Þriðji í framboði gegn alþingi
Þegar talað er af sama offorsi og Steinunn Ólína gerði láta orðhákarnir eins og þeir mæli fyrir hönd allrar þjóðarinnar.
Nokkrir forsetaframbjóðendur bjóða sig fram gegn alþingi í kosningunum sem fram fara 1. júní nk. Hér hafa áður verið nefndir til sögunnar tveir: Eiríkur Ingi Jóhannsson sem jafnan mælist með undir 1% fylgi í könnunum og Arnar Þór Jónsson sem mælist með um 5-6%. Að kvöldi mánudagsins 27. maí birtist þriðji frambjóðandi gegn alþingi í ríkissjónvarpinu, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, hún mælist með 1-2% fylgi. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við Steinunni Ólínu og lét henni eftir að lýsa forsetaembættinu og hlutverki forseta á alrangan veg.
Þegar talað er af sama offorsi og Steinunn Ólína gerði láta orðhákarnir eins og þeir mæli fyrir hönd allrar þjóðarinnar. Í frásögn ruv.is af samtalinu segir:
„Hún segist fyrst og fremst bjóða sig fram til forseta til að standa vörð um hagsmuni þjóðarinnar.“ Og einnig: „Skylda forseta Íslands er að fara eftir sannfæringu þjóðarinnar að mati Steinunnar Ólínu. Það sé pólitískt embætti þó það hlutverk sé gjarnan talað niður. Forseti sé stjórnmálamaður sem grípi til varna fyrir þjóðina ef svo ber undir.“
Í þessum orðum felst einhvers konar einræðisárátta sem brýtur gegn stjórnskipun Íslands. Í samtali í Spursmálum á mbl.is sá Arnar Þór ástæðu til að árétta við hlustendur að hann væri ekki að boða einveldi eða einræði þegar hann talaði í svipuðum dúr og Steinunn Ólína. Markmið málflutnings þeirra beggja er að gera hlut alþingis og þingmanna sem verstan.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir í Forystusæti ríkissjónvarpsins 27. maí 2024.
Um ástæður framboðs síns sagði Steinunn Ólína: „„Nú eru þannig tíðindi í loftinu í okkar samfélagi að það ríður á að þar sé í embættinu manneskja sem treystir sér í að verja þjóðina fyrir þeim sem eiga og ráða [ríkisstjórn og alþingi] og eru um það bil að selja undan okkur landið.“
Þráspurð svaraði hún ekki við hvað hún ætti heldur sakaði Katrínu Jakobsdóttur um að standa fyrir lagafrumvörpum sem urðu hvatinn að framboði hennar.
Í aðdraganda framboðs Steinunnar Ólínu fór ekki á milli mála að heift hennar í garð Katrínar kveikti framboðsneistann þótt hún kjósi nú að tína til tilbúnar málefnalegar ástæður. Þeir sem vilja hindra framgang lagafrumvarpa á alþingi bjóða sig fram til þingsetu en ekki í embætti forseta Íslands.
Óvild sína í garð Katrínar og annarra ráðherra áréttaði Steinunn Ólína með því að vitna í tölur úr skoðanakönnunum sem sýndu óvinsældir stjórnarherranna. Í samtalinu hefði mátt minna á að væri sambærilegri aðferð beitt við meðferð talna um hana sjálfa mætti fullyrða að 99% þjóðarinnar vildi ekki sjá hana á Bessastöðum.
Í Velvakanda í Morgunblaðinu í dag (28. maí) segir ónafngreindur bréfritari frá nýlegu samtali Gunnars Smára Egilssonar, forystumanns sósíalista, og Arnars Þórs Jónssonar frambjóðanda á sósíalísku Samstöðinni. Í bréfinu segir:
„Augljós biturðin yfir því að almenningur skyldi ekki hafa fylkt sér að baki þessum mönnum varð enn meira sláandi þegar þeir jafnan töluðu í nafni alls almennings, sem þeir sögðu afar ósáttan við eitt og annað – sem að vísu sést aldrei í kosningum.“
Þetta mun enn sjást í forsetakosningunum hér 1. júní 2024.