Samstaða með einræði
Í frásögninni af mótmælunum beinist gagnrýnin að Bandaríkjunum. Hvar er krafan um að ráðamenn á Kúbu svari fyrir kúgunina óstjórnina og forréttindi sín?
Um 50 manns komu saman við bandaríska sendiráðið í Reykjavík 28. október til að mótmæla viðskiptaþvingunum gegn Kúbu. Samkvæmt mbl.is sagði Eyjólfur B. Eyvindarson, formaður Vináttufélags Íslands og Kúbu, markmiðið að sýna kúbversku þjóðinni samstöðu og krefjast virðingar fyrir alþjóðalögum. Mótmælin fóru friðsamlega fram.
Það er með nokkrum ólíkindum að samstaða með kúbversku þjóðinni birtist hér með þessum einhliða hætti. Í frásögninni af mótmælunum beinist gagnrýnin að Bandaríkjunum. Hvar er krafan um að ráðamenn á Kúbu svari fyrir kúgunina, óstjórnina og forréttindi sín?
Um 50 manns lýstu stuðningi við einræðið á Kúbu með mótmælum við bandaríska sendiráðið við Engjateig 28. október 2026 (mynd; mbl.is/Rósa Margrét).
Fáeinum dögum áður, 24. október, ræddi Morgunblaðið við Raúl Delgado, sendiherra Kúbu gagnvart Íslandi, sem kom hingað á vegum vináttufélagsins. Hann sagði aðgerðir stjórnar Donalds Trump lama heilbrigðiskerfið og samfélagið. Samt hafnaði hann því að þar ríkti neyðarástand á sviði mannúðarmála. Kúba væri „fullkomlega starfhæft land“ sem skorti nauðsynjar.
Þessi tvöfalda lýsing er sérkennileg. Þegar ábyrgð Bandaríkjanna er til umræðu er samfélagið lamað. Þegar spurt er um ástand landsins er það „fullkomlega starfhæft“. Í hvorugu tilvikinu sætir stjórnarfarið gagnrýnni skoðun, öllum vandanum er kastað í hendur Bandaríkjastjórnar.
Á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í vikunni beindi Mike Waltz, sendiherra Bandaríkjanna, athygli að veikleikanum í málstað mótmælendanna hér og skýringu kúbverska sendiherrans. Waltz sýndi myndir af Rolex-úrum, glæsilegum eignum og Cayo Piedra, sem hann sagði einkaeyju Castro-fjölskyldunnar. Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna fylgdi þessu eftir með birtingu skýringarmyndar af eyjunni, þar sem meðal annars voru merkt gestahús, sundlaug, þyrlupallur og fljótandi veitingastaður. Þarna var athygli beint að munaði valdaelítu Kúbu á sama tíma og þjóðin býr við vaxandi skort.
Á allsherjarþinginu í New York voru viðbrögð Bruno Rodríguez, utanríkisráðherra Kúbu, að ganga hrópandi fram af ræðupallinum í þingsalnum og saka Waltz um lygar. Gera varð hlé á fundinum. Uppákoman var sviðsett til að beina athygli frá spurningu um ábyrgð kúbverskra ráðamanna á kjörum þjóðarinnar.
Raunar beindi Evrópusambandið sjónum að þeirri ábyrgð. Í ræðu fulltrúa þess við atkvæðagreiðsluna var bent á að kerfislægir veikleikar, óhagkvæmni og skortur á umbótum hefðu átt verulegan þátt í kreppunni á Kúbu. Jafnframt var krafist frelsis pólitískra fanga og virðingar fyrir tjáningar- og félagafrelsi. Gagnrýni á stjórnina í Havana er því síður en svo bundin við Trump og samstarfsmenn hans.
Árleg ályktun allsherjarþingsins gegn viðskiptaþvingununum var samþykkt með 130 atkvæðum gegn 17 en 25 ríki sátu hjá. Í fyrra studdu 165 ríki þessa ályktun. Þýskaland og Ítalía voru nú meðal þeirra sem sátu hjá. Stuðningur við þessa árlegu kröfu kúbverskra stjórnvalda minnkaði því verulega þótt áfram stæði mikill meirihluti að henni. Að óreyndu má ætla að Ísland hafi skipað sér með ESB-ríkjunum – annað væri í frásögur færandi.
Andstaða við viðskiptaþvinganirnar á Kúbu jafngildir ekki sjálfkrafa stuðningi við einræðisstjórnina þar. Menn geta talið þvinganirnar skaða almenning og jafnframt krafist lýðræðis á Kúbu. En þegar öll gagnrýni beinist að stjórninni í Washington til að beina athygli frá ábyrgð stjórnvalda í Havana verður málflutningurinn að pólitísku skjóli fyrir einræðið. Þann málstað boðaði sendiherra Kúbu hér og vináttufélagar hans tóku undir hann.
Vinátta við kúbversku þjóðina ætti að birtast í kröfu um frelsi hennar og rétti til að kalla ráðamenn til ábyrgðar. Það er lítil samstaða með kúguðu fólki að þegja um þann sem kúgar það.