7.4.2026 9:44

Trump þrýstir enn á Dani

Að kvöldi annars í páskum hrukku Danir í kút þegar Donald Trump tók aftur að tala um Grænland á blaðamannafundi í Hvíta húsinu sem snerist um Íransstríðið.

Nú þegar tvær vikur eru liðnar frá því að Danir gengu að kjörborðinu er enn alls óljóst hvernig ríkisstjórn verður mynduð í danska konungsríkinu. Mette Frederiksen, starfandi forsætisráðherra, hefur umboðið til stjórnarmyndunar og hélt viðræðum við forystumenn annarra stjórnmálaflokka annan í pásku þegar hún hitti forystumenn Sósíalíska þjóðarflokksins (SF) og Radikale venstre.

Jafnaðarmannaflokkurinn Frederiksen á stærsta þingflokkinn en þarf fleiri til samstarfs en tvo fyrrnefnda vinstri flokka til að rauða blokkin svonefnda geti myndað meirihluta á þinginu í Kristjánsborgarhöll.

„Held að allir sjái að þetta er erfitt í þetta skiptið,“ skrifaði Mette Frederiksen á Facebook eftir fundinn á annan í páskum. Hún ræðir við fulltrúa Enhedslisten og Alternativet í dag um rauða stjórn.

Allir bíða hins vegar eftir því hvað maðurinn í oddaaðstöðunni, Lars Løkke Rasmussen, stofnandi og formaður Moderaterne, gerir. Hann getur brugðið fætinum fyrir rauða stjórn og þess í stað sett breiða miðjustjórn á dagskrá. Slík þriggja flokka stjórn, Jafnaðarmannaflokksins, Moderaterne og Venstre, situr nú sem starfstjórn eftir tæplega fjögurra ára stjórnarsamstarf án þess að fá endurnýjað umboð í þingkosningunum nú í mars.

Á skírdag hvatti Lars Løkke Rasmussen Jafnaðarmannaflokkinn, Venstre og Íhaldsflokkinn til að nota páskafríið til „íhugunar“. Hann hvatti til stjórnarsamstarfs ábyrgra flokka yfir miðjuna og vísaði til hættunnar á orkukreppu, verðbólgu og versnandi horfum í alþjóðamálum og heimsbúskapnum.

148422431Frá blaðamannafundi Trumps í Hvíta húsinu á annan í páskum,.

Að kvöldi annars í páskum hrukku Danir í kút þegar Donald Trump tók aftur að tala um Grænland á blaðamannafundi í Hvíta húsinu sem snerist um Íransstríðið.

Varnarbandalagið NATO er pappírstígrisdýr, sagði Trump og hélt áfram:

„Þetta byrjaði allt með Grænlandi, ef þið viljið heyra sannleikann. Við viljum fá Grænland. Þeir vilja ekki gefa okkur það og ég sagði bless bless.“

Nú er það skoðun sumra danskra stjórnmálaskýrenda að Løkke noti þessi orð Trumps til að knýja enn fastar á um myndun ríkisstjórnar á miðjunni, hugsanlega minnihlutastjórnar undir eigin forsæti.

Það er skiljanlegt að orð Bandaríkjaforseta um að hann vilji stærsta landið í danska konungsríkinu undir sína stjórn knýi á um viðbrögð í Kaupmannahöfn. Þá er sárt þegar deilum um óraunhæfar kröfur um bandarísk yfirráð á Grænlandi er lýst sem upphafi að því að Trump sagði bless við NATO, sérstaklega þegar yfirmaður norðurherstjórnar Bandaríkjanna ræðir við Dani um fjölgun bandarískra herstöðva á Grænlandi. Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, á bókaðan fund með Trump í Hvíta húsinu miðvikudaginn 8. apríl.

Allt er þetta sögulegt, hitt er hins vegar ábyrgðarlaus hentistefna að segja tal Trumps opna glugga fyrir Ísland inn í ESB. Þá er litið á óeiningu vegna Grænlands sem tækifæri af Íslands hálfu til að gera illt verra í Atlantshafssamtarfinu.