19.11.2026 11:38

Sleggjan og kaldi veturinn

Forsætisráðherra vinnur eftir plani, utanríkisráðherra krefst þolgæðis en atvinnulífið varar við harðri lendingu. Hvar lendir sleggjan

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ríkisstjórnina vinna eftir plani og hún ætli að beita sleggjunni til að ná niður verðbólgu og koma böndum á ríkisfjármálin. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að til þess þurfi sterk bein, þolgæði og úthald. Ríkisstjórnin ætli hvergi að hvika frá stefnu sinni, planinu.

Á alþingi miðvikudaginn 18. nóvember spurðu Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, utanríkisráðherra um stöðu efnahagsmála í ljósi nýrrar spár Seðlabankans þann sama dag.

Í fjárlagafrumvarpi næsta árs gerir ríkisstjórnin ráð fyrir 1,8% hagvexti og fimm milljarða króna afgangi ríkissjóðs. Seðlabankinn spáir hins vegar aðeins 1,2% hagvexti og 17 milljarða króna halla. Munurinn á afkomuspánum er 22 milljarðar króna.

Þorgerður Katrín lét þessar tölur ekki slá sig út af laginu. Hún sagði stórtíðindi dagsins að Seðlabankinn hefði haldið stýrivöxtum óbreyttum í 8%. Þeir væru einu prósentustigi lægri en þegar ríkisstjórnin tók við. Hún sagði ríkisstjórnina á lokametrunum í langhlaupi og nú þyrfti að sýna úthald. Hallalaus fjárlög væru ófrávíkjanlegt markmið. Uppfærðar forsendur fjárlagafrumvarpsins yrðu lagðar fyrir alþingi við aðra umræðu fjárlaganna.

Þegar Guðrún Hafsteinsdóttir spurði hvort ríkisstjórnin ætlaði að taka á ríkisútgjöldum eða senda reikninginn til heimila og fyrirtækja með auknum álögum svaraði ráðherrann með því að rifja upp störf dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins. Hún sakaði stjórnarandstöðuna um að vilja auka útgjöld og lækka skatta samtímis. Slíkt væri eitruð blanda.

Þegar Sigmundur Davíð spurði hvort ríkisstjórnin ætlaði í engu að breyta stefnu sinni þrátt fyrir versnandi efnahagshorfur var svarið sömuleiðis afdráttarlaust. Ríkisstjórnin ætlaði ekki að breyta um kúrs.

1653c962-1631-489a-8aa1-0196f393e39f

Rætt var um efnahagsástandið í Kastljósi ríkisútvarpsins að kvöldi 18. nóvember.

Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins og fyrrverandi varaformaður Viðreisnar, sagði Seðlabankann gera mjög alvarleg mistök í hagstjórninni og auka verulega líkur á harðari lendingu en nauðsynleg væri. Hann varaði við köldum vetri, sérstaklega á íbúðamarkaði. Fyrirtæki í byggingariðnaði væru að skera niður kostnað og fækka starfsfólki. Háir vextir væru farnir að bíta óheyrilega mikið.

Utanríkisráðherra hrósaði sér af því á alþingi að atvinnuvegafjárfesting hefði ekki verið meiri í hálfa öld, að undanskildum árunum fyrir bankahrunið. Hún taldi það sýna trú atvinnulífsins á framtíðinni. Þorsteinn Víglundsson lýsti hins vegar atvinnulífi þar sem fyrirtæki fækka starfsfólki og draga saman seglin.

Enginn ágreiningur þarf að vera um nauðsyn þess að ná niður verðbólgu og koma böndum á ríkisfjármálin. Ágreiningurinn snýst um aðferðirnar, tímasetningu aðgerða og þann kostnað sem heimili og fyrirtæki þurfa að bera.

Kristrún Frostadóttir hefur valið sleggjuna sem tákn fyrir festu í efnahagsstjórninni. Sleggjan er gróft verkfæri og hittir ekki endilega þar sem henni er ætlað.

Nú dugar ekki að forsætisráðherra segist vinna eftir plani og utanríkisráðherra krefjist þolgæðis. Þegar Seðlabankinn lækkar hagvaxtarspá sína, spáir halla í stað afgangs og atvinnulífið varar við harðri lendingu verður ríkisstjórnin að bregðast við á annan hátt en með innantómum orðum og formælingum um stjórnarandstöðuna.

Við kynntumst þessari aðferð ríkisstjórnarinnar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þar var einnig unnið eftir plani sem ekki mátti hvika frá. Ríkisstjórnin tapaði þeirri baráttu. Nú er ekki síður mikið í húfi. Sleggjan, sem á að vinna á verðbólgunni, getur lent af fullum þunga á heimilum og fyrirtækjum landsins.