Sviðsmyndir sem mega ekki rætast
Fyrir tuttugu árum hefði sviðsmynd af öryggisumhverfi Norður-Atlantshafs árið 2026 þótt ótrúleg. Það er einmitt gildi sviðsmynda Masala og Fulda: Að vara við því sem getur gerst svo að unnt sé að koma í veg fyrir það.
Þá er þriðja bókin sem ég þýddi á fyrri hluta ársins komin út, Þegar Kína gerir árás – sviðsmynd (198 bls.) eftir þýska stjórnmálafræðinginn Andreas Fulda, sérfræðing í samskiptum Kína og ESB og dósent við háskólann í Nottingham í Bretlandi. Ugla gefur út þessa kilju eins og hinar tvær, Einræði hf. (238 bls.) eftir Anne Applebaum og Ef Rússar sigra – sviðsmynd (135 bls.) eftir Carlo Masala.
Í mínum huga mynda þessar þrjár bækur eina heild. Þær eru til marks um að nýir tímar blasa við á alþjóðavettvangi.
Ég lít á þýðingarnar og vilja Jakobs F. Ásgeirssonar til að gefa þær út svo að segja samtímis sem tilraun til að draga línu í sandinn og benda á að nýtt skeið sé hafið í alþjóðastjórnmálum og öryggismálum. Viðhorf eru hvarvetna þjóðernissinnaðri en áður og tengsl valda við fjárhagslega hagsmuni, hráefni og landsvæði verða sífellt augljósari.
Pútin telur Rússa eiga sögulegt tilkall til Úkraínu og Xi Jinping segir Taívan hluta af Kína. Donald Trump beitti hervaldi gegn Venesúela og Íran, segist hafa náð tökum á olíulindum Venesúela en ræður ekki við Írana. Í Úkraínu hefur myndast pattstaða og hætta er á hinu sama í Íran. Ætlar Xi að taka áhættuna á sambærilegri stöðu gagnvart Taívan?

Í lok inngangs að bók sinni segir Andreas Fulda:
„Með því að lesa skrif mín og ræða þau við ættingja, vini og samstarfsfólk leggur þú þitt af mörkum til bráðnauðsynlegrar umræðu. Ég þakka þér strax fyrir það, því þessi bók er ekki svartsýnisspá heldur viðvörun. Ég vona að bókin og umræðan sem hún vekur haldi þessari myrku ógn frá okkur. Við sem myndum frjálsar þjóðir Vesturlanda verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að þessi dapurlega atburðarás verði ekki að veruleika.“
Segja má að Applebaum lýsi veröldinni eins og hún er en þeir Masala og Fulda hvernig hún geti orðið verði ekki farið að hvatningu Applebaum um að frjálsar lýðræðisþjóðir standi saman gegn þeim ríkjum sem mynda Einræði hf.
Sviðsmyndasmiðirnir segja báðir að þeir hafi orðið að velja þá atburðarás sem þeim þætti líklegust miðað við þekkingu sína og forsendur líðandi stundar. Þar liggur einmitt gildi slíkra sviðsmynda. Þær eiga að neyða okkur til að horfast í augu við það sem getur gerst áður en það gerist.
Í gær, 30. september, voru rétt 20 ár liðin frá því að Keflavíkurstöðinni var lokað og síðustu bandarísku hermennirnir, sem höfðu haft hér fasta viðveru frá 1951, hurfu af landi brott.
Ég veit ekki til þess að neinn hafi þá gert sviðsmynd af því sem gerast myndi í öryggismálum á Norður-Atlantshafi næstu 20 árin. Hitt veit ég að við vorum nokkrir sem sögðum við háttsetta Bandaríkjamenn að það væri varasamt að hverfa héðan með allt sitt lið og viðbúnað. Þar var talað fyrir daufum eyrum. Ekki leið þó á löngu þar til þær raddir heyrðust í Washington að ákvörðun bandarískra stjórnvalda um að loka stöðinni hefði einkennst af skammsýni.
Þörfin fyrir herafla í Írak var meðal þess sem réð afstöðu Bandaríkjastjórnar árið 2006. Í gær lauk formlega langri og dapurlegri herför Bandaríkjanna í Írak sem hófst 2003. Síðustu bandarísku hermennirnir yfirgáfu landið og skildu eftir sig þjóð í sárum, segir The New York Times í dag.
Hefði einhver tekið sér fyrir hendur árið 2006 að gera sviðsmynd af stöðu öryggismála á Norður-Atlantshafi árið 2026 og gildi Keflavíkurstöðvarinnar fyrir NATO og varnir Norður-Ameríku hefði margt af því sem nú blasir við þótt langsótt, jafnvel ótrúlegt.
Það er einmitt tilgangurinn með sviðsmyndum þeirra Masala og Fulda. Þær eru ekki spádómar um óhjákvæmilega framtíð heldur viðvaranir um hvert stefnir verði ekkert að gert.
Við skulum vona að þær rætist ekki. Besti mælikvarðinn á gildi þeirra væri einmitt að viðvörunin yrði tekin svo alvarlega að atburðarásin sem þær lýsa yrði aldrei að veruleika.