17.5.2026 11:22

Stórsókn sjálfstæðismanna

Forystumenn stjórnarflokkanna verða að líta í eigin barm og meta eigin styrk og stöðu þegar þeir rýna í úrslitin. Flokkur fólksins datt út í Reykjavík jafnvel þótt oddviti hans ætti þann draum að reist yrði stytta af Ingu Sæland í höfuðborginni.

Hér í minni sveit, Rangárþingi eystra, féllu atkvæði þannig í kosningunum 16. maí að B – Framsókn og aðrir framfarasinnar fékk 320 atkv., 28,2%, og 2 fulltrúa, D-listinn og aðrir lýðræðissinnar fékk 624 atkv., 55,1%, og 4 fulltrúa og N-listinn fékk 189 atkv., 16,7%, og 1 fulltrúa. Á kjörskrá: 1.547 Kjörsókn: 1.145 (74,0%) Auð: 9 (0,8%); Ógild: 3 (0,3%). Þetta er í fyrsta sinn í sögu sveitarfélagsins sem D-listinn fær þar meirihluta. Glæsilegt!

D-listinn var í samstarfi við N-listann á liðnu kjörtímabili. Í meirihluta sveitarstjórnar verður gott fólk undir forystu Antons Kára Halldórssonar sveitarstjóra. D-listinn háði kröftuga kosningabaráttu. Hann gaf út góða stefnuskrá sem frambjóðendur fóru með á hvern bæ og ræddu við heimafólk. Störfin í þágu sveitarfélagsins og góð kosningabarátta skiluðu sínu.

700500430_1394933829327329_2239064072069721133_nÍ fyrsta sinn er D-listiinn með meirihluta í Rangrþingi eystra. Hér er mynd af þeim sem sitja á listanum.

Sjálfstæðisflokkurinn getur mjög vel unað við fylgi sitt hér á Suðurlandi. Fyrir utank hreinan meirihluta hér hlaut hann aukinn stuðning til meirihlutastarfs í Vestmannaeyjum (55,7%), Árborg (52,8%) og Ölfusi (69,3%) svo að ég nefni fjölmennustu staðina í nágrenninu. Hann felldi meirihlutann í Hveragerði (43,9%). Í Rangárþingi ytra er flokkurinn áfram í minnihluta með 48,7%.

Sjálfstæðisflokkurinn jók ekki aðeins fylgi sitt hér á þessum slóðum heldur miklu víðar. Athyglin beinist mest að glæsilegum árangri hans á höfuðborgarsvæðinu, þar sem meirihlutar flokksins héldu velli með auknum styrk í Garðabæ (58%) og á Seltjarnarnesi (51,9%) auk þess sem hann vann hreinan meirihluta í Kópavogi (45,7%) og felldi vinstri meirihlutana í Mosfellsbæ (42,2%) og í Reykjavík (32,5%). Flokkurinn hélt forystustöðu sinni í Hafnarfirði (27,7%) þar sem Samfylkingin (17,8%) galt afhroð og efsti maður á lista hennar, varaformaður Samfylkingarinnar, Guðmundur Árni Stefánsson, ákvað að axla ábyrgð með því að draga sig í hlé.

Lokatölur í Reykjavík lágu fyrir rétt fyrir klukkan fjögur að morgni 17. maí. Sjálfstæðisflokkurinn vann sinn stærsta sigur í höfuðborginni síðan í kosningunum 2010. Þegar ég leiddi D-listann í Reykjavík 2002 fékk hann 40,25% atkvæða sem undirmálsmennirnir sem skrifa fyrir Viðreisn á dv.is kalla nú afhroð!

D-listinn fékk nú 32.5% atkvæða í Reykjavík og níu af 23 borgarfulltrúum, bætir við sig þremur. Samfylkingin bíður sitt mesta afhroð í borginni frá því að hún bauð fyrst fram þar árið 2006 þegar hún fékk 26,9% en fær nú aðeins 17,7% atkvæða þótt hún haldi fimm borgarfulltrúum. Miðflokkurinn náði ekki inn 2022 en er nú þriðji stærsti flokkurinn með 12,4%, Viðreisn og Vinstrið fá tvo borgarfulltrúa en Framsóknarflokkurinn einn líkt og Sósíalistaflokkurinn.

Hildur Björnsdóttir á D-lista vann ekki aðeins kosningabaráttuna í Reykjavík heldur einnig kosningarnar. Hún tók af skarið um skipan D-framboðslistans og uppskar óánægju gamalla borgarfulltrúa á listanum sem fóru í Miðflokkinn og skrifuðu þannig um Hildi að varla verður kennt við annað en níð. Hvort Ari Edwald oddviti Miðflokksins leiði þetta fólk til áhrifa með borgarstjórnarflokki sínum kann að ráða einhverju við myndun meirihluta í borgarstjórninni.

Forystumenn stjórnarflokkanna verða að líta í eigin barm og meta eigin styrk og stöðu þegar þeir rýna í úrslitin. Flokkur fólksins datt út í Reykjavík jafnvel þótt oddviti hans ætti þann draum að reist yrði stytta af Ingu Sæland í höfuðborginni.

Ætlar Inga að halda áfram að styðja ESB-feigðarflanið á alþingi? Fulltrúi hennar í utanríkismálanefnd alþingis getur brugðið fæti fyrir það næstu daga. Hefur Inga þrek til að taka á því máli? Lætur hún allt yfir sig ganga vegna ráðherrastólsins?

Össur Skarphéðinsson sagði að Samfylkingin stæði á blístri við að halda lífi í Viðreisn með stuðningi við ESB-tillögu formanns Viðreisnar. Orðin féllu þegar Viðreisn snerist opinberlega gegn Samfylkingunni í Reykjavík og yfirgaf skip sem greinilega var að sökkva.

Kristrún Frostadóttir lagði mest flokksformanna undir í kosningabaráttunni og hafði afhroð í Hafnarfirði og Reykjavík upp úr krafsinu auk óvildar Kópavogsbúa. Rangmat á eigin ágæti og kjörþokka hefur sjaldan birst á svo augljósan hátt.

Þær ættu nú að hittast forystukonur ríkisstjórnarinnar og syngja hver með sínu nefi, tróið hvarf.