22.10.2026 10:24

Rússar lóna yfir sæstrengjum

Vernd sæstrengja verður að skipa skýran sess í öryggissamstarfinu á Norður-Atlantshafi og íslensk stjórnvöld verða þar að leggja sitt af mörkum.

Breska blaðið The Telegraph birtir niðurstöður ítarlegrar athugunar á ferðum rússneskra togara nálægt og yfir sæstrengjum. Greind voru yfir 500 tilvik þar sem skipin héldu sig nærri strengjum eða sigldu meðfram legu þeirra.

Fréttin á brýnt erindi við okkur Íslendinga, enda eru örugg fjarskipti við umheiminn ein af undirstöðum atvinnulífs og þjóðaröryggis. Grunsemdir um kortlagningu strengja norðan Skotlands og við tengingar Færeyja og Hjaltlands minna á að líta verður á öryggi sæstrengja okkar í samhengi við allt hafsvæðið.

Ferilgögnin sanna ekki ein og sér njósnir eða undirbúning skemmdarverka. Þau sýna hins vegar gildi þess að greina skipulega ferðir skipa og endurtekið athæfi nærri mikilvægum innviðum.

Það er skylda íslenskra yfirvalda að tryggja að landhelgisgæslan, aðrar viðeigandi stofnanir og rekstraraðilar sæstrengja geti sameinað upplýsingar, metið grunsamlegar ferðir og brugðist við í samstarfi við nágrannaríki og NATO. Jafnframt þarf að tryggja viðbúnað vegna strengrofs, varaleiðir fyrir fjarskipti og skýra verkaskiptingu við viðgerðir. Ekki nægir að treysta á að bandamenn fylgist með. Íslensk stjórnvöld verða sjálf að hafa þekkingu og getu til að meta hvað gerist við innviði landsins.

Screenshot-2026-10-22-at-10.21.47Rússneskur Akula-árásarkafbátur í nágrenni Bretlands í apríl 2026.

Í þessu ljósi er athyglisvert viðtal Morgunblaðsins 21. október við Þorvarð Sveinsson, framkvæmdastjóra Korda, um fyrirhugaðan sæstreng, AUÐI, milli Meðallands og Skotlands. Áætlað er að hann verði tekinn í notkun um áramótin 2029–2030. Þessi nýja tenging undirstrikar að öryggi íslenskra sæstrengja verður ekki slitið úr samhengi við athafnir rússneskra skipa á Norður-Atlantshafi.

Í viðtalinu er einnig rætt um hugsanlegan streng milli Íslands og Tasiilaq á austurströnd Grænlands. Hann gæti bæði bætt fjarskipti og nýst til að fylgjast með ferðum skipa og kafbáta með svonefndri DAS-skynjunartækni.

Þorvarður varar við auknum kostnaði og tæknilegum flækjum verði strengir nýttir til vöktunar. Rekstrarlegir fyrirvarar hans eiga rétt á sér. Sú hugmynd að halda sæstrengjum öruggum með því að takmarka þá við borgaralega notkun styðst við þá ímyndun að Rússar láti borgaralega innviði í friði. Eftir allar fréttirnar um árásir þeirra í skjóli nætur á mannabústaði í Úkraínu er ótrúverðugt að borgaralegu hlutverki sé teflt fram sem rökum gegn því að nýta strengina einnig til vöktunar og varnar.

Kanna ber hvort skynjunarbúnaðurinn geti einnig greint grunsamlegt athæfi nærri strengjunum sjálfum og þannig stuðlað að vernd þeirra. Bætt fjarskipti, vernd neðansjávarinnviða og eftirlit á hafsvæðinu milli Grænlands, Íslands og Bretlands, GIUK-hliðinu, geta farið saman. Þessa hagsmuni ber að meta í samhengi.

NATO hefur með Baltic Sentry aukið viðveru sína á Eystrasalti til að verja mikilvæga innviði. Í febrúar 2026 hóf bandalagið einnig Arctic Sentry, Norðurslóðavörslu, til að efla öryggi á norðurslóðum. Vernd sæstrengja verður að skipa skýran sess í öryggissamstarfinu á Norður-Atlantshafi og íslensk stjórnvöld verða þar að leggja sitt af mörkum.

Við erum ekki stikkfrí!