Skjaldar Kristrún seðlabankastjóra?
Nú er þörf á að forsætisráðherra láti í sér heyra. Skjaldar hún seðlabankastjórann eða eltir hún enn á ný öfgamenn í stjórnarliðinu?
Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur og forsætisráðherra, stýrir ríkisstjórn sem hvað eftir annað stendur fyrir setningu löggjafar sem brýtur gegn einföldustu lögmálum hagfræðinnar.
Forsætisráðherrann talar hins vegar jafnan eins og hún hafi fundið upp einhverja formúlu eða plan sem muni færa þjóðina inn á nýjar og betri slóðir.
Kristrún talaði gegn óðagoti í ESB-málum fyrir kosningarnar 30. nóvember 2024 en sneri við blaðinu þegar það varð leið hennar í stól forsætisráðherra að samþykkja þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður fyrir árslok 2027.
Síðan lét forsætisráðherra undan þrýstingi Dags B. Eggertssonar og Þorgerðar Katrínar Gunnardóttur og flýtti þjóðaratkvæðagreiðslunni með alkunnum afleiðingum: Þjóðin sagði nei.
Það var í raun aðeins fáeinum vikum fyrir atkvæðagreiðsluna sem Kristrún hóf að prédika nauðsyn þess að segja já. Það var aðeins í tveimur kjördæmum í Reykjavík sem meirihluti var fyrir sjónarmiðum ríkisstjórnarinnar.
Sjónarmið meirihluta kjósenda í Reykjavík eru ekki leiðandi skoðun meðal landsmanna þótt því sé hampað í ríkisútvarpinu. Að þessu leyti hefur orðið til undarlegur umræðuhalli í samfélaginu.
Til að ríkisstjórnin lifi er ekki nóg að forsætisráðherra elti þessi sérgreindu áhugamál heldur verða þeir sem standa með ráðherranum og stjórnarsamstarfinu að umbera sérskoðanir Flokks fólksins þótt þær gangi í berhögg við almennar hagfræðikenningar.
Þótt þessar kenningar séu ekki festar í skuldbindandi umgjörð eins og lögfræðikenningar sem verða að stjórnarskrárákvæðum er það viðtekin skoðun að meginsjónarmið hagfræðinnar beri að virða til að þjóðarskútunni farnist vel á ferð sinni.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri kynnir stýrivaxtaákvörðun 7. október 2026. (mynd: Morgunblaðið).
Ummæli Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra um stjórnarfrumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar félagsmálaráðherra um svonefnda leigubremsu urðu fleyg eftir blaðamannafund bankastjórans að morgni 7. október þegar hann svaraði spurningu og sagði að leigubremsa væri „augljóslega mjög heimskuleg“ og varaði við að slík ráðstöfun kæmi leigjendum verst. Verðþak á leigu stuðlaði að minna framboði leiguhúsnæðis til lengri tíma.
Ragnar Þór heimtaði sem verkalýðsforingi hvað eftir annað að Ásgeir yrði rekinn úr embætti seðlabankastjóra. Hann sagði 7. október sem ráðherra í ræðustól alþingis að ummæli seðlabankastjóra um leigubremsuna væru „fullkomlega óábyrg“ og vó þannig að starfsheiðri bankastjórans en traust í garð hans er meðal lykilþátta, til dæmis þegar tekist er á við verðbólgu.
Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður fjárlaganefndar, birti strax grein á Vísi og sakaði seðlabankastjóra um að stilla sér upp í „grátkór varnarliðs fjármagnseigenda“.
„Það mætti halda að seðlabankastjóri hafi hrokkið í bakkgírinn frá því hann var efnahagsráðgjafi Gamma og forstöðumaður hjá Kaupþingi. Félaga sem léku lykilhlutverk í græðgisvæðingunni og í að koma Íslandi á vonarvöl í hruninu, með stærsta gjaldþroti Íslandssögunnar og þótt víðar væri leitað,“ segir Sigurjón í þessari grein sinni 7. október.
Nú er þörf á að forsætisráðherra láti í sér heyra. Skjaldar hún seðlabankastjórann eða eltir hún enn á ný öfgamenn í stjórnarliðinu?