1.11.2026 10:32

Teikn um friðarviðræður?

Menn geta talið Pútín ótrúverðugan og samt viljað kanna samningsleiðir. Samtöl eru tæki til að afla vitneskju, prófa afstöðu og flytja skilaboð.

Ný teikn eru á lofti um þreifingar Evrópumanna, samhliða Bandaríkjamönnum, um samtöl við Rússa um frið í Úkraínu. Níutíu mínútna símtal Alexanders Stubbs Finnlandsforseta og Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, þriðjudaginn 27. október við Vladimír Pútín verður að skoða í því ljósi. Áður höfðu þeir rætt við Steve Witkoff, sérstakan erindreka Donalds Trumps, í Ósló, þar sem Volodymyr Zelenskíj Úkraínuforseti var einnig til viðræðna.

Símtalið tengdist þannig samskiptum við bæði Bandaríkjamenn og Úkraínumenn. Zelenskíj lýsti þakklæti fyrir stuðning Finna og Norðmanna við diplómatíska viðleitni Úkraínu. Það vegur þungt við mat á frumkvæðinu.

Screenshot-2026-11-01-at-10.30.10Volodymyr Zelenskíj, Jonas Gahr Støre og Alexander Stubb á blaðaannafundi í Osló 26. október 2026,

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, brást engu að síður hart við. Hún sagði að halda ætti Evrópu saman í stað þess að fara eigin leiðir. Støre sagði að aðrir hefðu verið upplýstir en Mette taldi samráð skorta. Að upplýsa bandamenn um ákvörðun er ekki það sama og að móta hana með þeim.

Gagnrýni Mette ræðst einnig af mati hennar á áformum Pútíns. Í Kaupmannahöfn 29. október sagði hún Rússland ekki vilja frið. Stríð væri liður í langtímaáætlun um að stækka ríkið. Sú viðvörun er réttmæt. Rússland er árásarríkið og eitt símtal breytir ekki þeirri staðreynd.

Orð Marcos Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, eftir fund utanríkisráðherra G20-ríkjanna í Atlanta 31. október skýra rökin fyrir samtölum. Samningslausn krefðist samskipta við bæði Rússa og Úkraínumenn. Samskipti jafngiltu ekki samþykki fyrir gerðum viðmælandans. Rubio kvaðst ekki vita hvort samningsfriður væri mögulegur. Bandaríkjamenn vildu komast að því.

Menn geta talið Pútín ótrúverðugan og samt viljað kanna samningsleiðir. Samtöl eru tæki til að afla vitneskju, prófa afstöðu og flytja skilaboð. Þau þurfa hvorki að fela í sér tilslökun né fráhvarf frá stuðningi við Úkraínu. Bandaríska utanríkisráðuneytið samþykkti til dæmis 30. október fyrirhugaða sölu á 500 Patriot-varnarflaugum til Úkraínu, fjármagnaða af Kanada, Þýskalandi og Noregi.

Asle Toje, norskur utanríkismálafræðingur og varaformaður norsku Nóbelsnefndarinnar, bendir í Weekendavisen á að Evrópumenn geti tæpast krafist sætis við samningaborðið án þess að ræða við þá sem sitja handan þess. Frumkvæði Stubbs og Støre vekur jafnframt spurninguna hver tali fyrir Evrópu. Finnland er í ESB en Noregur utan þess. Bæði eru í NATO. Evrópskt frumkvæði þarf ekki að eiga upptök sín í Brussel.

Toje telur þó ágreininginn eiga sér dýpri rætur. Bandaríkjamenn óttist að framhald stríðsins veiki samningsstöðu Úkraínu. Sumir Evrópuleiðtogar telji úthald Úkraínumanna, stuðning bandamanna og þrýsting á Rússa geta skilað betri niðurstöðu. Vinnur tíminn með Úkraínu eða gegn henni?

Of snemmt er að fullyrða að friðarviðræður séu að hefjast. Símtalið og þátttaka Sergejs Lavrov, utanríkisráðherra Rússa, í G20-fundinum í Atlanta sýna þó aukin samskipti. Mannúðarsamkomulagið um friðsamlega brottför Úkraínumanna frá víglínubænum Oleshkíj og um flutning nauðþurfta þangað eftir hernám síðan í febrúar 2022 sýnir einnig að afmarkaðir samningar geta skilað árangri þótt stríðið haldi áfram. Þetta gefur tilefni til að kanna samningsleiðina án þess að slaka á stuðningi við Úkraínu.