Úrsögn Guðmundar Inga
Í þessu ljósi ber að skoða úrsögn Guðmundar Inga úr Flokki fólksins. Hann hefur lent upp á kant við Ingu Sæland sem síðan hikar ekki við að láta opinberlega eins og hún viti ekkert um hvað málið snýst.
Guðmundur Ingi Kristinsson varaformaður Flokks flokksins yfirgaf flokkinn með úrsögn úr honum mánudaginn 13. apríl. Hann heldur áfram sem þingmaður og stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar „til allra góðra verka“ eins og hann orðaði það í tilkynningu á alþingi. Hann sagðist hafa tekið ákvörðunina um að yfirgefa flokkinn vegna persónulegs trúnaðarbrests sem varðaði persónuleg samskipti innan flokksins.
Guðmundur Ingi varð mennta- og barnamálaráðherra þegar Ásthildur Lóa Þórsdóttir lét af embættinu í mars 2025. Í byrjun desember 2025 gekkst Guðmundur Ingi undir hjartaaðgerð. Þá varð Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, mennta- og barnamálaráðherra. Guðmundur Ingi sagði af sér sem ráðherra 8. janúar 2026 og varð Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, þá mennta- og barnamálaráðherra.
Ragnar Þór Ingólfsson tók við embætti félags- og húsnæðismálaráðherra af Ingu sem hélt þó því áfram úr ráðuneytinu sem gaf henni tækifæri til að taka skóflustungur vegna nýrra hjúkrunarheimila. Þetta er fordæmalaus verkaskipting milli ráðherra. Hún sýnir hvað Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra gerir fyrir Ingu Sæland til að halda stjórninni á floti.
Þegar rætt var við Ingu Sæland í kvöldfréttum Sýnar 13. apríl um brotthvarf Guðmundar Inga sagði hún: „Ég hef ekki orðið vör við persónulegan trúnaðarbrest á milli mín og Guðmundar Inga.“ Hún myndi sakna hans: „Ég veit að það er enginn málefnalegur ágreiningur eða neitt slíkt, Guðmundur Ingi hefur af huga og hjarta barist með mér í gegnum þykkt og þunnt, við höfum auðvitað verið lengst af í stjórnarandstöðu og þar höfum við unnið sem einn maður.“
Guðmundur Ingi Kristinsson (mynd: mbl.is/Eggert Jóhannesson).
Miðað við einræðisvald Ingu Sæland í flokki sínum er holur hljómur í þessum orðum. Hér skal ekki dregið í efa að samstarf þeirra Guðmundar Inga hafi verið gott þegar þau sátu tvö saman í þingflokki og í stjórnarandstöðu. Hitt er ljóst að Inga hikar ekki við að ýta fólki til hliðar til að tryggja sér nauðsynlegt svigrúm í sviðsljósinu og er dauðahald hennar í skófluna úr gamla ráðuneytinu skýrasta dæmið um það. Valdi sínu beitir hún af svo miklum þunga að forsætisráðherra breytir forsetaúrskurði til að þjóna persónulegum hagsmunum hennar.
Í þessu ljósi ber að skoða úrsögn Guðmundar Inga úr Flokki fólksins. Hann hefur lent upp á kant við Ingu Sæland sem síðan hikar ekki við að láta opinberlega eins og hún viti ekkert um hvað málið snýst.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra var spurð um ákvörðun Guðmundar Inga í Silfri ríkissjónvarpsins 13. apríl. Hún sagði að sér þætti úrsögn hans „leiðinleg“. Hún ætlaði þó ekki „að rekja sérstaklega þau tildrög“ enda um „innanflokksmál“ að ræða. Þessi orð forsætisráðherra gefa til kynna að ákvörðun varaformanns Flokks fólksins hafi haft aðdraganda en ekki komið eins og þruma úr heiðskíru lofti eins og skilja má Ingu Sæland. Guðmundur Ingi getur ekki setið undir þeim hálfsannleika.
Fréttamaðurinn gekk ekki eftir skýringu á orðum forsætisráðherra frekar en hann minntist í samtalinu ekki á það viðkvæma vandamál ríkisstjórnarinnar að ESB-atkvæðagreiðslan er í uppnámi vegna ónýtrar spurningar utanríkisráðherra. Mátti hann ekki spyrja um það?