9.3.2026 9:07

Upplýsingafalsanir utanríkisráðuneytisins

Ég hef fært rök fyrir því að utanríkisráðuneytinu sé ekki treystandi fyrir upplýsingamiðlun í þessu máli og bent á alvarlegar gloppur á vef ráðuneytisins máli mínu til stuðnings.

Ég er eindreginn stuðningsmaður þess að leitað sé til þjóðarinnar eftir umboði taki alþingi ákvörðun um að sótt skuli um aðild að ESB. Það skýrist væntanlega betur á alþingi í dag hvað felst í tillögu utanríkisráðherra um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu.

Hér hefur í tveimur færslum verið vikið að svonefndum upplýsingavef utanríkisráðuneytisins í tilefni af þjóðaratkvæðagreiðslunni sem ríkisstjórnin vill að fari fram 29. ágúst um hvort halda eigi „áfram viðræðum um aðild Íslands“ að ESB.

Ég hef fært rök fyrir því að utanríkisráðuneytinu sé ekki treystandi fyrir upplýsingamiðlun í þessu máli og bent á alvarlegar gloppur á vef ráðuneytisins máli mínu til stuðnings.

Þar vekur mesta undrun að ráðuneytið skautar alveg fram hjá bréfi sem Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra sendi forseta ráðherraráðs og stækkunarstjóra ESB 12. mars 2015 og gerði alþingi grein fyrir með munnlegri skýrslu 17. mars 2015.

Þetta bréf var samið í utanríkisráðuneytinu á sínum tíma og hafði afgerandi áhrif á stöðu Íslands gagnvart ESB og ákvarðanir stjórnenda sambandsins sem afmáðu Ísland af stækkunarlista þess.

Gunnar Bragi fór til Brussel og afhenti Edgars Rinkēvičs, utanríkisráðherra Lettlands, formanni ráðherraráðs ESB, bréfið og 27. apríl 2015  kynnti utanríkisráðuneytið staðfestingu frá Brussel um að Ísland hefði verið tekið af stækkunarlistanum. Þessi skjöl er að finna í fréttatilkynningum utanríkisráðuneytisins frá árinu 2015, sjá mynd.

Screenshot-2026-03-09-at-08.53.56Þetta bréf frá forseta ráðherraráðs ESB birti utanríkisráðuneytið 27. apríl 2015.

Utanríkisráðuneytið hefur að sjálfsögðu ráðrúm til að bæta úr þessum gloppum á síðu sinni en eftir að Sigurjón Njarðarson, framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar, svarar mér á Vísi sunnudaginn 8. mars blasir við að þessi vefsíða ráðuneytisins er flokkspólitísk kynningarsíða á þeim opinberu gögnum sem utanríkisráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, telur best falla að ESB-málstað sínum.

Starfsmaður Viðreisnar segir að „alvarlegar staðhæfingar“ mínar sé ekki „hægt að láta ótaldar“ [svo!], á líklega að vera „óátaldar“, það er að finna verði að því að ég telji ekki „unnt að treysta ráðuneytinu fyrir því að veita hlutlægar upplýsingar um þetta mál“.

Þetta gerir Viðreisnarmaðurinn meðal annars með þessum orðum þegar hann rökstyður ritskoðunina við miðlun efnis á síðuna:

„Hið stórkostlega bréf þáverandi utanríkisráðherra, Gunnars Braga Sveinssonar, er ágætis skemmtiefni og lærdómur í stjórnskipulegum klaufagangi, en hefur afar takmarkað upplýsingagildi fyrir kjósendur í væntanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu.“

Bréfið hafði afgerandi áhrif í Brussel og því var fylgt eftir með fundum sendimanna Íslands og að lokum för Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, þáv. forsætisráðherra, til Brussel.

Framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar vílar ekki fyrir sér að saka utanríkisráðuneytið um „stjórnskipulegan klaufagang“ árið 2015 og gerir gys að starfsmönnum þess.

Það er augljóst af þessum orðum að það er ekki tilviljun að köflum úr samskiptum íslenskra stjórnvalda við ESB er haldið leyndum á þessari opinberu upplýsingasíðu, henni er beinlínis ætlað að vera vettvangur upplýsingafalsana.