Vandræðafrumvarp Viðreisnar
Augljóst er að við gerð frumvarpsins var illa staðið að öllum frágangi, samráði innan stjórnkerfisins og útreikningum. Ekki bætir svo rausið í Sigurjóni Þórðarsyni úr skák.
Viðreisnarráðherrarnir, Hanna Katrín Friðriksson og Daði Már Kristófersson, héldu svo illa á smíði frumvarpsins um veiðigjöldin að það sem þau kölluðu „leiðréttingu“ gjaldtökunnar reyndist hrákasmíð. Síðan hafa þingmenn og opinberir embættismenn sem ber lögum samkvæmt að veita óhlutdræga ráðgjöf leiðrétt „leiðréttinguna“. Þá er ljóst að ráðherrar hafa afflutt ráð sérfræðinga eða sett þau í búning sem þjónar pólitískum markmiðum þeirra.
Til að breiða yfir vandræðaganginn og óvönduðu vinnubrögðin senda síðan ráðuneyti Hönnu Katrínar og Daða Más, ásamt tveimur undirstofnunum, frá sér opinbera yfirlýsingu á vef stjórnarráðsins. Þar er staðfest að vitlausir útreikningar fylgdu frumvarpinu þegar það var lagt fram á alþingi. Var það vegna „mismunandi forsendna“ og „ólíkra gagna“. Sagt er í yfirlýsingunni að nú sé tryggður „sameiginlegur skilningur“ um aðferðafræðina.
Í lok þessarar játningar á mistökum við gerð frumvarpsins segir að atvinnuvegaráðuneytið (ráðuneyti Hönnu Katrínar) og starfsfólk þess hafi „upp á síðkastið sætt alvarlegum ásökunum í tengslum við þetta mál, m.a. um að hafa reynt að afvegaleiða löggjafann og að hafa óeðlileg afskipti af starfsemi stofnana ríkisins“. Lokaorðin eru að slíkar ásakanir séu „litnar mjög alvarlegum augum og [vísi] ráðuneytin þeim alfarið á bug“.
Augljóst er að við gerð frumvarpsins var illa staðið að öllum frágangi, samráði innan stjórnkerfisins og útreikningum. Þetta afvegaleiddi ekki aðeins löggjafann heldur mótaði allar umræður um frumvarpið sem einkenndust af því að þeir sem vönduðu vinnu sína meira en ráðherrarnir vissu að farið var með staðlausa stafi.
Það er furðulegt að breyta réttmætri gagnrýni á slík vinnubrögð í „alvarlegar ásakanir“ í garð embættismanna ráðuneytis í stað þess að ráðherrann axli ábyrgðina. Undan henni verður ekki skotist hvort sem ráðuneytisstarfsmenn eða undirstofnanir á að nota sem skjöld.
Það eru Viðreisnarráðherrarnir tveir sem bera ábyrgðina á vinnubrögðunum sem gera frumvarp þeirra að auðveldum skotspæni.
Hanna Katrín Friðriksson og Sigurjón Þórðarson.
Ekki bætir úr skák fyrir ríkisstjórnina að Sigurjón Þórðarson, Flokki fólksins, er formaður atvinnuveganefndar. Þótt honum sé ekki treyst fyrir framsögu um álit meirihluta nefndarinnar í þingsalnum fer hann víða í fjölmiðlum. Innihaldslaust raus hans bendir til þess að hann viti ekkert um hvað málið snýst. Þekki hann efni málsins er honum greinilega sama um viðhorf kjósenda í kjördæmi sínu, NA-kjördæmi. Talið er að afleiðingar frumvarpsins bitni verst á sjávarþorpum og útgerð í kjördæmi Sigurjóns.
Undir forystu Sigurjóns lagðist meirihluti þingnefndarinnar gegn komu ýmissa gesta á fund hennar. Þá sá formaðurinn til þess að starfsmenn Skattsins, sem að lokum leiðréttu útreikninga atvinnuvegaráðuneytisins, kæmust á fund nefndarinnar.
Allt vekur þetta tortryggni í garð stjórnarliðsins vegna þessa mikilvæga máls. Hvort sem er við undirbúning þess eða meðferð í þingnefnd er beitt óvönduðum vinnu- og bolabrögðum. Næst kynnist þjóðin því hvernig á að reyna að þvinga málið í gegn á þingi – jafnvel með aðför að málfrelsi í þingsalnum.