Utangátta forsætisráðherra
Forsætisráðherra lýsti fullu trausti á fjármálaráðherra en takmarkaðri þekkingu á málinu. Daði Már fékk traustsyfirlýsingu. Málsvörn hans styrktist ekki.
Ræður Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra á alþingi 9. nóvember um Landsvirkjunarmálið báru frekar vott um að hún væri utangátta en að hún hefði kynnt sér málið og gæti eða vildi leggja fjármálaráðherra lið með efnislegum svörum. Hún lýsti fullu trausti á ráðherrann en áréttaði jafnframt að eigin vitneskja hennar væri takmörkuð.
Kristrún Frostadóttir svarar fyrirspurn Guðrúnar Hafsteinsdóttur um Landsvirkjunarmálið á alþingi 9. nóvember 2026 (skjáskot).
„Ég þekki ekki smáatriði málsins meira en þetta,“ sagði forsætisráðherra eftir að hafa lýst fundi sínum með Herði Arnarsyni, fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar. Hún hefði ekki vitað fyrir fram hvert fundarefnið yrði en Hörður hitti ráðherrann sama dag og hann sagði af sér. Skilningur hennar væri að ágreiningurinn snerist um verklag en ekki eitt tiltekið atvik.
Þrátt fyrir þessa takmörkuðu vitneskju taldi hún sér fært að segja að ekkert athugavert hefði komið fram og óþarfi væri að vefengja orð fjármálaráðherra. Þar dró hún ályktun langt umfram forsendur. Sama átti við þegar hún sagðist engar áhyggjur hafa af því að Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) myndi láta sig málið varða.
Tilraun hennar til að setja brotthvarf Harðar í samhengi við væntanleg starfslok hans sýndi þetta enn betur. Hún sagði hann líklega ekki hafa átt mikið eftir af skipunartíma sínum. Þegar að því var fundið baðst hún afsökunar ef hún hefði afvegaleitt umræðuna og óskaði eftir að einhver leiðrétti sig ef hún færi með rangt mál. Hún héldi þó að það væri ekki rangt. Síðar vísaði hún til þess að sér skildist að ráðningarsamningar hefðu miðast við aldur.
Forsætisráðherra hafði þannig sett fram skýringu á aðstæðum forstjórans án þess að hafa gengið úr skugga um að hún stæðist. Þegar skýringin var dregin í efa varð hún að „vel meintri“ athugasemd og „heiðurstali“. Eftir stóð að forsætisráðherra vissi ekki hvort ástæða sem hún hafði sjálf flutt inn í umræðuna væri rétt.
Svipaður ruglingur birtist í tilvísun hennar til lögfræðilegs álits. Það fjallar um svigrúm stjórnar Landsvirkjunar. Það er ekki úttekt á þeirri atburðarás sem nú er til umræðu. Almenn lýsing á heimildum stjórnar segir ekki til um hvernig þeim var beitt í einstöku máli eða hvort samskipti stjórnar, ráðherra og forstjóra standist skoðun.
Forsætisráðherra talaði þó eins og með álitinu hefði verið skorið úr um ágreininginn. Hún sagði að búið væri að gera úttekt og að sá lagalegi ágreiningur væri ekki til staðar. Með orðunum: „Ókei, þannig að sá lagalegi ágreiningur er ekki til staðar“ gaf hún álitinu vægi umfram efni þess.
Þá var óljóst af orðum ráðherrans hvort öll gögn hefðu þegar verið lögð fram. Annars vegar fullyrti hún að fjármálaráðherra hefði komið með „öll gögn á borðið“. Hins vegar fagnaði hún athugun þingsins „þegar öll gögn verða lögð fram“. Þetta er ekki sami hluturinn. Hvort málið sé að fullu upplýst skiptir máli þegar forsætisráðherra leggur mat á það í ræðustól alþingis.
Enginn þarf að útskýra fyrir þingheimi að ágreiningur kann að rísa milli stjórnar og forstjóra. Spurningarnar snúast um hvað gerðist hjá Landsvirkjun, hvernig staðið var að málum og hvers vegna farsæll forstjóri kaus að láta af störfum. Almennar hugleiðingar forsætisráðherra um að ágreiningur komi upp „á bestu stöðum“ breyta engu.
Kristrún lýsti ítrekað trausti á fjármálaráðherra. Efnislegur stuðningur hennar við málstað hans var mun rýrari.
Fjármálaráðherrann fékk traustsyfirlýsingu. Málsvörn hans styrktist ekki.