15.6.2026 9:48

Sir Keir og Kristrún

Að þessu leyti er staða Kristrúnar Frostadóttur lík stöðu Sir Keirs. Planið hennar hefur misheppnast, henni vegnaði illa í byggðakosningum eins og Sir Keir á dögunum. 

Það ríkir einkennilegt ástand í breska Verkamannaflokknum. Augljóst er að Sir Keir Starmer, flokksleiðtogi og forsætisráðherra, situr enn fyrir náð og miskunn.

Það setur svip á ástandið í flokknum að aukakosningar fara fram í kjördæminu Makerfield núna fimmtudaginn 18. júní. Þær voru boðaðar eftir að Josh Simons, þingmaður Verkamannaflokksins fyrir kjördæmið, sagði af sér til að skapa Andy Burnham, borgarstjóra Stór-Manchester, leið aftur inn á breska þingið.

Kosningarnar eru taldar hafa mikla þýðingu fyrir framtíð Verkamannaflokksins, því Burnham er einn vinsælasti stjórnmálamaður flokksins og af mörgum talinn líklegasti arftaki Sir Keirs Starmer.

Á meðan Burnham gegnir embætti borgarstjóra getur hann ekki orðið leiðtogi flokksins eða forsætisráðherraefni. Leiðtogi Verkamannaflokksins verður að eiga sæti á breska þinginu. Því líta margir á kosningarnar í Makerfield sem fyrsta skrefið í leiðtogabaráttu innan flokksins.

Andy Burnham sat á breska þinginu samfellt frá 2001 til 2017 sem þingmaður fyrir Leigh-kjördæmið í Stór-Manchester. Hann gegndi jafnframt ýmsum ráðherraembættum, meðal annars sem heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn Gordons Brown og síðar sem skuggaráðherra í stjórnarandstöðu. Hann hætti ekki vegna ósigurs eða ágreinings innan flokksins heldur að eigin frumkvæði til framboðs sem fyrsti kjörni borgarstjóri Stór-Manchester. Á árunum 2016–2017 varð til nýtt embætti svæðisborgarstjóra með víðtækar valdheimildir í samgöngu-, skipulags-, húsnæðis- og efnahagsmálum, og Burnham taldi að þar gæti hann haft meiri áhrif en sem þingmaður í Westminster.

Þegar íhaldsmaðurinn Boris Johnson var forsætisráðherra vann Íhaldsflokkurinn stórsigur í Norður-Englandi, kjörlendi Verkamannaflokksins. Talið er að Burnham takist að endurheimta sterka stöðu flokksins þar. Hann er til vinstri við Sir Keir Starmer í flokknum en þó ekki róttækur vinstrimaður í anda Jeremys Corbyn. Hann hefur haldið sig fjarri átökum innan flokksins.

Burnham er hvorki talsmaður „opinna landamæra“ né harður andstæðingur innflytjenda. Hann reynir að fella kröfu um stjórn og reglufestu að hefðbundnum félagslegum og mannúðlegum gildum Verkamannaflokksins.

ImagesmmmnnnKristrún Frostadóttir birti þessa mynd á Facebook 5. júli 2024. Þarna óskar hún Sir Keir til hamingju með glæsilegan kosningasigur.

Ástæða er til að vekja máls á þessu hér vegna þess hve augljós fyrirmynd Sir Keir Starmer var fyrir Kristrúnu Frostadóttur, formann Samfylkingarinnar, í þingkosningunum 2024. Sir Keir vann stórkostlegan kosningasigur árið 2024 með skýrt „plan“, en stærsta pólitíska vandamál hans árið 2026 er að sífellt fleiri innan flokksins efast um að áætlunin hafi skilað þeim breytingum sem kjósendum voru lofaðar.

Að þessu leyti er staða Kristrúnar Frostadóttur lík stöðu Sir Keirs. Planið hennar hefur misheppnast, henni vegnaði illa í byggðakosningum eins og Sir Keir á dögunum og hún veitir ekki þá pólitísku forystu í útlendingamálum sem dugar til að treysta samheldni innan flokks hennar.

Í Verkamannaflokknum binda margir vonir við að Burnham nái kjöri til að ýta Sir Keir til hliðar. Í Samfylkingunni þyngist undiralda gegn Kristrúnu og þar eygja margir leið til að sýna henni aðhald innan skamms við val á varaformanni.