Spurningunni um Viðreisn ósvarað
Gagnrýni á Sjálfstæðisflokkinn svarar engu um það hvaða áhrif ósigur Viðreisnar í máli sem varðar tilvist flokksins hefur á hann og líf ríkisstjórnarinnar.
Í grein sem birtist á Vísi 11. nóvember tekur Stefán Hrafn Jónsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, til umræðu ummæli mín um stöðu Viðreisnar eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB-viðræður. Hann kýs þó að verja mestu rými til að gagnrýna Sjálfstæðisflokkinn.
Ég hef vakið máls á því hvað ósigur í tilvistarmáli Viðreisnar þýði fyrir flokkinn og líf ríkisstjórnarinnar. Þar er spurt um pólitískar afleiðingar niðurstöðu mikilvægrar þjóðaratkvæðagreiðslu. Spurningum vegna hennar verður ekki svarað með upptalningu á meintum mistökum annars flokks.
Stefán Hrafn snýr sér að mér eins og ég tali fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Mér er ljúft að staðfesta að ég er sjálfstæðismaður. Ég hætti hins vegar beinni þátttöku í stjórnmálum sem fulltrúi flokksins árið 2009 og hef síðan skrifað um opinber málefni á eigin forsendum og ábyrgð, óháð störfum og stefnu flokksins. Þeir sem vilja andmæla skrifum mínum verða að takast á við það sem þar stendur.
Það var snjóföl á Tjarnarísnum um kl. 08.00 að morgni 12. nóvember 2026,
Prófessor hefur sama frelsi og aðrir til að láta skoðanir sínar í ljós. Mér dytti þó ekki í hug að svara grein Stefáns Hrafns með upptalningu á því sem ég teldi hafa farið úrskeiðis í Háskóla Íslands. Með því væri ég að tala um annað en hann hefur sjálfur til málanna að leggja. Með sama hætti leysir gagnrýni hans á Sjálfstæðisflokkinn hann ekki undan því að svara röksemdum mínum þegar þær gefa honum tilefni til greinarskrifa.
Í upphafi greinar sinnar tengir Stefán Hrafn spurningu mína um tilvistargrundvöll Viðreisnar við vantraust á getu kjósenda til að meta aðra flokka en Sjálfstæðisflokkinn. Hvernig kemst hann að þessari niðurstöðu? Að ræða áhrif úrslita þjóðaratkvæðagreiðslu er eðlilegur þáttur stjórnmálaumræðu. Kjósendur tóku ákvörðun. Nú er lagt mat á hvað hún þýðir.
Samanburður Stefáns Hrafns á fylgi já-hliðarinnar og Sjálfstæðisflokksins segir ekkert um það sem ég geri að umtalsefni. Hann gengur raunar svo langt að segja að Viðreisn hafi fengið næstum helming atkvæða 29. ágúst. Viðreisn var ekki á kjörseðlinum. Atkvæði með viðræðum um ESB-aðild verða ekki færð á reikning eins stjórnmálaflokks þótt þjóðaratkvæðagreiðsluna megi rekja til hans.
Stefán Hrafn hefði getað rökstutt að ég legði of mikið upp úr vægi ESB-málsins fyrir Viðreisn. Hann hefði getað skýrt hvaða pólitíska verkefni tæki við og hvers vegna ósigurinn hefði lítil áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið. Ábending hans um að fletta megi upp stefnumálum Viðreisnar kemur ekki í stað slíkrar greiningar.
Þess í stað kynnir hann lesendum hugleiðingar um biturð og heift. Honum dettur meira að segja í hug að „flokkurinn líti á brotthvarf sem framhjáhald fremur en sjálfstæða ígrundaða ákvörðun“. Með þessu eru mér og öðrum eignaðar hvatir sem höfundurinn rökstyður ekki og sjálfu tilefni greinarinnar ýtt til hliðar.
Þrátt fyrir allt púðrið sem Stefán Hrafn eyðir í Sjálfstæðisflokkinn svarar hann ekki þessari spurningu: Hvaða áhrif hefur ósigur Viðreisnar í máli sem varðar tilvist flokksins á hann og líf ríkisstjórnarinnar?
Að óreyndu hefði mátt ætla að þessi spurning vekti hugrenningar um annað en Sjálfstæðisflokkinn.