Slóð Epsteins í Evrópu
Epstein-skjölin opna sýn á heim grimmdar, undirferlis og spillingar sem reynt er að fela með dyggðaflöggun friðar, mannréttinda og umhverfismála.
Fjórir Norðmenn eru ákærðir og sæta rannsókn vegna tengsla sem þeir eru sagðir hafa haft við bandaríska fjármálamanninn og kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein sem stytti sér aldur í fangelsi 2019.
Efnahagsbrotalögreglan hefur ákært Thorbjørn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra, formann Nóbelsnefndarinnar og framkvæmdastjóra Evrópuráðsins, fyrir stórfellda spillingu.
Sama gildir um Monu Juul, fyrrverandi stjórnarerindreka og sendiherra í Jórdaníu og Írak. Eiginmaður hennar, Terje Rød-Larsen, fyrrverandi stjórnarerindreki og starfsmaður Sameinuðu þjóðanna, er ákærður fyrir hlutdeild í stórfelldri spillingu.
Børge Brende, fyrrverandi utanríkisráðherra sem nú stýrir Alþjóðaefnahagsráðinu (WEF) í Davos, sætir innri rannsókn hjá WEF.
Öryggislögregla Noregs (PST) hefur upplýst að hún rannsaki mál sem tengjast samskiptum Mette-Marit krónprinsessu við Epstein. Hún hefur misst verndarastöðu sína hjá nokkrum samtökum.
Lögreglumenn bera gögn af heimili Thorbjørns Jagland í Osló að lokinni húsleit 12. febrúar 2026.
Norsku sendiherrahjónin Terje Rød-Larsen og Mona Juul áunnu sér alþjóðlegan sess með aðild að Óslóarsamkomulaginu frá 1993 um frið fyrir botni Miðjarðarhafs.
Í franska blaðinu Le Figaro 11. febrúar er varpað ljósi á þetta samhengi. Þar kemur fram að Fabrice Aidan, franskur diplómat og náinn samstarfsmaður Terje Rød-Larsen, hafi átt í reglulegum samskiptum við Epstein frá árinu 2010. Rød-Larsen og Aidan nýttu sér íbúð Epsteins í París, gjafir gengu á milli og Epstein bauðst til að kaupa 25.000 eintök af bók þeirra um friðarferlið í Miðausturlöndum. Í tölvupóstum var óskað eftir greiðum í tengslum við vegabréfsáritanir og miðlun trúnaðargagna. Friðarferlið í Mið-Austurlöndum var ábreiða samskiptanna.
Í skjóli alþjóðlegrar frægðar og framlags í þágu friðar urðu tengsl við mann sem þegar hafði verið dæmdur fyrir kynferðisbrot hluti af sakleysislegu samskiptaneti.
Eftir dóminn yfir Epstein árið 2008 sneri Ghislaine Maxwell, samverkakona hans, sér frá samkvæmislífinu að umhverfis- og úthafsmálum til að skapa sér nýja ímynd. Hún flutti meðal annars fyrirlestur á fyrstu Arctic Circle-ráðstefnunni í Hörpu árið 2013. Þar kynntist hún Scott Borgerson sem tók virkan þátt í umræðum um norðurslóðir í Bandaríkjunum og vann með Ólafi Ragnari Grímssyni að því að koma Arctic Circle á legg. Maxwell og Borgerson giftust með leynd árið 2016 og hún skapaði sér fjárhagslegt sjálfstæði. Eftir að hún var dæmd í 20 ára fangelsi árið 2022 sleit Borgerson hjónabandi þeirra með símtali í fangelsið.
Háleit viðfangsefni, friðarstarf og verndun úthafanna, áttu að skapa trúverðugleika. Epstein-hneykslið snýst því ekki aðeins um kynferðisbrot heldur einnig um peninga og áhrif í skjóli virðulegra stofnana og einstaklinga.
Sósíalistinn Jack Lang er þekktasti Frakkinn sem nefndur er í tengslum við Epstein-hneykslið. Hann var menningarráðherra í stjórnartíð François Mitterrand forseta á níunda og tíunda áratugnum. Lang er holdgervingur þess sem Frakkar kalla la gauche caviar, kavíarvinstrið.
Þrátt fyrir 86 ára aldur var Lang enn forseti L'Institut du Monde Arabe (Stofnun arabaheimsins, eða IMA) í París til 7. febrúar þegar hann neyddist til að segja af sér. Hann neitar staðfastlega allri sök þótt nafn hans komi 673 sinnum fyrir í Epstein-skjölunum. Franska lögreglan rannsakar nú hugsanleg skattsvik Langs.
„Ég er ekki vanur að biðja um sakarvottorð vina minna,“ sagði Lang. Epstein, sem hann þekkti, hefði verið „örlátur styrktaraðili“.
Í Bretlandi hangir pólitískt líf Sir Keirs Starmer, forsætisráðherra Verkamannaflokksins, á bláþræði. Nánustu samstarfsmenn hans í forsætisráðuneytinu hafa tekið pokann sinn vegna ráða sem þeir veittu ráðherranum áður en flokksbróðir hans, Mandelson lávarður, varð sendiherra í Washington.
Mandelson sætir nú sakamálarannsókn fyrir að hafa lekið viðkvæmum fjármálaupplýsingum frá stjórnvöldum til Epsteins í fjármálakreppunni 2008. Þá átti hann einnig óljós fjármálasamskipti við Epstein, líkt og Jagland og Lang.
Epstein-skjölin opna sýn á heim grimmdar, undirferlis og spillingar sem reynt er að fela með dyggðaflöggun friðar, mannréttinda og umhverfismála.