18.10.2026 11:18

Tilvistarkreppa Viðreisnar

Augljósa ályktunin er að flokksformaðurinn og utanríkisráðherrann, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, hafi þarna staðið ein að verki. Vegferðin misheppnaðist og sífellt fleiri benda á fararstjórann sem óttast uppgjörið. 

Viðreisn var stofnuð sem stjórnmálaflokkur vorið 2016, fyrir rúmum 10 árum. Hvatamenn að stofnun flokksins höfðu flestir starfað innan Sjálfstæðisflokksins en orðið undir þar á landsfundum þegar tekin var afstaða til aðildar að ESB.

Umræður um ESB hófust af alvöru innan flokksins haustið 2008, í hruninu. Sett var af stað athugun á afstöðu flokksmanna og lá niðurstaðan fyrir í janúar 2009. Þá var talið að um 70% flokksmanna væru andvíg aðild.

Á landsfundi í mars 2009 var þessi afstaða staðfest en jafnframt ályktað að myndaðist meirihluti á alþingi fyrir aðildarumsókn og ríkisstjórnin tæki ákvörðun um að leggja hana fyrir ESB skyldi það ekki gert nema þjóðin samþykkti það í atkvæðagreiðslu.

Þetta var stefna flokksins þegar hann gekk til samstarfs við Framsóknarflokkinn að loknum þingkosningum 2013. Báðir flokkar voru andvígir aðild að ESB og pólitískt ómögulegt að ríkisstjórnin stæði að tillögu um ESB-aðildarumsókn.

ESB-aðildarsinnar innan Sjálfstæðisflokksins töldu nú unnt að skilja á milli afstöðu þings og ríkisstjórnar til ESB-aðildar og þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður. Viðreisn varð til um þá skoðun að þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður væri sjálfstætt mál og varð sú stefna hluti sáttmála stjórnar Kristrúnar Frostadóttur 21. desember 2024. Henni var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst 2026.

Það kom á óvart í janúar 2026 þegar yfirlýsingar Donalds Trump um Grænland urðu til þess að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, boðaði að þjóðaratkvæðagreiðslan yrði á árinu 2026 en í stjórnarsáttmálanum sagði að hana bæri að halda fyrir árslok 2027.

Að óreyndu hefði mátt ætla að flokksformaðurinn hefði tekið ákvörðun sína að vel ígrunduðu máli og með stuðningi þingflokks síns. Annað hefur komið í ljós.

Screenshot-2026-10-18-at-11.14.39Jón Gnarr, Þorgerður Katrín og Pawel (samsett mynd mbl.is).

Í Spursmálum á mbl.is föstudaginn 16. október sagði Jón Gnarr að ákvörðun um þjóðaratkvæðagreiðsluna og dagsetningu hennar hefði verið tekin án þess að hann, þingmaður Viðreisnar, hefði verið með í ráðum.

Pawel Bartoszek er nú þingflokksformaður Viðreisnar. Hann var formaður utanríkismálanefndar alþingis þegar afdrifaríka ákvörðunin um að bera stofnmál Viðreisnar undir þjóðina var tekin og kynnt. Í samtali við Pawel á mbl.is föstudaginn 16. október segir hann:

„Mig minnir að ég hafi fengið upplýsingar um dagsetninguna örskömmu áður en blaðamannafundurinn fór fram [6. mars 2026]. Það er rétt að það var ekki haldinn þingflokksfundur þar sem menn krotuðu ólíkar dagsetningar og ræddu þær. Það hefði líka þótt frétt ef þingflokkur Viðreisnar hefði vitað dagsetninguna mörgum mánuðum á undan öðrum þingmönnum. Það er ekkert óeðlilegt í þessu ferli.“

Pawel er ekki miklu skýrari en Jón Gnarr þegar hann ræðir vitneskju sína um þetta afdrifaríka mál. Augljósa ályktunin er að flokksformaðurinn og utanríkisráðherrann, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, hafi þarna staðið ein að verki. Vegferðin misheppnaðist og sífellt fleiri benda á fararstjórann sem óttast uppgjörið sem er þó óhjákvæmilegt vegna hagsmuna þjóðarinnar.