Þegar stríðsleikir verða alvörumál
Það sem helst vekur athygli er ekki að menn spái styrjöld heldur að þeir sem best þekkja til öryggis- og varnarmála telji nauðsynlegt að undirbúa þjóðir sínar undir ákvarðanir sem áður þóttu fjarlægar
Ég þýddi bókina Ef Rússar sigra eftir þýska stjórnmálafræðinginn Carlo Masala vegna þess að mér þótti hann draga upp raunhæfa mynd af því hvernig Rússar gætu reynt á varnir Atlantshafsbandalagsins og pólitíska samstöðu aðildarríkjanna. Bókin er ekki spádómur heldur sviðsmynd. Hún sýnir hvernig takmörkuð hernaðaraðgerð getur kallað fram ákvarðanir sem ráða úrslitum um miklu meira en umdeilt landsvæði.
Sunnudaginn 15. nóvember birtir breska dagblaðið The Telegraph gagnvirkan stríðsleik á vefsíðu sinni. Lesandanum er boðið að setjast í sæti fulltrúa Breta í Norður-Atlantshafsráðinu, æðstu pólitísku stofnun NATO, og taka afstöðu til atburðarásar sem gæti leitt til hernaðarátaka við Rússa.
Sviðsmyndin hefst sumarið 2027. Í henni hefur vopnahlé haldist í Úkraínu frá desember 2026 en Rússar hafa ekki dregið úr hernaðarviðbúnaði sínum. Belarús krefst þess að Pólverjar og Litháar heimili för heilbrigðisstarfsfólks um Suwałki-hliðið, landsvæðið milli Belarús og rússnesku Kalíníngrad-hólmlendunnar, vegna farsóttar sem sögð er geisa þar. Jafnframt magnast trúarleg spenna við landamæri Eistlands og Rússlands og rússnesk herskip eru send til Kalíníngrad.
The Telegraph segir leikinn bæði skemmtun og áminningu um heim vaxandi ógna og fjölþátta hernaðar. Spurningin sé hversu vel Vesturlönd séu búin undir að bregðast við.
Það er athyglisvert að stórt breskt dagblað telji nú ástæðu til að færa slíka sviðsmynd úr bókum og sérfræðiumræðum yfir í gagnvirkan leik fyrir almenning. Þar með er lesandanum ekki aðeins sagt frá hættunni. Hann er látinn glíma við hana.
Þess er reglulega krafist af baráttufólki á götum Varsjár í Póllandi að einræði verði afnumið í Belarús.
Í Danmörku má sjá aðra hlið á sömu þróun.
Í frétt á Altinget 12. nóvember er sagt frá stofnun nýrrar hugveitu, Copenhagen Geopolitics, undir stjórn Lars Findsen, fyrrverandi yfirmanns beggja dönsku leyniþjónustustofnananna, PET og FE. Findsen hefur einnig verið ráðuneytisstjóri í danska varnarmálaráðuneytinu. Hann þekkir því bæði leyniþjónustustarfsemi, stjórnsýslu og ferli pólitískra ákvarðana af eigin raun.
Að baki hugveitunni stendur sjóðurinn Kraka sem hefur í fimmtán ár einkum fengist við rannsóknir á velferðarhagfræði. Nú er ákveðið að breyta um stefnu og beina starfseminni að alþjóðastjórnmálum, öryggis- og varnarmálum og viðbúnaði. Í fagráði hugveitunnar sitja meðal annarra tveir fyrrverandi utanríkisráðherrar, Per Stig Møller og Holger K. Nielsen, sem koma úr ólíkum stjórnmálaflokkum.
Markmið nýju hugveitunnar er meðal annars að skilgreina grundvallarhagsmuni Danmerkur, meta raunverulegt athafnafrelsi ríkisins við breyttar alþjóðlegar aðstæður og greina hvaða ákvarðanir þurfi að taka nú til að varðveita það til framtíðar.
Það segir sína sögu um mat reyndra manna á alþjóðastöðunni að þeir telji nú nauðsynlegt að beina sérþekkingu og fjármunum að undirbúningi ákvarðana sem áður þóttu fjarlægar.
Þessi umræða varðar Ísland beint. Það er því full ástæða til að fylgjast sérstaklega með því hvernig nágrannaþjóðir okkar bregðast við breyttu hættumati. Bretar færa hugsanleg átök inn í almenna umræðu með því að láta fólk taka ákvarðanir í stríðsleik. Danir stofna nýjan vettvang þar sem reyndir sérfræðingar, fyrrverandi ráðherrar og stjórnendur öryggisstofnana eiga að leggja mat á hagsmuni ríkisins og framtíðarákvarðanir.
Hvort tveggja vekur spurningar um íslenska umræðu. Er hér nægur skilningur á því hvernig öryggi landsins kann að verða ógnað með litlum fyrirvara og við aðstæður sem við höfum ekki áður kynnst? Er skipulega unnið að því að tengja saman sérþekkingu á alþjóðastjórnmálum, hernaðarmálum, innviðum og íslenskri stjórnsýslu?
Það sem helst vekur athygli er ekki að menn spái styrjöld heldur að þeir sem best þekkja til öryggis- og varnarmála telji nauðsynlegt að búa þjóðir sínar undir ákvarðanir sem áður þóttu fjarlægar. Hvers vegna ættum við Íslendingar að meta stöðuna á annan veg?