Þrætan um bókun 35
Á borðum þingmanna er flest mikilvægara en að deila um bókun 35; að deila um áhrif hennar deilunnar vegna er ekki þess virði; kröftunum á frekar að verja til að finna sameiginlega lausn.
Með lögfræðina að leiðarljósi geta menn endalaust deilt um túlkunaratriði vegna EES-samstarfisins og velt fyrir sér endamörkum þess innan stjórnarskrárinnar. Samstarfið snýst hins vegar um daglegt líf fólks og fyrirtækja, mennta- og rannsóknarstofnana auk margra annarra mikilvægra þátta þjóðlífsins.
Það liggja fyrir um 20 lögfræðilegar álitsgerðir sem snúa að stjórnarskránni og EES-samningnum í einni eða annarri mynd og í öllum tilvikum hefur fundist farsæl niðurstaða án þess að stjórnarskránni sé ógnað.
Nú hafa þingmenn þó deilt árum saman um breytingu á lögunum um EES-samninginn. Málið snýst um að þeir sem lúta íslenskri lögsögu sitji við sama borð og aðrir þegar kemur að réttindum samkvæmt reglum um fjórfrelsið og aðgangi að sameiginlega evrópska markaðnum.
Þessi deila er kennd við bókun 35 við EES-samninginn sem hefur gilt hér í rúm 30 ár en ekki hefur tekist að framkvæma á viðunandi hátt með íslenskum lögum að mati Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) sem hefur vísað samningsbrotamáli á hendur íslenskum stjórnvöldum til EFTA-dómstólsins.
Þingmenn standa nú frammi fyrir því að gera úrslitatilraun til að ná saman um málið eða það kemur til kasta EFTA-dómstólsins. Lögfræðingar deila bæði um efni tillögu að nýju lagaákvæði sem liggur nú fyrir alþingi og um það hvernig staðið skuli að málum gagnvart dómstólnum. Sterkar raddir eru um að krefjast eigi frávísunar málsins.
Í grein í Morgunblaðinu í dag hvetur Baldur Guðlaugsson lögfræðingur ríkisstjórnina til að stofna „nú þegar til samstarfs allra stjórnmálaflokka sem eiga fulltrúa á Alþingi þar sem leitast verði við að ná sem víðtækastri sátt um það hvernig rétt sé að bregðast við samningsbrotamáli ESA“.
Baldur segir réttilega að hefðbundnar skylmingar stjórnar og stjórnarandstöðu eigi „nefnilega ekki við í þessu máli“.

Því miður virtist sem svo þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra skellti þessu máli enn einu sinni fyrir alþingi eftir að hún tapaði í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst að það væri gert til að ögra stjórnarandstöðunni, minna hana á hver færi með valdið og kynni að beita því til að skapa andstæðingum sínum vandræði. Þessi framganga ráðherrans bendir ekki til þess að á stjórnarheimilinu sé vilji til að fara að skynsamlegri tillögu Baldurs Guðlaugssonar um að leitað sé að sameiginlegri niðurstöðu allra flokka í þessari lögfræðilegu þrætu.
Miðflokkurinn lætur helst til sín taka í andstöðunni og þar fer fremst lögfræðingurinn Sigríður Á. Andersen sem var þó á sínum tíma í starfshópnum sem gerði tillöguna sem hún finnur nú allt til foráttu.
Fyrir nokkrum vikum sat ég í sjónvarpsþættinum Silfrinu við hlið Bergþórs Ólasonar, þingmanns Miðflokksins, sem fann að orðalagi í frumvarpinu sem kennt er við bókun 35. Ég sagði þá að þingmenn hlytu að geta komið sér saman um viðunandi orðalag og þótti mér Bergþór taka undir það.
Á borðum þingmanna er flest mikilvægara en að deila um bókun 35; að deila um áhrif hennar deilunnar vegna er ekki þess virði; kröftunum á frekar að verja til að finna sameiginlega lausn.