Trump er smjörklípan
Ein af röksemdunum fyrir atkvæðagreiðslunni var að ýta umræðum um ESB út af borðinu. Nú er ballið þó fyrst að byrja. Þökk sé Trump!
Uppnámið á fréttastofu ríkisútvarpsins 10. september 2026 vegna frásagnar af símtali sem Donald Trump, nýkjörinn forseti Bandaríkjanna, stofnaði til við Bjarna Benediktsson forsætisráðherra 26. nóvember 2024 má rekja til smjörklípu sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra greip til 31. ágúst 2026.
Á blaðamannafundi sem þrír flokksformenn ríkisstjórnarinnar héldu kl. 13.00 sunnudaginn 30. ágúst sagðist utanríkisráðherra ekkert vilja segja án þess að hafa ráðfært sig við utanríkismálanefnd alþingis. Hún hefði óskað eftir fundi með nefndinni daginn eftir.
Utanríkismálanefnd kom saman að morgni mánudagsins 31. ágúst. Þá sagðist utanríkisráðherra vilja kynna nefndinni áríðandi texta. Las hún síðan frásögnina af tæplega tveggja ára gömlu símtali Trumps og Bjarna. Nefndarmenn urðu langleitari eftir því sem lesturinn varð lengri. Að honum loknum spurði einhver þeirra undrandi: Hvers vegna? Ráðherrann svaraði: Staða heimsmála.
Fundinum lauk án þess að nefndarmenn yrðu nokkurs vísari um áform ráðherrans. Hún tók síðan til þess ráðs án frekara samráðs við nefndina að tilkynna ráðherraráði ESB að í raun hefði ekkert gerst í þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi, allt væri í sömu skorðum og fyrr.
Símtöl frá Trump verða oft í fréttaefni.
Þegar þingmenn vöktu máls á því að ráðherrann hefði brotið lög með tilkynningu sinni og kröfðust fundar í utanríkismálanefnd ákvað ráðherrann að leka frásögninni af símtalinu til fréttastofu ríkisútvarpsins eins og heyra mátti í fréttum kl. 18.00 fimmtudaginn 10. september.
Fréttamaðurinn var óðamála. Fréttir af málinu héldu áfram að morgni föstudagsins 11. september. Þá var rætt við fulltrúa Flokks fólksins í utanríkismálanefnd, Sigurð Helga Pálmason, varaformann nefndarinnar. Hann gagnrýndi utanríkisráðherra fyrir að hafa haldið þessari frásögn leyndri.
Guðmundur Magnússon, blaðamaður og sagnfræðingur, sagði á FB: „Spurning hvort þessar alvarlegu upplýsingar um áhuga Trump á innlimun Íslands kalli ekki á að þjóðaratkvæðagreiðslan um aðildarviðræður við ESB verði endurtekin.“
Smjörklípan heppnaðist. Næst verður okkur sagt að úrslitin 29. ágúst séu ómarktæk af því að við vissum ekki um hug Trumps. Hann var þó tvisvar mikill áhrifavaldur vegna atkvæðagreiðslunnar: 3. mars 2025 þegar Dagur B. Eggertsson krafðist þess að henni yrði flýtt vegna uppnámsins á fundi Trumps og Zelenskíjs í Hvíta húsinu 28. febrúar 2025 og í janúar 2026 þegar endanlega sauð upp úr vegna ummæla Trumps um Grænland.
Hvenær vissu forsætisráðherra og utanríkisráðherra um frásögnina af símtalinu? Af orðum Sigurðar Helga Pálmasonar má ráða að það hafi verið fyrir kjördaginn. Af hverju kusu þær að þaga um þetta skjal fram yfir kjördag? Vissi Kristrún um frásögnina þegar hún hitti Trump í Ankara í byrjun júlí 2026? Þá sagði hún: „Það er hlýtt á milli okkar Bandaríkjaforseta. Ég hef auðvitað hitt hann í nokkur skipti og hann er mjög meðvitaður um stöðu Íslands.“
Nú segist Kristrún ætla að ræða málið við Trump í New York á næstunni – þetta símtal hans og Bjarna? Nei, varla. Líklega ætlar hún að ræða kortið sem Trump birti mánudaginn 7. september þar sem bandaríski fáninn teygði sig til Íslands. Það hefur einnig verið notað sem smjörklípa af þeim sem urðu undir 29. ágúst. Þorsteinn Pálsson, samflokksmaður og ráðgjafi utanríkisráðherra, telur að kalla eigi þjóðaröryggisráð saman til að ræða kortið og boðskap þess.
Ein af röksemdunum fyrir atkvæðagreiðslunni var að ýta umræðum um ESB út af borðinu. Nú er ballið þó fyrst að byrja. Þökk sé Trump!