19.10.2026 13:18

Rósa Björk og Mélenchon

Hvort nýkjörinn formaður VG lærir aðferðir meðal skoðanasystkina á götum Frakklands til að blása nýju lífi í flokk sinn kemur í ljós. Rósa Björk er að minnsta kosti óbuguð eins og Mélenchon.

Athygli vakti að formaður íslensks stjórnmálaflokks, Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs (VG), sem féll út af þingi 2024, tók þátt í mótmælum sem leiddu til óeirða í Frakklandi nú um helgina.

855845689_1425104992449323_6066407269948153013_nSvona sér vitvélin Rósu Björk á götum Angers í Frakklandi (myndin er fengin af Facebook).

Rætt var við flokksformanninn, Rósu Björk Brynjólfsdóttur, í fréttum ríkisútvarpsins eftir götuaðgerðir í borginni Angers. Sunnudaginn 18. október sagði hún á FB að stúdentar leiddu „andspyrnuna“ með kröfum um betri aðstöðu í skólum og minni námskröfum, þær væru „mörgum krökkum íþyngjandi og valdi kvíða“. Þá kostaði of mikið að búa á stúdentagörðum, einkum í París. Auk þess væru námsmenn í Frakklandi að „mótmæla of háu verðlagi, getuleysi franskra stjórnvalda til að koma í veg fyrir þjóðarmorðið á Gaza“ og aðgerðaleysi í loftslagsmálum. Loks væru þau líka „að mótmæla uppgangi öfgahægrisins og Marine Le Pen og Jordan Bardella, forystufólki RN öfgahægriflokksins“.

Að lokinni þessari upptalningu segir Rósa Björk: „Allt eru þetta réttlætismál sem fyllilega er hægt að styðja!“ Í lok textans á FB segir hún: „Það er ljóst að þessi mótmælaalda á eftir að hafa mikil áhrif á pólitískt landslag aðeins hálfu ári fyrir forsetakosningar í Frakklandi.“

Formaður VG lætur í frásögn sinni ógetið þeirra pólitísku tíðinda um þróun mótmælanna að öfgavinstriframbjóðandinn Jean-Luc Mélenchon tók um helgina þátt í þeim í París. Hann sakaði lögregluna um að hafa „ráðist af offorsi“ á mótmælendur en fordæmdi jafnframt gripdeildir og íkveikjur. Hingað til hafði Mélenchon, leiðtogi Óbugaðs Frakklands, flokksins lengst til vinstri, haldið sig í nokkurri fjarlægð frá mótmælunum.

Námsmenn mótmæltu en stig af stigi hafa aðgerðirnar víða færst í hendur óeirðaseggja frá hægri og vinstri sem vilja nýta þau til að styrkja eigin stöðu fyrir forsetakosningarnar í apríl 2027. Marine Le Pen úr Þjóðarhreyfingunni á hægri vængnum leiðir nú í skoðanakönnunum vegna forsetakosninganna. Mélenchon er jafn tveimur frambjóðendum á mið-vinstri vængnum.

Kapphlaupið snýst nú um hver kemst í gegnum fyrri umferð kosninganna og í seinni umferðina milli tveggja frambjóðenda, líklega gegn Le Pen. Ef óeirðirnar hjálpa Mélenchon að sameina fylgið á vinstri vængnum gæti hann keppt við Le Pen. Ef óeirðirnar færa fleiri mið-hægri kjósendur frá miðjuframbjóðendunum og í átt að Le Pen kann Mélenchon að telja sig eiga raunhæfa möguleika á að verða næsti forseti í seinni umferðinni í maí.

Rósa Björk skilgreinir flokk sinn vafalaust við hliðina á flokki Mélenchons þótt það hafi líklega verið tilviljun að þau fóru bæði út á göturnar nú um helgina og fundu fyrir táragasi lögreglunnar.

Hvort nýkjörinn formaður VG lærir aðferðir meðal skoðanasystkina á götum Frakklands til að blása nýju lífi í flokk sinn kemur í ljós. Rósa Björk er að minnsta kosti óbuguð eins og Mélenchon.