Strategískur fávitaháttur ajatollanna
„Við myrkvaða hugmyndafræði sína bættu ajatollarnir gráu ofan á svart og sér til falls, strategískum fávitahætti,“ segir Renaud Girard í lok greinar sinnar.
Í grein í Le Figaro í dag (3. mars) segir Renaud Girard, sem hefur starfað sem stríðsfréttaritari og skrifað bækur um Mið-Austurlönd, geópólitík og alþjóðasamskipti, að með því að sprengja olíuríkin við Persaflóa hafi ajatollarnir í Íran bætt strategískum fávitahætti við myrkvaða hugmyndafræði sína.
Íranska sjía-klerkaveldið, sem hafi verið við völd í Teheran í 47 ár, hafi aldrei virst jafn veikt. Því sé bæði ögrað að innan og ráðist á það að utan.
Heima fyrir hafi það misst allan stuðning meðal menntaðra millistétta síðan það beitti blóðugum aðferðum við að bæla niður almenn mótmæli gegn verðhækkunum og efnahagslegri óstjórn ríkisstjórnarinnar 8. janúar 2026.
Renaud Girard.
Girard segir að fyrstu strategísku mistökin hafi verið að telja klunnaskap jafngilda veikleika. Ísrael standi ekki veikt. Þar sé rík og iðjusöm þjóð, staðráðin í að verja sig. Með því að hóta Ísrael beint, hafi íranska klerkaveldið einfaldlega tekið of mikið upp í sig. Það hafi tapað að lokum. Þegar Trump komst aftur til valda snemma árs 2025 hefði það átt að vera varkárara og gera strax tilslakanir, svo sem að viðurkenna tilverurétt Ísraels innan landamæra þess frá 1966 og forðast að auðga úran umfram 4%, sem sé það magn sem þurfi til raforkuframleiðslu.
Önnur strategísku mistökin hafi verið að setja í forgang að verja stórfé og kröftum hernaðarlega og pólitískt til að mynda öxulveldi sjía-múslíma í Mið-Austurlöndum (Teheran-Bagdad-Damaskus-Beirút-Sana) fram yfir að sinna brýnum efnahagslegum verkefnum í þágu ungrar og ört fjölgandi íbúa Írans.
Þriðju strategísku mistökin birtist núna og Girard spyr: Hvers vegna hófu Íranir að sprengja olíuríkin við Persaflóa, sem höfðu gert allt til að fá Trump ofan af því að fara í stríð? Hefði ekki verið skynsamlegra að forðast árásir á ríki súnní-múslíma og beina öllum árásum gegn Ísrael og reyna að æsa allan múslímska heiminn til átaka gegn „djöflum“ zíonista?
„Við myrkvaða hugmyndafræði sína bættu ajatollarnir gráu ofan á svart og sér til falls, strategískum fávitahætti,“ segir Renaud Girard í lok greinar sinnar.
Ástæðulaust er að líta fram hjá því sem þarna segir þegar rætt er um átökin sem setja svip sinn á öll Mið-Austurlönd eftir að Íranir hafa ráðist á 12 lönd á fáeinum sólarhringum. Þeim hefur gjörsamlega mistekist að stofna til samstöðu gegn Ísraelum og Bandaríkjamönnum hvað sem sagt er um virðingu eða virðingarleysi þeirra fyrir alþjóðalögum.
Það verður að hafa inni í myndinni að ajatollarnir í Íran hafa komið þar á ógnar- og einræðisstjórn og æðsta klerknum sem drepinn var á fyrsta degi innrásarinnar má helst líkja við Hitler eða Stalín, illmennin í Evrópu á 20. öldinni.