8.6.2025 9:38

Sumarstarfið á Kvoslæk

Nú í ár höfum við Rut í 14 sumur fengið listamenn og aðra til að koma fram í Hlöðunni hjá okkur á Kvoslæk og fræða gesti um allt milli himins og jarðar eða flytja tónlist og talað mál.

Screenshot-2025-06-08-at-09.09.17Nú í ár höfum við Rut í 14 sumur fengið listamenn og aðra til að koma fram í Hlöðunni hjá okkur á Kvoslæk og fræða gesti um allt milli himins og jarðar eða flytja tónlist og talað mál. Hér er dagskráin eins og við höfum skipulagt hana í sumar. 

Við hefðum ekki haldið úti þessu starfi nema vegna þess að okkur er bæði vel tekið af þeim sem við bjóðum að koma fram og viðburðirnir eru að jafnaði vel sóttir. Finnst mörgum skemmtilegt að fá með komunni tækifæri til að kynnast fegurðinni og víðsýninu héðan frá Kvoslæk með Eyjafjallajökul í austri, Vestmannaeyjar í suðri og Þríhyrning í norðri.

Þá hefur starf okkar jafnan notið velvildar þeirra sem veita styrki úr uppbyggingarsjóði  SASS, Sambands sunnlenskra sveitarfélaga, auk menningarsjóðs Rangárþings eystra sé til hans leitað. Við metum einnig mikils viðurkenningar Fljótshlíðinga og SASS á starfinu.

D56b4a78-0204-4fd5-a62d-89fbd3ce180aHrafnhildur Inga Sigurðardóttir við eitt verka sinna.

Fyrsti viðburðurinn verður eins og að ofan greinir laugardaginn 14. júní kl. 15.00 þegar Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir listmálari frá Vestur-Sámsstöðum, nú búsett á Sámsstaðabakka í Fljótshlíð kynnir listköpun sína undir fyrirsögninni: Frá hagahliðinu.

Hrafnhildur Inga fæddist 19. mars 1946 að Vestur-Sámsstöðum í Fljótshlíð og ólst þar upp. Hún hefur lengst af búið á höfuðborgarsvæðinu en hefur snúið á heimaslóðir á ný og býr nú jöfnum höndum í Garðabæ og á Sámsstaðabakka í Fljótshlíð við bakka Þverár. Hún stundaði myndlistarnám við Myndlistarskóla Reykjavíkur 1978 og 1979, Myndlista- og handíðaskóla Íslands, nú Listaháskóla Íslands, 1980-1984 og lauk þaðan prófi í grafískri hönnun. Árin 1999-2000 bætti hún við sig námi í olíumálun í Myndlistarskóla Kópavogs.

Hrafnhildur Inga hefur eingöngu verið við myndlist undanfarin 25 ár. Hún heldur reglulega einkasýningar í Gallerí Fold auk einkasýninga víðar, m.a. í Hafnarborg árið 2007, Artóteki 2012 og í Vínarborg 2024. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og listamessum víða um heim.

Séu ekki miklar tafir við akstur í gegnum Selfoss tekur að minnsta kosti 90 mínútur að aka 110 km frá Reykjavík austur að Kvoslæk en inn í Fljótshlíðina er ekið rétt áður en komið er í gegnum Hvolsvöll. Fyrir heimferð bjóðum við kaffi í Fjósinu við hliðina á Hlöðunni, Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir!