Þáttaskil í Reykjavík
Nú gerðist það í fyrsta sinn í 20 ár að Dagur B. Eggertsson var ekki í forsvari fyrir Samfylkinguna í sjónvarpssal kvöldið fyrir kjördag þegar oddvitar Reykjavíkurlistanna hittust.
Gengið er til sveitarstjórnarkosninga í dag.
Ég tek undir með þeim sem vilja frekar kalla þetta byggðakosningar. Það er þjálla orð og enginn vafi ríkir um stafsetninguna en til skiptis má sjá á prenti orðin sveitarstjórnakosningar eða sveitarstjórnarkosningar.
Þegar nafnorðið byggð er fyrri liður í samsettu orði stendur það í eignarfalli fleirtölu eins og í orðinu byggðakosningar en orðið sveitastjórn stendur í eintölu eins og í orðinu sveitarstjórnarkosningar. Reglan um eignarfallsendingar í samsettum orðum er að frekar eigi að velja eintölu fyrra orðsins. Hún er þó ekki án undantekninga eins og svo margt annað.
Nú gerðist það í fyrsta sinn í 20 ár að Dagur B. Eggertsson var ekki í forsvari fyrir Samfylkinguna í sjónvarpssal kvöldið fyrir kjördag þegar oddvitar Reykjavíkurlistanna 11 hittust og gerðu áhorfendum grein fyrir störfum sínum og stefnu.
Yfirbragð kappræðnanna var annað án Dags B. vegna þess hve hann var oft öruggur um eigið ágæti og stefnu sinnar og átti auðvelt með að sannfæra sjálfan sig og stóran hluta kjósenda um að allt væri á réttri leið undir sinni stjórn og samstarfsflokka sinna. Þá lagði hann gjarnan lykkju á leið sína til að koma ómaklegu höggi á Sjálfstæðisflokkinn og frambjóðendur hans.
Megi marka samfélagsmiðla eru margir gamalgrónir stuðningsmenn Samfylkingarinnar töluvert miður sín eftir sjónvarpsumræðurnar að kvöldi 15. maí vegna þess hve andaði köldu af hálfu annarra frambjóðenda í garð flokks þeirra fyrir utan að oddviti hans, Pétur H. Marteinsson, vill draga skil á milli sín og arfleifðar Dags B. Gamli leiðtoginn lét ekkert að sér kveða í kosningabaráttunni til stuðnings lista Samfylkingarinnar sem flaggaði á hinn bóginn Kristrúnu Frostadóttur í sjónvarpsauglýsingum.
Af ruv.is 15. maí 2026.
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, stóð sig best í kappræðum kvöldsins á RÚV að mati áhorfenda, sem greiddu atkvæði með smáforritinu RÚV-stjörnur. Hildur fékk 22,5% atkvæða og var með töluvert forskot á næstu oddvita, sagði í frétt á ruv.is skömmu eftir að útsendingu kappræðnanna lauk.
Undir það skal tekið að Hildur stóð sig langbest í þessum þætti eins og hún hefur gert í allri kosningabaráttunni þar sem henni hefur tekist að koma stefnumálum Sjálfstæðisflokksins til skila án áreitni í garð annarra.
Augljóst er að Hildur hefur ekki aðeins yfirburðaþekkingu á borgarmálefnunum og skýra sýn á hvernig þau skuli leiða til betri vegar heldur hefur hún auk þess einhuga lista að baki sér. Sú aðferð sjálfstæðismanna í borginni að boða til leiðtogakjörs og skapa síðan svigrúm fyrir þann sem naut þar óskoraðs trausts til að velja sér liðsmenn skilar greinilega árangri.
Nú keppast aðrir frambjóðendur ekki við að útmála hvers vegna þeim sé ekki fært að starfa með sjálfstæðismönhum að loknum kosningum heldur tala á þann veg sem þeir telja að falli inn í umgjörðina sem Hildur hefur mótað með málflutningi sínum.
Mörg góð teikn eru á lofti um breytingar á stjórn Reykjavíkur.