4.11.2026 9:35

Vængstýfður Trump

Fyrir utan að deila um stjórnarhætti Trumps, græðgi hans og ofstopa, beindu andstæðingar hans athygli að dýrtíðinni sem hann hefði leitt yfir þjóðina með tollum og hækkun olíuverðs með stríði gegn Íran.

Repúblíkanar hafa hvorki meirihluta í fulltrúadeild né öldungadeild Bandaríkjaþings eftir þingkosningarnar í gær (3. nóvember). Þegar kjörtímabil Donalds Trumps er hálfnað verður þrengt að völdum hans og hann á yfir höfði sér rannsóknarnefndir og önnur afskipti af hálfu þingsins sem munu setja mikinn svip á næstu misseri í bandarísku þjóðlífi.

Fyrir utan að deila um stjórnarhætti Trumps, græðgi hans og ofstopa, beindu andstæðingar hans athygli að dýrtíðinni sem hann hefði leitt yfir þjóðina með tollum og hækkun olíuverðs með stríði gegn Íran.

Lykilorð í kosningabaráttu demókrata var affordability, fjárhagsleg geta, efnahagslegt bolmagn eða hagkvæmni, það að eitthvað sé á viðráðanlegu verði eða að fólk hafi efni á því. Í samhengi við húsnæði, vörur eða þjónustu er um að ræða greiðslugetu eða verðlag sem fólk ræður við.

Kosningaloforðin snerust um að létta byrðum af almennum borgurum svo að þeir hefðu borð fyrir báru fjárhagslega. Hvað sem líður öllum deilum um ólík menningarleg og siðferðileg viðhorf eða afstöðu til innflytjenda voru það að lokum spilling, afkomuhorfur og svikin loforð sem réðu úrslitum.

Screenshot-2026-11-04-at-09.34.42Donald Trump

Til þess er sérstaklega tekið að repúblikanar töpuðu sæti öldungadeildarþingmanns og ríkisstjóra í Texas. Í báðum tilvikum stóð Trump fast að baki frambjóðendunum og auðmaðurinn Elon Musk varði um 224 milljónum dollara til stuðnings þeim samkvæmt úttekt The New York Times frá 2. nóvember. Þar af fóru um 212 milljónir til stuðnings repúblikananum Ken Paxton í baráttu hans við demókratann James Talarico sem hlaut sæti í öldungadeildinni með um 55% atkvæða. Musk styrkti einnig endurkjörsbaráttu Gregs Abbotts, ríkisstjóra Texas, með 5,5 milljónum dollara að sögn Houston Chronicle. Demókratinn Gina Hinojosa sigraði með um 53% atkvæða.

Trump finnur aðra sökudólga en sjálfan sig þegar hann skýrir hörmuleg úrslitin fyrir flokk sinn. Hann viðurkennir þó tapið en stóran þátt í óvinsældum hans nú eiga átökin sem hann stofnaði til eftir að hann tapaði forsetakosningunum 2020 og hóf áróðurinn um kosningasvindl.

Í leiðara The Wall Street Journal sem styður repúblikana segir í dag að kjósendur hafi einnig gert uppreisn gegn því hve upptekinn Trump virðist vera af eigin gæluverkefnum, danssal við Hvíta húsið og sigurboga sér til heiðurs í Washington. Þá sé fólki misboðið hvernig hann og fjölskylda hans hafi auðgast á öðru kjörtímabili hans sem forseta. Hvorki meira né minna en 88% kjósenda hafi nefnt „spillingu“ sem helsta áhyggjuefni sitt í könnun Fox News í október, sem er hærra hlutfall en þau 85% sem nefndu verðbólgu.

Demókratar hafi tengt saman framfærslukostnað og spillingu í auglýsingum sínum. Jafnvel þótt tengingin sé hvorki sanngjörn né sönn að mati blaðsins hafi hún höfðað til gremju kjósenda yfir því að fjölskyldu forsetans vegnaði vel en ekki þeim sjálfum. Spillingarásökunin muni líklega fylgja Trump eins og skugginn næstu tvö árin, þegar demókratar á þinginu rannsaka samningana og smáatriðin.

Eitt er víst að Trump verður áfram fréttaefni þótt þrengt sé að honum.