútín?
Vilja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og stuðningsmenn hennar halda því fram að einhvers konar Rússagælur hafi falist í því að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni?
Lúðvík Bergvinsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, birti 8. nóvember grein á Vísi undir fyrirsögninni „Harmsaga ævi minnar“. Þar gerir hann persónu Ólafs Ragnars Grímssonar að viðfangsefni, lýsir meintri viðurkenningarþörf hans og rekur stjórnmálaferilinn til stuðnings þeirri mynd sem hann vill draga upp. Inn í frásögnina fléttar hann andstöðu Ólafs Ragnars við ESB-aðild og meinta afstöðu hans til Rússlands og Pútíns.
Með því að tengja þannig saman ólík ágreiningsefni er lesandanum boðið að líta á andstöðu við ESB-aðild sem hluta af tortryggilegri afstöðu til samstarfs vestrænna ríkja. Þar er farið úr umræðu um efni og niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar yfir í dylgjur um hverjum sú niðurstaða þjóni.
Lúðvík segir ekki berum orðum að nei við ESB hafi verið stuðningsyfirlýsing við Pútín. Samsetning greinarinnar gefur þó tilefni til að spyrja hvort það sé sú hugmynd sem hann vilji skilja eftir hjá lesendum. Telur Lúðvík það málstað sínum til framdráttar að gefa til kynna að einhvers konar Rússagælur hafi falist í því að hafna aðildarviðræðum? Og tekur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra undir þessa samtengingu í vörn hans fyrir hana?
Sé það ætlunin er um alvarlega tilraun til að afvegaleiða umræðuna að ræða.
Lúðvík Bergvinsson (mynd;mbl.is)
Afstaða mín er skýr. Rússland er árásarríki og Úkraínumenn eiga rétt á stuðningi við varnir sjálfstæðis síns og landsvæðis. Öryggi Íslands ræðst af aðildinni að NATO, varnarsamstarfinu við Bandaríkin og samvinnu við nágranna okkar og bandamenn. Ekkert af þessu krefst aðildar Íslands að ESB.
Þeir sem telja annað verða að sýna fram á það. Þeir geta ekki komið sér undan þeirri rökræðu með því að tengja andstæðinga sína við rússneska ráðamenn. Þarna er um að ræða grundvallaratriði sem Lúðvík sneiðir hjá. Málstaður stendur eða fellur með rökum sínum. Hann verður ekki hrakinn með persónulýsingu á einum þeirra sem styðja hann.
Lúðvík rifjar upp afstöðu Ólafs Ragnars til EFTA, NATO og EES og lætur að því liggja að viðvaranir hans vegna ESB séu enn ein útgáfan af sömu sögu. En aðild að þessum samtökum og samningum felur í sér ólíkar skuldbindingar. Stuðningur við NATO og EES er engin mótsögn við andstöðu við ESB-aðild. Þvert á móti er það einmitt afstaða margra okkar að hagsmunum Íslands sé best borgið með þessu samstarfi án aðildar að Evrópusambandinu.
Það var hlutverk já-sinna að sannfæra kjósendur um að önnur leið væri betri. Það tókst ekki. Þá þurfa þeir að horfast í augu við eigin málatilbúnað, forsendur atkvæðagreiðslunnar og afstöðu þjóðarinnar. Þeir geta ekki talið sig hafa siðferðilega yfirburði eftir ósigurinn með því að sveipa niðurstöðuna grunsemdum um hollustu við Pútín.
Þorgerður Katrín hefur sem utanríkisráðherra fullan rétt til að gagnrýna ummæli um Rússland. Henni ber þá að gera skýran greinarmun á þeirri gagnrýni og ágreiningi um ESB-aðild. Sama krafa á við um Lúðvík þegar hann tekur upp vörn fyrir hana. Sé þessum málum blandað saman til að gera niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar tortryggilega er verið að færa umræðuna frá pólitískri ábyrgð þeirra sem töpuðu yfir í ásakanir á hendur þeim sem höfnuðu tillögu þeirra.
Vilja þau halda því fram að nei-ið hafi þjónað Pútín? Þá verða þau að segja það skýrt og standa fyrir máli sínu. Dylgjur í skjóli persónulegra árása á fyrrverandi forseta duga ekki.
Þjóðin sagði nei við ESB-viðræðum. Hún sagði ekki já við Pútín. Þeir sem töpuðu atkvæðagreiðslunni verða að gera upp eigin málatilbúnað í stað þess að gera afstöðu kjósenda tortryggilega.