7.10.2026 9:56

Spenna á lokametrunum

Þegar samstaða verkalýðshreyfingarinnar er rofin á þann hátt sem hér er gert á ögurstundu býr oft eitthvað annað að baki en umhyggja fyrir umbjóðendum verkalýðsforingja.

Stýrivextir eru óbreyttir samkvæmt ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands nú að morgni 7. október. Meginvextir seðlabankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, eru því áfram 8%. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.

Í yfirlýsingu peningastefnunefndar segir að verðbólga hafi aukist enn frekar frá því í sumar. Hún mælist nú 5,9% og hafi ekki verið meiri í tvö ár. Stríðsátök í Mið-Austurlöndum og hækkun opinberra gjalda ráði nú mestu um verðbólgustigið. Undirliggjandi verðbólga hafi hins vegar haldist tiltölulega stöðug í liðlega 4% um nokkra hríð.

Nefndin segir að greinilega dragi nú úr efnahagsumsvifum en mæld og undirliggjandi verðbólga sé enn of mikil og verðbólguvæntingar of háar. Flest bendi þó til þess að verðbólga hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári en óvissa sé töluverð, ekki síst hvað varðar þróun alþjóðlegra efnahagsmála og framvindu á innlendum vinnumarkaði.

Allt er þetta rökrétt. Nokkuð dró úr óvissu á innlendum vinnumarkaði skömmu áður en ákvörðun seðlabankans var kynnt þar sem svonefnd breiðfylking á íslenskum vinnumarkaði sem Starfsgreinasamband Íslands, Efling stéttarfélag og Samiðn – Samband iðnfélaga mynda, skrifaði að kvöldi 6. október undir framlengingu kjarasamninga við Samtök atvinnulífisins (SA). Innan breiðfylkingarinnar eru um 60% af félagsmönnum Alþýðusambands Íslands.

1682737Vilhjálmur Birgisson og Bjarni Benediktsson handsala samkomulag að kvöldi 6. október 2026 (mbl.is/Eggert).

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, sagði í samtali við mbl.is eftir undirritunina að ekki væri „vitglóra í öðru en að bjarga þessum kjarasamningum“. Það „hefði verið galið“ að stefna umsömdum „launahækkunum í hættu á sama tíma og atvinnuleysið er að aukast“.

Vilhjálmur vísar þarna til stöðugleikasamningsins sem gerður var vorið 2024 með fjögurra ára gildistíma frá 1. febrúar 2024 til 31. janúar 2028 en samkvæmt honum eiga laun að hækka um 3,5% 1. janúar 2027. Í samkomulaginu sem ritað var undir 6. október er gildistíminn styttur til 31. desember 2027.

Markmið samningsins var m.a. að halda verðbólgu í skefjum sem ekki hefur tekist í tíð núverandi ríkisstjórnar og þess vegna má segja samningnum upp á morgun, 8. október. Forráðamenn um 60% félagsmanna innan ASÍ hafa nú ákveðið að falla frá uppsögn. Það gildir hins vegar ekki um fulltrúa Verslunarmannafélags Reykjavíkur (VR) og Rafiðnaðarsambandsins sem ætla að ræða við fulltrúa SA í dag.

Halla Gunnarsdóttir formaður VR hefur orð fyrir þessum hópi og satt að segja er erfitt að átta sig á hvert markmið hennar er. Halla talar um kröfur í baklandi sínu og viðrar sviðsmynd þar sem „satt að segja allt alveg frekar hæglega [gæti] farið í bál og brand“ svo að vitnað sé til orða hennar í Morgunblaðinu í dag.

Fyrir þá sem utan standa ber þessi afstaða keim af valdabaráttu innan ASÍ eða togstreitu milli þeirra sem fara þar fyrir einstökum félögum. Þegar samstaða verkalýðshreyfingarinnar er rofin á þann hátt sem hér er gert á ögurstundu býr oft eitthvað annað að baki en umhyggja fyrir umbjóðendum verkalýðsforingja.