Vanlíðan Viðreisnar
Það má átta sig á líðan forystusveitar Viðreisnar með því að lesa neyðarópin á vefmálgagni flokksins, Eyjunni/DV.is, þar sem reglulega birtast nafnlausar níðgreinar til varnar forystu flokksins.
Það má átta sig á líðan forystusveitar Viðreisnar með því að lesa neyðarópin á vefmálgagni flokksins, Eyjunni/DV.is, þar sem reglulega birtast nafnlausar níðgreinar til varnar forystu flokksins. Þær eru ritaðar af vanstillingu einhvers sem telur það höfða til lesenda sinna að bjóða þeim sem mesta lágkúru.
Nú fer nafnleysinginn hamförum yfir því að fréttir skuli sagðar í Morgunblaðinu af stjórnarháttum Landsvirkjunar. Þeir stuðluðu að brottför Harðar Arnarsonar úr forstjórastóli með samspili fjármálaráðherra og stjórnar fyrirtækisins.
Við blasir að ætlunin var að gera sem minnst úr afsögn Harðar og breiða yfir allt sem gerðist á bak við tjöldin með því að gefa til kynna að ráðabruggið sýndi aðeins ólík viðhorf til „stjórnarhátta“ og „hádegishittingur“ stjórnarmanna hefði bara verið upphitun fyrir stjórnarfundi. Allt annað kemur í ljós eftir því sem nánar er skoðað. Nú snýst málið um að aðalleikendurnir sem hröktu Hörð á brott sitja undir ásökunum um lygar, meira að segja í ræðustól alþingis.
Huglausa nafnleysingjanum á Eyjunni/DV er sérstaklega ljúft að verja málstað þeirra sem vega að öðrum úr launsátri og láta síðan eins og þeir hafi ekki neitt óhreint mjöl í pokahorninu. Helst mætti ætla af ákafanum í vörninni fyrir Viðreisn um þessar mundir að nafnleysinginn hafi sjálfur staðið í þeim sporum að verja vonlausan eigin málstað – og kannski snýst allur óhróður hans einmitt um það. Hann sé bara að vinna fyrir kaupinu sínu hjá eiganda miðilsins sem var í hópi stofnenda Viðreisnar fyrir 10 árum.

Í Morgunblaðinu í dag (7. nóv.) kynnir Guðni Ágústsson, fyrrv. ráðherra, lesendum blaðsins skoðanir helsta hugmyndafræðings Viðreisnar, Þorsteins Pálssonar, fyrrv. ráðherra og ritstjóra, sem skrifar vikulega hugvekju á Eyjuna/DV. Guðni segir að eftir að hafa tapað í þjóðaratkvæðagreiðslunni hafi Þorsteinn dregið „fána hefndarinnar“ að húni.
Þorsteinn trúi „því að afstaða bænda hafi ráðið úrslitum og tilgreinir kjörorð þeirra sem hafi sigrað hjörtu þjóðarinnar“. Sakar Þorsteinn forystu bænda um að hafa gengið vanbúna til kosningaþátttöku. Þetta er alröng kenning eins og Guðni áréttar og bendir á að forystumenn bænda hafi gaumgæft málið „af vandvirkni“ og gefið „sér tíma til að skoða hvað innganga í ESB þýddi fyrir landbúnaðinn og matvælaframleiðslu landsins“.
Hver sem er gat fylgst með því hvernig að verki var staðið. Á búnaðarþingi vorið 2026 var ákveðið að kjósa sérstaka nefnd til að skoða ESB-málið frá sjónarhóli bænda. Í ágúst var síðan efnt til aukabúnaðarþings þar sem afstaða var tekin gegn ESB-aðild af öllum þorra þingfulltrúa. Auk þess var efnt til sérstaks málþings í tengslum við aukaþingið þar sem þrír norrænir sérfræðingar ræddu ESB og landbúnaðarmál.
Það má fullyrða að engin almannasamtök hafi gengið jafn skipulega til verks við mótun ESB-stefnu og bændasamtökin.
Það er álíka undarlegt að Viðreisnarforystan leggi lykkju á leið sína til að níða forystu bænda og að nafnlausi hugleysingi Viðreisnar vegi nú að þeim sem benda á ófremdarástandið sem varaformaður Viðreisnar er ábyrgur fyrir í Landsvirkjun.