12.6.2026 10:41

Sótt að Kristrúnu

Afstaða Magnúsar Geirs er hins vegar innan umræðuramma fréttastofu RÚV um ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Honum má lýsa með orðunum ekki rugga bátnum.

Þingfréttaritari ríkisútvarpsins, Magnús Geir Eyjólfsson, sýndi skort á pólitísku innsæi eða vilja til að gera lítið úr mótmælabréfi vegna brottfararstöðvar sem birtist á Vísi fimmtudaginn 11. júní frá samfylkingar- og jafnaðarfólki, alls 55 manns. Hér er vísað til orða hans í hádegisfréttum 11. júní þegar hann sagði eitthvað á þá leið að bréfið væri ekki fréttnæmt. Það hefðu komið fram andmæli við meðferð málsins í þingnefnd.

Gagnrýni á efni frumvarpa á nefndarstigi leiðir sjaldan til opinna bréfa eftir að lög hafa verið sett til að hindra framkvæmd þeirra. Afstaða Magnúsar Geirs er hins vegar innan umræðuramma fréttastofu RÚV um ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Honum má lýsa með orðunum ekki rugga bátnum.

Screenshot-2026-06-12-at-10.40.00Kristrún Frostadóttir (mbl/Eyþór).

Öldugangurinn er meiri og alvarlegri innan Samfylkingarinnar. Þar má til dæmis nefna neðangreinda færslu Guðmundar Andra Thorssonar á Facebook 11. júní og nokkur viðbrögð við henni. Sjón er sögu ríkari:

Guðmundur Andri Thorsson, fyrrv. þingmaður Samfylkingarinnar:

Ég hef gegnt trúnaðarstöðum fyrir Samfylkinguna og er þar enn félagi þó að ekki hafi verið virkur seinni árin. Góðir félagar tóku sig til og skrifuðu opið bréf þar sem þeir mótmæla nýjum lögum um „brottfararstöð“. Ég skrifaði undir það enda get ég ekki með nokkru móti fellt mig við að börn í viðkvæmri stöðu – já eða foreldrar þeirra – séu frelsissvipt fyrir það eitt að leita hér hælis, oftast undan óbærilegum aðstæðum.

Margrét Sigrún Björnsdóttir, fyrrv. formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar:

Kæri Guðmundur ég sendi þessa spurningu á Oddnýju [Harðardóttur, fyrrv. formann Samfylkingarinnar]: "Oddný mín það væri mjög gott að fá frá ykkur sem standið að þessari ályktun tillögu að betri/mannúðlegri málsmeðferð þe. hvað eiga stjórnvöld að gera konkret gagnvart hælisleitendum - bæði fullorðnum sem hafa fengið endanlega neitun um dvalarleyfi og börnum þeirra. Þetta er ekki sagt til að gera lítið úr ykkar mótmælum - öðru nær."

Sabine Leskopf fyrrv. borgarfulltrúi Samfylkingarinnar:

Margrét Sigrún Björnsdóttir ekki skjóta niður gagnrýni með þessu eldgamla retoriska trixi – það er fjöldi ábendinga um betri lausnir í þeim umsögnum fagfólks sem liggja fyrir og litið var fram hjá. Ábyrgðin liggur hjá þingmönnum, ekki varpa henni á okkur sem bendum á skýr misræmi milli þessara ákvörðunar og grunngilda jafnaðarmennskunnar.

Eiríkur Rögnvaldsson, fyrrv. prófessor við HÍ:

Margrét Sigrún Björnsdóttir Finnst þér virkilega að það sé hlutverk þeirra sem benda á að verið sé að brjóta Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að benda stjórnvöldum á hvernig þau geti komist hjá því að brjóta hann? Finnst þér ekki fremur að það sé hlutverk stjórnvalda að finna leiðir til þess?

Hér birtist opinberlega alvarlegasti ágreiningurinn innan Samfylkingarinnar frá valdatöku Kristrúnar Frostadóttur árið 2022. Margréti S. Björnsdóttur, málsvara flokksvaldsins, er svarað fullum hálsi. Hvað gerir Kristrún?