15.5.2026 9:16

Samfylking úti á þekju

Það er sérkennilegt að sjá forystumenn Samfylkingarinnar svona illa að sér vegna mála sem eru á þeirra ábyrgð. Við þetta rifjast upp 20 ára gamalt atvik úr kosningabaráttu Samfylkingarinnar.

Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, kom af fjöllum í oddvitakappræðum á vettvangi Morgunblaðsins og mbl.is fimmtudaginn 14. maí þegar hann var sagður gefa kosningaloforð um gjaldfrjálsa íþróttaiðkun barna í bænum með því að hækka frístundastyrk. Hvergi væri að finna orð um hvernig ætti að fjármagna þetta.

Jónas Már fullyrti að þarna væri ruglað saman loforðum Samfylkingarinnar og Framsóknarflokksins. „Þegar inn í samtalið leið dró hann nokkuð í land og sagði að slíkt loforð gæti ef til vill leynst í lengri útgáfu stefnuyfirlýsingar flokksins, en ekki í helstu áherslum,“ segir í frétt Morgunblaðsins um þessa uppákomu og blaðið birtir einnig þessa setningu úr stefnuskrá Samfylkingarinnar í Kópavogi:

„Hækkum frístundastyrkinn. Frístundastyrkurinn á að standa undir kostnaði á einni íþrótt og hækka með aldri barns.“

1651507Á hjólabrettum á Ingólfstorgi (mynd: mbl.is/Eggert Jóhannesson).

Reykjavíkurborg tilkynnti miðvikudaginn 13. maí á samfélagsmiðlum að sumarmarkaður yrði opnaður á Ingólfstorgi og Austurstræti 20. maí og yrði þar fram yfir sumarið. Hjólabrettafólk lýsti yfir óánægju sinni en í áratugi hefur torgið verið nýtt af þeim og þar er búnaður í því skyni.

Fimmtudaginn 14. maí sagði Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri Samfylkingarinnar að þessi ákvörðun um að leggja Ingólfstorg undir sölubása hefði komið sér í opna skjöldu. Hún ætlaði að beita sér fyrir því að torgið yrði áfram hluti af íslensku hjólabrettaiðkuninni.

Það er sérkennilegt að sjá forystumenn Samfylkingarinnar svona illa að sér vegna mála sem eru á þeirra ábyrgð. Við þetta rifjast upp 20 ára gamalt atvik úr kosningabaráttu Samfylkingarinnar.

Í febrúar 2006 var efnt til opins prófkjörs í Samfylkingunni um framboðslista til borgarstjórnar Reykjavíkur. Þrjú kepptu um oddvitasætið: Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Stefán Jón Hafstein og Dagur B. Eggertsson.

Almennur fundur var með prófkjörsframbjóðendum miðvikudaginn 8. febrúar 2006 og í 22.00 fréttum sjónvarps ríkisins var sögð þessi frétt af fundinum:

„Samgöngumál voru einnig rædd á fundinum og lagði Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra, fram þessa spurningu.

Jón Baldvin Hannibalsson: Hvernig getið þið hugsað ykkur þegar að þið horfið dálítið fram í tímann að bæta fyrir áratuga vanrækslusyndir Sjálfstæðisflokksins varðandi umferð í Reykjavík og almanna samgöngur sem að tryggja það að við getum komist leiðar okkar.

Stefán Jón Hafstein: Jón Baldvin, það eru ekki áratuga vanrækslusyndir Sjálfstæðisflokksins sem að leiða til þess hvernig almenningssamgöngukerfið er í dag. Við erum búin að stjórna í 12 ár. Við höfðum öll tækifæri. Reykvíkingar vilja aka í einkabílum.“

Nú 20 árum síðar er staða umferðar og almannasamgangna í Reykjavík enn verri en þá. Samfylkingin hefur einmitt haft forystu í stjórn borgarinnar í 16 af þessum 20 árum. Í umferðarmálum hefur þeim helst verið varið til að berjast gegn notkun einkabílsins. Afleiðingin er hörmuleg.