13.11.2026 10:25

Skýr ábyrgð Daða Más

Ábyrgð á núverandi tilhögun verður því ekki færð yfir á fyrri fjármálaráðherra. Daði Már ber pólitíska ábyrgð á eigin vali í stjórnina. Hún hverfur hvorki við tilvísun til valnefndar né til flutningsmanns lagafrumvarps.

Það er undarleg vörn fyrir framgöngu Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra í málefnum Landsvirkjunar að vísa til lagafrumvarps sem Sigurður Ingi Jóhannsson flutti sem fjármálaráðherra haustið 2024.

Með lögunum var mælt fyrir um að valnefnd gerði tillögur um stjórnarmenn í stærri ríkisfyrirtækjum. Daði Már setti síðan reglurnar um framkvæmd laganna í febrúar 2025. Hann skipaði valnefnd og valdi fólkið í stjórn Landsvirkjunar eftir að tillögur hennar lágu fyrir. Valnefndin undirbjó valið. Ráðherrann tók ákvörðunina.

Ekkert í lögunum bannaði að leitað væri til þingflokka eftir ábendingum um hæfa einstaklinga. Slíkt samráð hefði mátt sameina sjálfstæðu hæfnismati valnefndar. Lögin eða reglur Daða Más skylduðu ráðherra ekki til að leggja af samráð við þingflokkana.

Ábyrgð á núverandi tilhögun verður því ekki færð yfir á fyrri fjármálaráðherra. Daði Már ber pólitíska ábyrgð á eigin vali í stjórnina. Hún hverfur hvorki við tilvísun til valnefndar né til flutningsmanns lagafrumvarps.

Screenshot-2026-11-13-at-10.22.25Inga Sæland segir stjórn Landsvirkjunar bera alla ábyrgð (mynd: mbl./Eggert Jóhannesson).

Nú hefur Inga Sæland, formaður eins stjórnarflokkanna, sagt að stjórn Landsvirkjunar beri alla ábyrgð á málinu eins og það stendur. Stjórnin sé sjálfstæð og fjármálaráðherra komi hvergi að störfum hennar. Þessi vörn snýst enn og aftur gegn Daða Má.

Sé stjórnin ábyrg fyrir þeirri stöðu sem komin er upp, eins og Inga segir, hljóta að vakna spurningar um dómgreind ráðherrans sem valdi hana og ver hana enn. Sjálfstæði stjórnar leysir ráðherra ekki undan ábyrgð á henni eða trausti í hennar garð.

Hörður Arnarson fór eftir langvarandi ágreining um stjórnarhætti. Hann hafði gert alvarlegar athugasemdir við starfshætti stjórnar og samskipti hennar við ráðuneyti. Stjórnin hafnar því að hafa farið út fyrir heimildir sínar. Þessi ágreiningur verður ekki útkljáður með því að ráðherra lýsi stuðningi við annan aðilann.

Samskipti stjórnarinnar við ráðherrann og ráðuneyti hans voru ekki heldur fjarlæg eða tilviljanakennd. Þar voru haldnir fundir um stjórnarhætti og hlutverk stjórnar. Þegar forstjórinn hafði síðan sagt af sér tók ráðherrann upp varnir fyrir stjórnina. Það er pólitísk afstaða sem hann einn verður að svara fyrir.

Nú á stjórnin að ráða nýjan forstjóra. Hvernig á stjórn sem setur allt í uppnám að endurvekja traust með því að velja eftirmann Harðar? Hver vill starfa undir slíkri stjórn? Hvaða vissu fær nýr forstjóri um verkaskiptingu og starfsskilyrði? Sættir hann sig við þessi skilyrði?

Það nægir ekki að auglýsa starfið og kalla ráðningarferlið faglegt. Ráðningarstofur og valnefndir geta aðstoðað við leit og mat. Þær geta ekki eytt óútkljáðum ágreiningi um stjórnarhætti.

Áður en nýr forstjóri er ráðinn verður að upplýsa hvað fór úrskeiðis og gera skýra grein fyrir því hvernig komið verði í veg fyrir að sama staða endurtaki sig. Daði Már verður jafnframt að rökstyðja hvers vegna stjórnin sem hann valdi sé enn rétt skipuð til að leiða Landsvirkjun.

Ráðherrann getur ekki bæði varið stjórnina og látið eins og ábyrgðin á störfum hennar komi honum ekkert við. Ábyrgðin hverfur ekki þótt henni sé vísað á milli ráðherra, stjórnar og valnefndar. Hún verður enn síður flutt aftur í tímann til flutningsmanns lagafrumvarps.