TUI Magic Life Calabria
Töfralíf í Calabríu.
TUI Magic Life Calabria er heimur út af fyrir sig. Heimsferðir skipuleggja ferðir hingað. Flogið með NEOS til lítils flugvallar, Lamezia Terme, í um 20 mínútur frá dvalarstað.
Í TUI Magic Life Calabria húsaþyrpingunni eru nú að minnsta kosti 106 Íslendingar um þessar mundir, þar af 54 í MR-64 hópnum.

Nú er 24 stiga hiti og myndin sýnir útsýnið frá tölvunni. Heimamenn segja að nú hafi orðið umskipti till hins betra á „hitasviðinu“ svo að notað sé orðfæri veðurfræðinga. Óbærilegur sumarhitinn hopar.