Ríkisstjórnin eftir ósigurinn
Þótt ekki sé beint fjallað um þennan eftirleik í bók minni ætti lestur hennar að auðvelda skilning á því hvers vegna hann er bitur. Forysta Viðreisnar tefldi fram fjöreggi flokksins og beið ósigur.
Í gær kynnti bókaútgáfan Ugla nýja bók mína, Þegar Ísland sagði nei, þar sem ég lýsi aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst og úrslitum hennar.
Mér þótti miklu skipta að skrá þessa atburðarás meðan hún væri enn fersk í minni og setja hana í samhengi við um 35 ára reynslu mína af samskiptunum við Evrópusambandið. Að þeim hef ég komið sem beinn þátttakandi í stjórnmálum, formaður tveggja opinberra nefnda um framkvæmd EES-samningsins og áhugamaður um málið allt fram til þessa dags.
Bókin er ekki hugsuð sem uppgjör við einstaka menn. Hún er frásögn af pólitískri atburðarás, studd opinberum heimildum og mótuð af eigin reynslu og skoðunum. Afstaða mín til ESB-aðildar er engum hulin.

Fyrir nokkrum dögum tók Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, sem oft kemur við sögu í bókinni, undir gagnrýni Jóns Gnarr á framkvæmd og skipulagningu kosningabaráttunnar fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Hann telur að sjálfsögðu fráleitt að þegja tapið í hel.
Í Facebook-færslu í tilefni af úrsögn Jóns úr þingflokki Viðreisnar segir Össur stuðningsmenn stjórnarinnar eiga rétt á skýringum á því hvernig yfirburðafylgi við ESB-viðræður hafi snúist í tap á einu sumri. Ekki dugi að kenna ósannindum andstæðinga ESB, Ólafi Ragnari Grímssyni eða Sólveigu Önnu Jónsdóttur, um niðurstöðuna. Skýringanna verði að leita nær Viðreisn sjálfri.
Össur gagnrýnir einnig að forysta Viðreisnar víki sér undan endurmati með því að segja flokkinn ekki vera eins máls flokk. Að hans mati skaðar það Evrópuhreyfinguna til framtíðar að gera ekki upp kosningabaráttuna og læra af mistökunum. Flokkurinn þurfi auk þess að skýra stöðu sína: forystan skilgreini sig til hægri þótt fylgið liggi mun lengra til vinstri.
Þetta er réttmæt krafa um pólitískt uppgjör. Össur setur hana fram vegna framtíðar Evrópuhreyfingarinnar. Ég tel hana hins vegar snerta sjálfan tilverugrundvöll Viðreisnar. ESB-aðild hefur verið kjarninn í pólitísku erindi flokksins. Þegar þjóðin hafnar því að halda inn á þá braut nægir ekki að benda á að önnur mál standi líka á stefnuskránni.
Hvert er sjálfstætt erindi Viðreisnar eftir ósigurinn? Ráðherrastólar eru ekki svar við þeirri spurningu.
Á fjármálasviðinu fellur hlutur flokksins í skugga forsætisráðherra sem vill sjálfur ráða ferðinni. Í atvinnumálum situr ráðherra hans uppi með óleyst deilumál í lagareldi og ferðaþjónustu. Ágreiningur dómsmálaráðherra og utanríkisráðherra vegna stofnana og verkefna í öryggis- og landamæramálum er undirrót vaxandi átaka um völd í Viðreisn. Hvaða sameiginlega pólitíska stefna gerir nú flokkinn stjórnhæfan? Hann heldur ekki ríkisstjórninni á floti.
Forysta Viðreisnar getur ekki til lengdar skýlt sér á bak við stjórnarsamstarfið þegar spurt er um ábyrgð hennar á ósigrinum. Því lengur sem hún víkur sér undan uppgjörinu, þeim mun meira rúm fær ágreiningur um menn, völd og embætti.
Þótt ekki sé beint fjallað um þennan eftirleik í bók minni ætti lestur hennar að auðvelda skilning á því hvers vegna hann er bitur. Forysta Viðreisnar tefldi fram fjöreggi flokksins og beið ósigur. Hún verður að horfast í augu við niðurstöðuna.
Þjóðin hefur sagt sitt. Ríkisstjórnin verður að svara.