Skinhelgi Samfylkingar
Stjórn þingsins og verkstjórn ríkisstjórnarinnar miðar einnig frekar að sundrungu í þjóðfélaginu en sáttum.
Það er óafsakanlegt að Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti alþingis skyldi afsaka það að kalla alþingi saman að tilefnislausu sunnudaginn 15. júní, á helgidegi, með þeim orðum að sumir héldu laugardaginn eða föstudaginn heilagan.
Orð þingforseta endurspegla viðhorfið um að allt skuli lagt að jöfnu og þess vegna sé bara eðlilegt að þing komi saman á sunnudögum. Íslendingar eigi ekki að líta til sérstöðu sinnar sem kristinnar þjóðar sem haldi hvíldardaginn heilagan.
Þetta viðhorf ræður miklu um stefnu Samfylkingarinnar. Þórunn Sveinbjarnardóttir var til dæmis ein þeirra sem snerist gegn kúvendingu Kristrúnar Frostadóttur í útlendingamálunum 10. febrúar 2024. Hafi þær lagt saman á ráðin um að kalla ætti þing saman á sunnudegi til að ræða frv. sem kennt er við bókun 35 en snýst um breytingu á íslensku EES-lögunum sýnir það sameiginlegt virðingarleysi þeirra á hefðum alþingis frá því að það var endurreist 1845 og á helgideginum, degi kirkjunnar.
Þær ættu að minnast þess að í atkvæðagreiðslunni meðal þjóðarinnar um árið vegna tilraunanna til að ná samstöðu um nýja stjórnarskrá var yfirgnæfandi meirihluti andvígur því að hróflað yrði við ákvæðinu um þjóðkirkjuna. Stjórnarskrártilraunin misheppnaðist vegna þess hve illa var að henni staðið. Stuðlað var markvisst að sundrungu frekar en sáttum.
Stjórn þingsins og verkstjórn ríkisstjórnarinnar miðar einnig frekar að sundrungu í þjóðfélaginu en sáttum. Að í dag (16. júní) skuli boðað til þingfundar án þess að haldið sé áfram umræðunni sem kennd er við bókun 35 og án þess að setja veiðigjaldafrumvarpið á dagskrá sýnir að stjórnarflokkarnir verða að þétta raðir sínar vegna mistaka þingforseta með óþarfa helgidagsfundinum.
Þingforseti vill ekki heldur að umræður á þingi standi langt fram á þjóðhátíðardaginn 17. júní sem forsætisráðherra segist hafa dauðhreinsað af allri pólitík með því að flytja ekki ræðu á Austurvelli!
Allt þetta stjórnmálatal samfylkingarfólksins einkennist af hvimleiðri skinhelginni sem setur vaxandi svip á allar umræður.
Fyrir helgi var þáttur í ríkisútvarpinu um samfélagið. Þar var kynnt að pistlahöfundur myndi ræða um hafið. Þegar á reyndi var pistillinn áróður gegn Ísrael, hafið var Miðjarðarhaf og tilefnið sigling skútunnar með sænska aðgerðarsinnann Gretu Thunberg og 11 aðra að Gaza-ströndinni.
Þetta var auglýsingasigling kostuð af stuðningshópum Hamas. Var í lokin reynt að dramatísera misheppnuðu sjóferðina með því að Greta hefði verið tekin í gíslingu þegar hún var þvert á móti send heim frá Ísrael með fyrstu flugvél.
Af hverju var efni pistilsins ekki gefið til kynna í fyrirsögn hans? Líklega til að afvegaleiða hlustendur. Utanríkisráðherra afvegaleiðir þingmenn, blaðamenn og aðra sem ættu þó að vita betur með því að kenna frumvarp sitt um breytingu á EES-lögunum við bókun 35. Ráðherrann og ráðuneyti hans verður hvað eftir annað að gjalda fyrir þessa blekkingu. Sama á eftir að gerast næstu daga þegar ríkisstjórnin reynir blekkingar vegna annarra frumvarpa sinna.