15.2.2026 13:40

Undirmál í Samfylkingunni

Erfitt er að ráða í stöðuna. Ef til vill er bara um markvissa upplýsingaóreiðu að ræða til að gera Pétri Marteinssyni og hans fólki lífið leitt.

„Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu býður sig fram til 3. sætis á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Guðmundur er með duglegri mönnum og hann hefur nú þegar fengið hundruð manna til að skrá sig í flokkinn til að geta kosið í prófkjöri sem fer fram eftir 17 daga,“ þannig hófst frétt sem Jakob Bjarnar birti á Vísi 6. janúar.

Í fréttinni segir að þessi mikli stuðningur við Guðmund Inga sé metinn sem 900 manns á framboðssíðu hans. Fjöldinn hafi „ekki bara áhrif á hans gengi“ heldur geti hann skipt sköpum fyrir þau sem eru í oddvitaslag; Heiðu Björg Hilmisdóttur og Pétur Marteinsson – styður þú einhvern þar? spyr Jakob Bjarni og Guðmundur Ingi svarar: „Þetta er svo viðkvæmt að ég get ekkert sagt til um það enn sem komið er.“

Undarlegir hlutir hafa síðan gerst og Guðmundur Ingi er sagður á köldum klaka í Samfylkingunni. Erfitt er að ráða í stöðuna. Ef til vill er bara um markvissa upplýsingaóreiðu að ræða til að gera Pétri Marteinssyni og hans fólki lífið leitt.

Screenshot-2026-02-15-at-11.51.30Guðmundur Ingi Þóroddsson.

Prófkjör Samfylkingarinnar fór fram 24. janúar og daginn áður birti Vísir frétt um að skráðum félögum flokksins í Reykjavík hefði fjölgað um 72%. Þórhallur Valur Benónýsson, formaður kjörstjórnar fulltrúaráðs Samfylkingarinnar, sagði að um miðjan nóvember hefðu félagarnir verið 4038 en á miðnætti 23. janúar 6935. Þeim hefði fjölgað um 2879, eða 71,7%, á um tveimur mánuðum.

Á kjörskrá í prófkjörinu voru 6955 en atkvæði greiddu 4.889 eða 70,29%. 1. sæti: Pétur Marteinsson rekstrarstjóri með 3.063 atkvæði í 1.sæti eða 62,86%. 2. sæti: Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri með 1.668 atkvæði í 1.-2.sæti eða 34,23% (sóttist eftir 1.sæti) og í 7. sæti: Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu með 1.704 atkvæði í 1.-7.sæti eða 34,97% (sóttist eftir 3.sæti).

Laugardaginn 14. febrúar birtist frétt á mbl.is um að landsmálafélagið Rósin hefði sagt sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar í Reykjavík. Þetta staðfestir Teitur Atlason, ritari Rósarinnar, í samtali við mbl.is. Fulltrúi Rósarinnar, Guðmundur Ingi, sem hafnaði í 7. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar, fær ekki sæti á listanum fyrir sveitastjórnarkosningarnar í vor. Segir Teitur að það sé í deiglunni en óljóst hvort Guðmundur Ingi verði á lista Vor til vinstri eða Flokks fólksins í kosningunum.

Teitur segir að Pétur Marteinsson hafi smalað sínu fólki í flokkinn. Rósin hafi ekki átt svar við þessu, um 3000 nýskráningar hafi komið þeim á óvart. „En svo erum við að heyra það að nú þegar hafi 600 af þessum 3.000 skráð sig úr flokknum. Þarna sést hvað gerðist,“ segir Teitur.

Guðmundur Ingi Þóroddsson er formaður Rósarinnar en á Facebook jafnaðarfélagsins Rósarinnar segir að það sé eitt af aðildarfélögum Samfylkingarinnar, stofnað 10. okt. 1986 í Skeifu, Nýbýlavegi, Kópavogi. Félagið er því 14 árum eldra en Samfylkingin og eru félagsmenn sagðir 680.

Félagið hugar sérstaklega að minnihluta- og jaðarhópum samfélagsins. Guðmundur Ingi er jafnframt formaður Afstöðu félags fanga. Hann segist ekki hafa gert upp við sig hvað hann geri í framboðsmálum.